Morgunblaðið - 28.04.2018, Side 22

Morgunblaðið - 28.04.2018, Side 22
Arnar Þór Ingólfsson athi@mbl.is Íbúar á Norðurlandi vestra sem blaða- maður ræddi við á ferðalagi um svæðið höfðu almennt ekki orðið varir við mikla umræðu í sínum nærsam- félögum um helstu málin fyrir kosn- ingarnar og sögðu nokkra ró yfir sveit- arstjórnarmálunum. Húsnæðismál komu þó upp í Húnaþingi vestra, þar sem skortur hefur verið á húsnæði á Hvammstanga fyrir íbúa sem vilja setjast þar að og einnig þá sem vilja koma og vinna á svæðinu í skemmri tíma. Einnig ræddu Skagfirðingar um að húsnæði vantaði á Sauðárkróki og þá helst leiguhúsnæði fyrir almenning. Rætt hefur verið um sameiningar sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Í fyrra lýstu Skagfirðingar yfir vilja til þess fara í viðræður um að sameina landshlutann allan í eitt stórt sveitarfé- lag en ekkert varð úr viðræðunum. Á svæðinu eru sjö sveitarfélög, en það gæti breyst á næstu árum. Sex íbúafundir hafa verið haldnir á miðju svæðinu um möguleikann á sameiningu fjögurra sveitarfélaga, Skagabyggðar, Skagastrandar, Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps. Að sögn viðmælenda í Austur- Húnavatnssýslu hafa komið fram skiptar skoðanir á þessum fundum. Austursýslan ljósárum á eftir „Ég held að sameiningarmálin séu númer eitt, tvö og þrjú. Við stönd- um svolítið og föllum með þessari sam- einingu, sveitarfélögin í Austur- Húnavatnssýslu í heild sinni,“ segir Lee Ann Maginnis, lögfræðingur á Blönduósi. „Það hefur reyndar fjölgað í Blönduósbæ samkvæmt síðustu tölum, en við erum að verða ógeðslega fá. At- vinnulífið er að verða einhæft og ég held að ef við horfum á sveitarfélögin í kringum okkur, bæði Húnaþing vestra og Skagafjörð sem sameinuðust fyrir nokkrum árum, þá séum við ljósárum á eftir,“ segir Lee Ann. Hún vill meina að þessi fjögur sveitarfélög verði sterkari saman, en nú þegar sé unnið í sameiningu að nán- ast öllum málum auk þess sem íbúar á svæðinu sæki vinnu yfir í hin sveit- arfélögin.„Ég veit ekki hvað það keyra margir bílar hérna í gegn á hverju ári og það stoppar enginn hér. Við erum öll sveitarfélögin að reyna að gera eitt- hvað fyrir okkur, en það gerist ekki neitt þegar þú þarft að tala við fjóra sveitarstjóra.“ Ekki eru allir jafn hrifnir af sam- einingu og Lee Ann segir að núna fyrir kosningar séu að koma fram listar sem vilji berjast gegn sameiningu sveitar- félaganna. Andstaðan tengist að sögn Lee Ann oft skólamálum – hræðslu um að minni skólar, eins og á Skagaströnd og á Húnavöllum verði lagðir niður á endanum. Einnig snúist þetta um pen- inga, en Blönduósbær sé töluvert skuldugari en hin sveitarfélögin, vegna þess að þar var byggð vegleg sund- laug. „Sameining snýst ekki um að loka eða leggja niður, sameining snýst um það að við verðum sterkari út á við og Morgunblaðið/Eggert Listaverk Risavaxin andlitsmynd prýðir húsvegg gegnt Fiskmarkaðnum við höfnina á Skagaströnd. Húsnæðis-, atvinnu- og sameiningarmál  Fundað um hvort fjögur sveitarfélög verði að einu  Reimar Marteinsson, kaupfélags- stjóri á Hvammstanga, segist varla vita hver stærstu kosningamálin í Húnaþingi vestra verði í ár. „Það er einhvernveginn svo lítið í gangi, rólegt yfir í þessu. Það er verið að byggja við íþróttahúsið og það verður vænt- anlega klárað á þessu kjörtímabili. En skólamál kannski, það er vitað að það þarf að byggja við skólann, hann er of lítill. Ég veit að það er farin af stað ein- hver hugmyndavinna í kringum það, þannig að útfærsla á því og annað verður örugglega stærsta „issjúið“ í kosningum núna.“ Húsnæði hefur vantað á Hvamms- tanga um nokkurt skeið, en sveitarfé- lagið hefur úthlutað mörgum lóðum til íbúa undanfarið. „Ég held að það komi til með að leysast bara af sjálfu sér. Fasteignaverð er búið að hækka, eig- inlega tvöfaldast frá því sem var fyrir 2-3 árum, sem gerir það miklu fýsi- legra að byggja heldur en það var.“ Morgunblaðið/Eggert KVH Reimar er kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga. Líklegt að húsnæðisvandi á Hvammstanga leysist sjálfkrafa  „Fólk er ekkert sátt með allt, en það er margt sem er gott og annað sem mætti vera betra,“ segir Þórunn Eyjólfsdóttir, íþróttakennari og sauð- fjárbóndi í Skagafirði, sem býr í dreif- býli í Lýtingsstaðahreppi. Þórunn segir hinar dreifðu byggðir kannski aðeins gleymast innan Sveit- arfélagsins Skagafjarðar, en það sé ef til vill óhjákvæmilegt. „Þetta snýst oft um þessa staði sem eru stærstir. Það fer mesta fjár- magnið í allt sem er að gerast á Króknum, það er alltaf þannig og við vitum það alveg. En það er erfitt fyrir okkur að gera eitthvað í því líka, við erum færri og höfum lítið að segja á móti,“ segir Þórunn. Hún segir að bæði húsnæði og leik- skólapláss skorti á Sauðárkróki og telur líklegt að þau mál verði til um- ræðu í aðdraganda kosninga. Morgunblaðið/Eggert Skagafjörður Þórunn Eyjólfsdóttir, kennir sund á Hofsósi. Dreifbýlið gleymist aðeins Arnar Þór Ingólfsson athi@mbl.is Þau Nína Guðbjörg Gunnarsdóttir, Egill Már Vignisson, Kristín Lind Sigmundsdóttir og Gísli Ragn- arsson voru búin að koma sér makindalega fyrir á skrifstofu nemendafélagsins í Fjölbrauta- skóla Norðurlands vestra á Sauð- árkróki er blaðamann Morg- unblaðsins bar að garði. Þau eru öll að fara að kjósa í sveitarstjórn- arkosningum í fyrsta skipti og höfðu misjafnar skoðanir á því hvaða mál væru mikilvægust fyrir ungt fólk. „Aðgangur að störfum þegar við erum komin úr menntuninni,“ segir Gísli, sem er frá Blönduósi. „Það er eitthvað sem vantar ótrú- lega mikið hérna,“ bætir hann við. Á Hvammstanga er skortur á húsnæði, segir Nína Guðbjörg, sem er uppalin þar. „Það vantar hús- næði til að unga fólkið geti komið til baka og verið áfram heima á Hvammstanga til að bæta staðinn.“ Atvinna, húsnæði og aðgengi að menntun  Nemendur í FNV ræða stóru málin Morgunblaðið/Eggert FNV Nína Guðbjörg, Kristín Lind, Egill Már og Gísli stunda nám í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.