Morgunblaðið - 30.04.2018, Síða 1
M Á N U D A G U R 3 0. A P R Í L 2 0 1 8
Stofnað 1913 100. tölublað 106. árgangur
ÞÓRARINN
SENDIR FRÁ
SÉR SMÁSÖGUR
SAFN PRÉDIKANA
KARLS BISKUPS
Í NÝRRI BÓK
KRAFTUR ÍSLEND-
INGA KEMUR
ÚR ROKINU
Í HELGUM STEINI 10 ALDÍS Á HEIMLEIÐ 12GAMLAR PERLUR 26
Efnilegustu hestamenn landsins tóku þátt í
árlegu sýningunni Æskan og hesturinn í TM-
Reiðhöllinni í Víðidal í gær. Yfir 130 ungir
knapar frá öllum hestamannafélögum höfuð-
borgarsvæðisins, Fáki, Herði, Mána, Spretti,
Sóta og Sörla, sýndu listir sínar á hestbaki og
þeir yngstu klæddu sig í grímubúninga af
ýmsu tagi. Mátti meðal annars sjá litla beina-
grind í hópnum.
„Þetta gekk allt rosalega vel og húsið var
fullt af fólki,“ segir Hjörtur Bergstað, for-
maður hestamannafélagsins Fáks. Aðspurður
segir hann yngstu knapana hafa gaman af því
að fá að klæða sig í búninga. „Það er ösku-
dagsfílingur hjá þeim.“
Hann segir hestana ekki fælast vegna bún-
inganna, enda skynji þeir t.d. beinagrindur
ekki eins og við mannfólkið. „Þeir eru ekki
hræddir við skæra liti eða neitt svoleiðis.“
Hann segir fjölda þátttakenda hafa verið
svipaðan og undanfarin ár, en að fjöldi áhorf-
enda hafi jafnvel verið ívið meiri á sýningum
dagsins, sem voru tvær. „Það er vaxandi
áhugi á hestamennsku sem sporti.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lítil beinagrind leyndist í hópi knapa
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Fyrirtæki sem reka sjúkrahótel á lóð-
um sjúkrahúsa erlendis eru meðal
þeirra sem sýnt hafa áhuga á eða
spurst fyrir um fyrirhugað útboð á
rekstri sjúkrahótels við Landspítal-
ann. Einnig hafa félög sem reka hótel
og sjúkrahótel hér á landi sýnt verk-
efninu áhuga. Útboðið hefur ekki far-
ið fram þótt styttist í að sjúkrahótelið
verði tilbúið.
Bygging sjúkrahótels á Landspít-
alalóðinni við Hringbraut hefur tafist,
meðal annars vegna þess að ákveðið
var að nota aðra klæðningu utan á
húsið en áformað var.
Gunnar Svavarsson, framkvæmda-
stjóri Nýs Landspítala ohf. sem ann-
ast nýframkvæmdir á Landspítalalóð,
segir að húsið sé nær fullbúið að inn-
an. Miðað við upplýsingar frá verk-
taka er búist við að hægt verði að af-
henda Landspítalanum húsið til
rekstrar í byrjun júlí.
Heilbrigðisráðuneytið ákvað að
bjóða út rekstur hótelhlutans til
einkaaðila en Landspítalinn mun ann-
ast heilbrigðisþjónustuna. Rekstur-
inn hefur enn ekki verið boðinn út,
þótt stutt sé til stefnu, vegna þess að
ekki hefur fengist ákveðin dagsetning
á það hvenær húsið verður tilbúið.
Áhugi á rekstri hótels
Erlend og innlend fyrirtæki sýna áhuga á útboði rekstrar
sjúkrahótels Beðið með útboð vegna dráttar á framkvæmd
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sjúkrahótel Hótelið er nær tilbúið að innan en eftir er að klæða það að utan.
MBeðið með útboð ... »2
Stofnun félags sem hefði með
höndum stórframkvæmdir í vega-
málum er í undirbúningi í sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðuneyti.
Að mati Sigurðar Inga Jóhanns-
sonar ráðherra getur gjaldtaka fyrir
afnot af einstaka mannvirkjum kom-
ið til greina. Því vill hann skoða
einkaframkvæmd við nýja Ölfus-
árbrú ofan við Selfoss, Sundabraut
og fleira. Kostnaður við þetta gæti
verið allt að 150 milljarðar króna og
hjá lífeyrissjóðunum er áhugi á að
lána fé til þessa. »6
Stórframkvæmdir
fari í sérstakt félag
Peter Sorgenfrei, framkvæmda-
stjóri og stofnandi fyrirtækisins
Autonomous Mobility, segir í samtali
við Morgunblaðið að hann telji að
ekki sé langt í að hefðbundnir einka-
bílar verði með öllu óþarfir í borgum.
Fyrirtæki hans, sem flytur inn og
selur sjálfkeyrandi rafbíla, er að
stærstum hluta í eigu Samler Group
sem er stærsti bílainnflytjandi Dan-
merkur og helmingseigandi bílaum-
boðsins Heklu hérlendis.
„Í stað þess að þú eigir þinn eigin
bíl sem stendur ónotaður í innkeyrsl-
unni hjá þér 95% tímans, verður þú
með áskrift að deilibílum, rétt eins
og þú ert með áskrift að Netflix og
Spotify,“ segir Sorgenfrei.
Fyrsta ferðin með algjörlega sjálf-
keyrandi ökutæki hérlendis verður
farin á ráðstefnunni Snjallborgin í
Hörpu á fimmtudag. »4
Einkabílar
verði brátt
óþarfir
Sjálfkeyrandi
deilibílar framtíðin
Nærri 40 titlar eru í boði í nýju
hljóðbókaappi Forlagsins og öðrum
útgefendum gefst kostur á að selja
sína titla þar. Hið nýja smáforrit
gerir öllum þeim sem eru nettengd-
ir kleift að hlusta á íslenskar hljóð-
bækur með einföldum hætti, að
sögn Egils Arnar Jóhannssonar,
framkvæmdastjóra Forlagsins.
Greitt er fyrir hverja bók og rétt-
ur rithöfunda því sagður gegnsærri
með þessu fyrirkomulagi en í hljóð-
bókaveitunni Storytel. »11
Hljóðbókaapp í sátt
við rithöfunda