Morgunblaðið - 30.04.2018, Síða 15

Morgunblaðið - 30.04.2018, Síða 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. APRÍL 2018 Þorgerður Anna Gunnarsdóttir thorgerdur@mbl.is Fyrstu sannanir þess að Rússar hafi reynt að hafa áhrif á úrslit almennra kosninga í Bretlandi á síðasta ári hafa litið dagsins ljós. Rannsókn breska dagblaðsins The Sunday Times, sem var unnin í samvinnu við Swansea-há- skóla, afhjúpaði 6.500 rússneska Twitter-aðganga sem fylktu liði og studdu við kosningabaráttu Verka- mannaflokksins og leiðtoga hans, Je- remy Corbyn. Þar að auki voru að- gangarnir notaðir til þess að gagnrýna og koma höggi á Íhalds- flokkinn, helsta andstæðing Verka- mannaflokksins. Í fréttaskýringu Sunday Times í segir að auðvelt hafi verið að sjá að Twitter-aðgangarnir hafi verið svo- kölluð netvélmenni. Aðgangarnir voru skráður undir enskum kven- mannsnöfnum og notaðir til þess að koma skipulögðum pólitískum skila- boðum til milljóna notenda. Rannsóknin sýndi yfirgnæfandi stuðning aðganganna við Corbyn og Verkamannaflokkinn, en níu af hverj- um tíu færslum um flokkinn voru já- kvæðar. Hins vegar voru níu af hverj- um tíu færslum um Íhaldsflokkinn fjandsamlegar. 80% aðganganna höfðu verið stofnaðir aðeins nokkrum vikum fyrir kosningarnar sem fram fóru 8. júní í fyrra og náðu færslurnar hámarki á hápunktum kosningabar- áttunnar, svo sem daginn sem The- resa May, leiðtogi Íhaldsflokksins, kynnti stefnu þeirra og í kjölfar sprengjuárásarinnar í Manchester Arena, þegar May var gagnrýnd fyrir að hafa fækkað lögregluþjónum þeg- ar hún gegndi stöðu innanríkisráð- herra. Á kosningadaginn sjálfan, þeg- ar umfjöllun breskra fjölmiðla er óheimil, náðu færslurnar svo há- punkti. Stuðningur við Verkamannaflokk- inn með Corbyn í forystu jókst úr 25% í 40% meðan á kosningabarátt- unni stóð, sem er mesta stuðnings- aukning sem sést hefur í kringum nú- tímakosningar í heiminum. Sérfræðingar segja þessa afhjúpun aðeins ná yfir toppinn á ísjakanum og Matt Hancock, ráðherra menningar- mála í Bretlandi , krafist þess að Twitter gefi upp raunverulegt um- fang vandamálsins og komi í veg fyrir að svona lagað geti gerst aftur. „Það er algerlega óviðunandi að nokkur þjóð reyni að hafa afskipti af lýðræð- islegum kosningum annars lands. Samfélagsmiðlafyrirtækin verða að bregðast við til þess að vernda lýð- ræðislega umræðu og leiða í ljós hvað þau vita.“ Alls fundu rannsakendur Sunday Times og Swansea-háskóla 16.000 rússnesk netvélmenni sem höfðu deilt færslum um stjórnmál í Bretlandi síð- an í apríl á síðasta ári, en úrtakið var þrengt og alls voru 20.000 færslur sem birtar voru innan fjögurra vikna fyrir kosningarnar skoðaðar. Hundr- uð aðganga voru stofnaðir samtímis, og áttu það sameiginlegt að notenda- nöfn voru samsett úr bók- og tölustöf- um, nöfnin sem skráð voru ensk kven- mannsnöfn en móðurmálið rússneska. Stundum birtu aðgang- arnir færslur samtímis og voru sumar þeirra deilingar á færslum annarra. Í viðbrögðum sínum við umfjöllun Sunday Times segir Verkamanna- flokkurinn að rússnesk stjórnvöld hafi stutt Íhaldsflokkinn í kosningun- um, enda hafi kosningaloforð Verka- mannaflokksins stungið í stúf við íhaldssaman hugsunarhátt May og Pútín og forríku stuðningsmannanna þeirra. Flokkurinn þvertekur fyrir að hafa haft nokkra vitneskju um málið, hvað þá að hafa borgað fyrir þessar aðgerðir. Þá efast talsmenn hans um að stuðningsmenn flokksins hafi gert slíkt. Rússar hafa þegar verið sakaðir um að hafa haft afskipti af forseta- kosningunum í Bandaríkjunum árið 2016, en þetta eru fyrstu gögn þess efnis að slíkt hafi verið reynt í kosn- ingunum í Bretlandi árið 2017. Verka- mannaflokksleiðtoginn hefur verið gagnrýndur fyrir tregðu til að for- dæma Vladimír Pútín Rússlandsfor- seta vegna taugagasárásanna í Salis- bury í síðasta mánuði. Rússar höfðu afskipti af þingkosningum í Bretlandi  Rannsókn afhjúpar tugþúsundir Twitter-færslna frá rússneskum netvélmennum AFP Inngrip Fylgisaukningin sem flokkur Jeremy Corbyn fékk er áður óþekkt í lýðræðislegum kosningum. Twitter-vélmenni » Alls uppgötvuðust 16.000 rússnesk netvélmenni sem birtu færslur um kosningarnar. » 20.000 færslur 6.500 Twit- ter-aðganga voru skoðaðar. » Stuðningur við Verka- mannaflokkinn jókst úr 25 í 40% á tímabilinu. Kjarnorkutilraunasvæði Norður- Kóreu verður lokað í maí, að því er fram kemur í tilkynningu frá forseta- skrifstofu Suður-Kóreu. Talsmaður skrifstofunnar, Yoon Young-chan, segir að lokun Punggye-ri-svæðisins verði opinber og að erlendum sér- fræðingum frá Suður-Kóreu og Bandaríkjunum verði boðið að fylgj- ast með. Leiðtogar Kóreuríkjanna hittust á sögulegum fundi á landamærum ríkjanna tveggja á föstudag. Í yf- irlýsingu þeirra eftir fundinn sagði að stefnt væri að samningi um varan- legan frið og kjarnorkuafvopnun Kóreuskaga. Leiðtogarnir tveir, Kim Yong-un og Moon Jae-in, virtust ein- lægir í yfirlýsingum sínum, en fögur fyrirheit hafa áður verið gefin í sam- skiptum ríkjanna sem ekki hafa gengið eftir. Nú er talið að fundur Kims og Donalds Trump Banda- ríkjaforseta muni skera úr um hvort af efndunum verður. Trump fagnaði leiðtogafundinum og sagði að sjálfur myndi hann líklega hitta Kim innan þriggja eða fjögurra vikna. Punggye-ri er talið vera helsta kjarnorkutilraunasvæði Norður- Kóreu, en tilraunirnar eru fram- kvæmdar í kerfi neðanjarðarganga undir fjallinu Mantap. Sex kjarn- orkutilraunir hafa verið gerðar á svæðinu frá árinu 2006, en eftir síð- ustu tilraunina sem framkvæmd var í september í fyrra urðu eftir- skjálftar á svæðinu. Jarðskjálfta- fræðingar halda því fram að skjálft- arnir hafi valdið því að hluti neðanjarðarganganna hafi fallið saman. Því er jafnvel talið að tilraunasvæðinu hafi verið sjálflokað og að þetta skref Norður-Kóreu í sáttaviðræðum sé ekki eins þýðing- armikið fyrir vikið. Kim Yong-un segir ekki rétt að þeir séu að loka óvirkum stöðvum og að menn muni sjá að svæðið sé í góðu ásigkomulagi. AFP Einlægir Frá fundi leiðtoga Kór- euríkjanna á föstudag. Kjarnorkutilrauna- svæði N-Kóreu lokað Amber Rudd, innanríkis- ráðherra Bret- lands, hefur sagt af sér í kjölfar gagnalekans sem leiddi í ljós að hún hefði sagt breska þinginu ósatt. Í bréfi sem lekið var kom fram að hún hefði gert áætlanir um að senda fleiri innflytjendur úr landi. Áður hafði hún greint þingmönnum frá því að henni væri ekki kunnugt um slík markmið. Skrifstofa Theresu May, for- sætisráðherra landsins, staðfestir að Rudd hafi sagt af sér, en spjótin hafa beinst að henni um nokkurt skeið vegna Windrush-málsins svo- kallaða. Samkvæmt því máli höfðu bresk stjónvöld í hyggju að senda innflytjendur frá ríkjum í Karíba- hafinu, sem ekki gætu sýnt fram á að þeir ættu rétt á að búa og starfa í Bretlandi, úr landi. Amber Rudd hafði áður greint frá því í breskum fjölmiðlum að hún ætlaði ekki að segja af sér vegna málsins. BRETLAND Innanríkisráðherra segir af sér embætti Um 500 nem- endur og kenn- arar þurftu að yfirgefa háskóla í borginni Melbourne í Ástralíu vegna mikillar ólyktar. Í fyrstu var lykt- in talin stafa af gasleka, en í skól- anum eru hættuleg efni geymd á rannsóknarstofu. Í ljós kom hins vegar að lyktina lagði frá úldnum ávexti sem skilinn hafði verið eftir inni í skáp. Durian er hitabeltisávöxtur sem þekktur er fyrir sterka lauk- kennda lykt. Lyktin barst um all- an skólann í gegnum loftræstikerf- ið, en það voru slökkviliðsmenn sem kvaddir voru á vettvang sem fundu sökudólg óþefjarins. ÁSTRALÍA Háskóli rýmdur vegna ávaxtar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.