Morgunblaðið - 28.04.2018, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 28.04.2018, Blaðsíða 20
Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2018 ÚR BÆJARLÍFINU Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Vegleg gjöf var afhent á heilsugæslustöðinni á Þórshöfn ný- verið og var gefandinn Ísfélag Vestmannaeyja, sem gaf Styrkt- arfélagi Heilbrigðisstofnunar Þing- eyinga stóra fjárhæð til tækja- kaupa á heilsugæsluna á Þórshöfn, rúmar 800.000 krónur. Lengi hafði vantað sótthreinsunarofn á heilsu- gæsluna til dauðhreinsunar á áhöldum og var hann formlega af- hentur á heilsugæslustöðinni að viðstöddum fulltrúum Ísfélagsins og Styrktarfélagsins. Félagið hef- ur það markmið að styðja starfs- stöðvar Heilbrigðisstofnunar Norðurlands í Þingeyjarsýslum til kaupa á tækjum og búnaði og því er velvilji og stuðningur ein- staklinga og fyrirtækja afar mik- ilvægur en þetta er ekki fyrsta stórgjöf Ísfélagsins sem heilsu- gæslan á Þórshöfn nýtur góðs af. Formaður Styrktarfélagsins, Auður Gunnarsdóttir, flutti stutt ágrip af sögu félagsins um leið og hún þakkaði Ísfélaginu gjöfina. Styrktarfélagið hefur í gegnum tíðina stutt vel við heilbrigðismál í Þingeyjarsýslum með fjáröflun og kaupum á búnaði á starfsstöðvar Heilbrigðisstofnunar Norðurlands í Þingeyjarsýslum. Í máli Auðar kom fram að helsti tilgangur fé- lagsins væri að afla fjár en einnig að halda málefnum heilbrigð- isstofnana í Þingeyjarsýslum á lofti. „Heilbrigðismál eru byggða- mál og ein af þeim stóru málum sem ráða miklu um búsetuval fólk,“ sagði Auður að lokum.    Fimm bátar gera út á grá- sleppu þetta vorið og var góð veiði framan af þar til norðanáttin tók við með tilheyrandi gæftaleysi síð- ustu vikuna. „Það er bara kvika og djöfulskapur, netin full af þara,“ segja grásleppusjómenn sem fengu þó góðar fyrstu þrjár vikur veiði- tímabilsins. Þeir sem fyrstir byrj- uðu ljúka sínum dögum í byrjun maí. Strandveiðar taka svo við um mánaðamótin eftir þriggja mílna stoppið.    Árshátíð og loðnuslútt starfsfólks Ísfélagsins var haldið um síðustu helgi í félagsheimilinu Þórsveri og hafði starfsfólkið veg og vanda af undirbúningi og skemmtiatriðum. Fjölþjóðlegur blær var yfir samkomunni sem fór vel fram en forréttirnir voru frá fimm þjóðlöndum; Búlgaríu, Eist- landi, Íslandi, Póllandi og Þýska- landi, en starfsfólk Ísfélagsins frá þessum löndum útbjó réttina. Vetrarvertíðin var góð, hún stóð óvenjulengi og mesta unna magn af frystum afurðum var einnig á þessari vertíð, sagði Sig- geir Stefánsson vinnslustjóri í há- tíðarræðu sinni og þakkaði starfs- fólki fyrir vel unnin störf, nú sem fyrr. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Gjöfin afhent Anna L. Ómarsdóttir, Sigurður Halldórsson læknir, Rafn Jónsson frá Ísfélagi Vestmannaeyja, Auður Gunnarsdóttir og Guðrún Guðbjartsdóttir frá Styrktarfélagi Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga. Gáfu fé til tækjakaupa hvergi getið um fluglest. Einnig sé vert að benda á að ein af meginfor- sendum fyrir fluglest eins og þær hafi verið kynntar sé að innanlands- flug verði áfram í Vatnsmýrinni. „Með vísan til þessa og áherslu á mikilvægi þess fyrir Hafnarfjörð að uppbygging samgangna á höfuð- borgarsvæðinu takist vel teljum við ótímabært að gera samning vegna fluglestar sem gæti skuldbundið sveitarfélagið til aðgerða er gætu gengið gegn hagsmunum þess í sam- göngumálum,“ sagði Rósa. Hún sagðist leggja áherslu á að Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Rósa Guðbjartsdóttir, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar, bar upp tillögu um að bæjarstjórn samþykki ekki fyrirliggjandi samning um þró- un hraðlestar (fluglestar), á bæjar- stjórnarfundi í fyrrakvöld. Að loknum umræðum um tillögu Rósu, var samþykkt samhljóða að bæjarstjórn frestaði málinu þar til ný bæjarstjórn kæmi saman í júní. Rósa var spurð hvers vegna hún hefði borið upp ofangreinda tillögu á bæjarstjórnarfundi. „Við teljum ekki tímabært að afgreiða samninginn í ljósi ýmissa óvissuþátta í samgöngu- málum á höfuðborgarsvæðinu en töldum á fundinum í gær sanngjarnt að verða við óskum um að fresta af- greiðslu málsins þar til ný bæjar- stjórn hefði tekið við eftir kosning- ar,“ sagði Rósa. Rósa segir að miklir hagsmunir séu í húfi fyrir Hafnarfjarðarbæ að vel takist til við skipulagningu og uppbyggingu samgangna innan höf- uðborgarsvæðisins og þá sérstak- lega varðandi samgöngur til og frá Hafnarfirði. Unnið sé að samgöngu- áætlun fyrir höfuðborgarsvæðið fram til ársins 2030. Áætlunin nái yf- ir stofnvegaframkvæmdir, borgar- línuframkvæmdir, samgöngustíga og forgangsakreinar. Í áætluninni sé þeir aðilar, þ.m.t. Fluglest – þróun- arfélag ehf., sem kæmi að sam- göngumálum innan höfuðborgar- svæðisins tækju upp samtal með það að markmiði að ná fram sem bestri heildstæðri lausn samgangna innan höfuðborgarsvæðisins og á helstu stofnvegum sem liggja að því. Auk þess væri óljóst hver áhrif sam- starfssamningsins á ákvarðanir sveitarfélagsins í skipulagsmálum væru á þeim tíma sem samningurinn væri í gildi eins og fram kæmi í minnisblaði lögmanns Hafnarfjarð- arbæjar frá 20. febrúar 2018. Ótímabært að semja um fluglest til Keflavíkur  Formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar vill hafna samningi um þróun fluglestar  Óvissuþættir uppi í samgöngumálum Morgunblaðið/Golli Hafnarfjörður „Við teljum ekki tímabært að afgreiða samninginn í ljósi ým- issa óvissuþátta í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Rósa. citroen.is KOMDU OGMÁTAÐU CITROËN C4 CACTUS 2.540.000KR. VERÐ ÁÐUR 2.940.000 KR. Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16 Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, S. 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, S. 515 7050 Í tilefni þess að nýr C4 Cactus verður kynntur í maí þá seljum við síðustu bílana af núverandi gerð með 400.000 kr. afslætti! Keyrðu inn í vorið á nýjum, sparneytnum Citroën C4 Cactus! Citroën C4 Cactus er nettur en rúmgóður með opið og bjart innra rými. Mælaborðið er stílhreint og 7” snertiskjárinn gerir allar aðgerðir einfaldar og þægilegar. Citroën C4 Cactus er sparneytinn, með skilvirkri vél og nýrri undurþýðri sjálfskiptingu. CITROËN C4 CACTUS FEEL SJÁLFSKIPTUR FRÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.