Morgunblaðið - 28.04.2018, Síða 53

Morgunblaðið - 28.04.2018, Síða 53
DÆGRADVÖL 53 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2018 Einstakur möguleiki á að fá einkafund með talsmanni EBK, Anders Ingemann Jensen, um uppsetningu á EBK sumarhúsum á Íslandi. Á fundinum verður farið yfi r byggingarferlið, kost- naðaráætlanir og allt það sem viðkemur því, að fá nýtt EBK sumarhús byggt á íslandi. Föstudaginn 4. maí og laugardaginn 5. maí 2018 – Báða dagana frá kl. 10-17 Fundarstaður og stund: Stepp ehf., Ármúla 32, 108 Reykjavík Nauðsynlegt er að panta fundartíma gegnum netfangið aj@ebk.dk, í síma +45 4020 3238 eða á vefnum ebk-hus.is. Anders talar dönsku og ensku. Komið og upplifi ð hið stórkostlega HIRSEHOLM 111 Hús Hagavík/Tjarnarvík við Þingvallavatn Frekari upplýsingar um staðsetningu er hægt af nálgast í síma 696 9899 Bókið fund með EBK í Reykjavík, sérsniðin að ykkar óskum OPIÐ HÚS Sunnudaginn 6. maí kl. 13-16 EBK HUSE A/S, Skovsøvej 15, DK-4200 Slagelse Anders Ingemann Jensen, Sími +45 4020 3238, Netfang: aj@ebk.dk 18 18 2 Hefur þú hug á að byggja nýtt sumarhús? WWW.EBK-HUS.IS DÖNSK HÖNNUN OG ARKITEKTÚR Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það segir sitthvað um þig að fólk tek- ur mark á skoðunum þínum. Samt er grun- samlegt ef einhver er sammála öllu sem þú segir. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú átt auðvelt með að laða fram það besta í öðrum sem og að miðla málum þegar menn eru ekki á eitt sáttir. Einhverjar breyt- ingar standa fyrir dyrum hjá þér. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Því miður er ekki nóg að gera skyldu sína til að öðlast ást og aðdáun ann- arra. Eitthvað er að brjótast um í þér og nauðsynlegt að þú fáir málin á hreint sem fyrst. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Samstarf þitt við aðra byggist á því að þú getir breytt til. Sýndu hugrekki og vertu óhefðbundinn, nýjungagjarn og sér- stakur. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Samræður við aðra eru kraftmiklar, hressilegar og heillandi í dag. Komdu fram við aðra eins og þú vilt að komið sé fram við þig. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú þarft að hrista af þér ýmsar venjur sem falla ekki að því lífi sem þig langar til þess að lifa. Vertu þolinmóður því allt gengur upp um síðir. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þegar margir möguleikar eru fyrir hendi er valið þeim mun erfiðara. Reyndu að minna þig á að það finna allir til minnimátt- arkenndar svona af og til. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er ástæðulaust að láta draum sinn halda fyrir sér vöku. Ef þú upplifir erfiðleika á hinu huglæga sviði, skaltu gera eitthvað í því. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Horfurnar í fjármálum batna þeg- ar þú leysir verkefni sem enginn annar getur. Láttu úrtölur vinnufélaga þinna sem vind um eyru þjóta. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ert búinn að vera að glíma við stórt verkefni í langan tíma og nú er bara að leggja á það lokahönd. Gættu þess vel að enginn misnoti velvild þína. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú þarft að sannfæra yfirmenn þína um ágæti hugmynda þinna, áður en þú getur þróað þær frekar. Nú færðu tækifæri til þess að æfa þolinmæðina. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er svo auðvelt að fylgja straumn- um en erfiðara að standa á sínu. Lífsspeki þín getur lifað í sátt og samlyndi við annarra speki. Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Vegarspotta víst þann tel. Veðrabálkur strangur er. Hann er rák á hörpuskel. Hluti bókar einn og sér. Helgi R. Einarsson svarar: Lausnin er í leyni leita hennar reyni upplýsinga afla ætla’ að giska’ á kafla. Helgi Seljan á þessa lausn: Vegarkafla vondan finn, veðrakaflann þoli um sinn. Heillar kafli á hörpuskel, hér ég bókarkaflann vel. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Vegarkafla víst hann tel. Veðrakafli strangur er. Hér er kafli á hörpuskel. Hefur kafla bókarkver. Þá er limra: „Er vorið hreint gengið af göflum? Á grundum allt þakið er sköflum“, við Snjólf mælti Snær, „það snjóaði í gær. Hann er kaldur á köflum.“ Og síðan ný gáta eftir Guðmund: Við Álftanes endur kvaka, að eyrum berst mávahlátur, sælt er um síðkvöld að vaka og semja vísnagátur: Fjarðaröldum flýtur á. Færir graut að munni. Kapphlaup vísast kalla má. Kafli úr jarðsögunni. Vísa úr Tímarímu eftir Jón Sig- urðsson lögsagnara: Margt er sér til gamans gert, geði þungu að kasta, það er ekki einskisvert að eyða tíð án lasta. Það er margt baslið. Björn Skúla- son Eyjólfsstöðum orti: Margt er stílað bóndans böl, brestur fjalir mig í þil, vantar ílát undir mjöl, ekki eru dalir heldur til, Og að síðustu eftir Guðmund á Sandi: Mörg hefur glúpnað meyjar lund manns fyrir brúnaleiftri, kær er vistin konumund karlmannslófa greyptri. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Hann er kaldur á köflum Í klípu „ÞÚ ÁTT BARA AÐ HORFA. ÞEIR VORU EKKI AÐ BIÐJA UM RÁÐ FRÁ ÞÉR.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÞÚ ERT BÚINN AÐ HRINGJA BJÖLLUNNI TÍU SINNUM. VILTU SJÁ HVAÐ GERIST Í ELLEFTA SINN?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að kyssast í rigningunni. „KÆRA SPYRJUM HUNDINN, HVAÐ GET ÉG GERT TIL ÞESS AÐ DRAGA ÚR ANDFÝLU HUNDSINS MÍNS?“ VOFF, VOFF, VOFF, VOFF, VOFF, VOFF KAUPTU INNISKÓ MEÐ MYNTUBRAGÐI ÞÚ ERT VARÐMAÐUR Í KVÖLD! ÞÚ MÁTT ALLS EKKI SOFNA! ENGAR ÁHYGGJUR! ÉG ER MEÐ NÓG AF KVÍÐA OG ÁHYGGJUM! ÞVÍ MIÐUR ER EKKERT KAFFI TIL AÐ HALDA ÞÉR VAKANDI! Víkverja finnst alltaf leiðinlegtþegar fólk gefur sér ekki tíma til að vanda sig að leggja í bíla- stæði. Stundum eru bara ekki alltof mörg stæði til staðar og þá tapast eitt þegar illa er lagt eða viljandi lagt í tvö stæði. Hann hefur tekið eftir því að það er einkum tveimur gerðum bíla lagt á þennan hátt; annað hvort mjög litlum bílum eða mjög stórum jeppum. x x x Það er algengara að það sé kvart-að undan jeppaeigendunum enda er það kannski meira áber- andi að sjá stóran bíl ná yfir tvö stæði heldur en lítinn bíl sem skag- ar inn í annað stæði en sitt eigið. Ástæða jeppaeigandans er vænt- anlega sú að hann vill vernda fína bílinn sinn og hafa nægt pláss báð- um megin en smábílaeigandinn virðist ekki hugsa á þann hátt enda nóg pláss fyrir lítinn bíl í venjulegu stæði. x x x Smábílaeigandinn virðist hrein-lega ekki gæta að sér; honum finnst stæðið svo svakalega stórt að það geti ekki verið að honum mis- heppnist að leggja í það. Víkverji getur staðfest að það gerist samt margoft. Hann hefur séð litla bíla svo skakka í bílastæðum að þeir eru nánast þversum. x x x Hvað um fólkið í meðalstóru bíl-unum? Er það svona varkárt? Millistéttin sem borgar brúsann? Meðaljóninn sem gerir aldrei neitt af sér? Það er spurning. x x x Víkverji reynir alltaf að leggjavandlega í stæði, hann er bara þannig. Bíll hans er reyndar frekar fyrirferðarmikill svo hann vandar valið á stæðum vel. Það er lítið mál að leggja lengra frá þar sem stæði eru fleiri ef þarf. Sumir virðist frekar hringsóla lengi til að fá stæði sem næst inngangi en ekki Víkverji. Hann fær sér frekar auka göngutúr heldur en svoleiðis vit- leysu. Það er líka sannað að þessi auka skref á dag geti bætt heils- una. Það lengir því lífið að leggja lengra í burtu. vikverji@mbl.is Víkverji Leitið fyrst ríkis hans og réttlætis, þá mun allt þetta veitast yður að auki (Matt: 6.33)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.