Morgunblaðið - 30.04.2018, Blaðsíða 21
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Við byrjum daginn á opnu vinnustofunni okkar kl. 9,
leikfimi í KR kl. 10.30 þar sem hann Guðjón sjúkraþjálfari sér um leik-
fimina. Rútan sækir fyrir leikfimina á Vesturgötu kl. 10.10 og á Afla-
granda kl. 10.15. Útskurður og myndlist kl. 13 í hreyfisalnum og
félagsvist kl. 13 í matsalnum. Jóga kl. 18. Hlökkum til að sjá ykkur.
Árskógar Smíðastofan er lokuð. Ganga um nágrennið kl. 11. Handa-
vinna með leiðbeinanda kl. 12.30-16. Félagsvist með vinningum kl.
13. Myndlist með Elsu kl. 16-20. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl.
11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. S. 535-2700.
Boðinn Félagsvist kl. 13. Myndlist kl. 13.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-
10.30. Qigong kl. 10.30. Leikfimi kl. 12.50. Framhaldsþættir kl. 13.40-
14.30. Opið kaffihús 14.30-15.15.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Upplestur kl. 10.20. Opin handverks-
stofa kl.13. Botsía kl. 13.30. Kaffiveitingar kl. 14.30. Allir velkomnir!
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Leirmótun kl. 8.30-12.30, bókabíllinn á
svæðinu kl. 10-10.30, Handaband vinnustofa í handverki með textíl-
hönnuðum, ókeypis þátttaka og öllum opin frá kl. 10-12.30, Handa-
vinna kl. 13-15, bókband kl. 13-17, söngstund við píanóið kl. 13.30-
14.15, kaffiveitingar kl. 14.30-15.30, handavinnuhópur hittist í hand-
verksstofu kl. 15-19. Verið öll velkomin Vitatorg, síminn er 411-9450.
Furugerði 1 Vinnustofa opin frá kl. 12-16. Sitjandi leikfimi og öndun-
aræfingar kl. 11. Klukkan 13. er farið í göngu. Helgistund hefst kl. 14.
Garðabær Jónshúsi / félags- og íþróttastarf: 512-1501. Opið í Jóns-
húsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 9.30-16. Hægt er að
panta hádegismat með dags fyrirvara. Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.40/
8.20/15.15. Kvennaleikfimi Sjálandi kl. 9.05. Stólaleikfimi Sjálandi kl.
9.50. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Kvennaleikfimi Ásgarði kl.
10.40. Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.15.
Gerðuberg Opin handavinnustofan kl. 8.30-16. Útskurður með leið-
beinanda kl. 9-16. Línudans kl. 13-14. Kóræfing kl. 14.30-16.30. Leik-
fimi Helgu Ben kl. 11.15-11.45. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.10 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
10.50 jóga, kl. 13.15 kanasta.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9–14. Bænastund kl. 9.30–10. Jóga kl. 10.10–11.10.
Hádegismatur kl. 11.30. Prjónaklúbbur kl. 14. Kaffi kl. 14.30.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, leikfimi kl. 9 hjá
Carynu, morgunleikfimi kl. 9.45, jóga hjá Carynu kl. 10. hádegismatur
kl. 11.30. Tálgun kl. 13, spilað brids kl. 13, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30,
jóga kl. 16. hjá Ragnheiði.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, hjá afa kl. 9.30, ganga kl. 10. línudansnámskeið kl. 10. mynd-
listarnámskeið hjá Margréti Zophoníasdóttur kl.12.30, handavinnu-
hornið kl. 13 félagsvist kl. 13.15 síðdegiskaffi kl. 14.30, nánari upplýs-
ingar í síma 411-2790, allir velkomnir óháð aldri.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 9. gönguhópar kl. 10 frá Borgum
og Grafarvogskirkju, félagsvist kl. 13 í Borgum. Skartgripagerð með
Sesselju kl. 13 í Borgum og tréútskurður kl. 13 á Korpúlfsstöðum.
Norðubrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur
kl. 11, trésmiðja kl. 13-16, ganga með starfsmanni kl. 14, bíó á 2. hæð
kl. 15.30. Uppl. í s. 4112760.
Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr kl. 10 er
boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin.
Helgistund kl. 10.10 á sléttum vikum. Hádegisverður er kl. 11.30-12.30
og spiluð er félagsvist kl. 13. Kaffi og meðlæti er selt á vægu verði kl.
14.30-15.30. Allir eru hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari upplýs-
ingar hjá Maríu Helenu í síma 568-2586.
Seltjarnarnes Gler neðri hæð Félagsheimilis við Suðurströnd kl. 9
og 13. Leir Skólabraut kl. 9. Billjard Selinu kl. 10. Krossgátur og kaffi í
króknum kl. 10.30. Jóga salnum Skólabraut kl. 11. Handavinna Skóla-
braut kl. 13. Vatnsleikfimi sundlauginni kl. 18.30. Munið skráninguna í
ferðina í Stykkishólm / Breiðafjarðareyjar sem farin verður þriðjudag-
inn 8. maí. Skráning og uppl. í síma 8939800.
Kosning vígslu-
biskups í Skálholti
Síðari umferð kosningar til vígslubiskups í Skálholti
er hafin, en um er að ræða póstkosningu sem fer
fram á grundvelli starfsreglna um kosningu biskups
Íslands og vígslubiskupa nr. 333/2017.
Eftirtaldir eru í kjöri:
Séra Eiríkur Jóhannsson,
Séra Kristján Björnsson.
Vegna mistaka sem urðu hjá Íslandspósti við
útsendingu kjörgagna hefur kjörstjórn ákveðið að
framlengja áður ákveðin frest sem kjósendur hafa
til að skila atkvæði sínu til mánudagsins 14. maí
2018.
Kjósandi getur hvort sem er lagt sendiumslag með
atkvæði sínu í póst eigi síðar en 14. maí nk. eða
afhent það á biskupsstofu fyrir kl. 16:00 sama dag.
Allar nánari upplýsingar eru á vefsíðunni kirkjan.is
Reykjavík, 27. apríl 2018
f.h. kjörstjórnar þjóðkirkjunnar
Hjördís Stefánsdóttir, formaður.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
HITAVEITU-
SKELJAR
HEITIRPOTTAR.IS
HÖFÐABAKKA 1
SÍMI 777 2000
Ýmislegt
Bátar
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042,
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur, laga
ryð á þökum
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Atvinnuauglýsingar
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Smáauglýsingar
sími 569 1100
Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. APRÍL 2018
✝ Dagmar SvalaRunólfsdóttir
fæddist í Reykjavík
25. júlí 1952. Hún
andaðist 17. apríl
2018.
Foreldrar henn-
ar voru Ingunn
Svala Jónsdóttir frá
Engey í Vest-
mannaeyjum, f. 3.
febrúar 1926, d. 13.
mars 1990, og Run-
ólfur Dagbjartsson múr-
arameistari frá Vestmanna-
eyjum, f. 21. apríl 1923, d. 19.
maí 2008. Dagmar var næst-
yngst fjögurra systkina. 1) Óm-
ar, f. 23. desember 1947, maki
Auður Eiríksdóttir. 2) Margrét,
f. 14. ágúst 1949, maki Sigurður
Jóhannsson. 3) Kristín Helga, f.
17. október 1955, maki Ari
Tryggvason.
Dagmar ólst upp í foreldra-
húsum í Reykjavík til sextán ára
aldurs er hún flutti til Vest-
mannaeyja. Þar kynntist hún eft-
irlifandi eiginmanni sínum, Guð-
jóni Sigurbergssyni frá Flatey á
Breiðafirði. Þau gengu í hjóna-
band 25. júlí 1970. Saman eign-
uðust þau þrjá syni. 1) Rúnar
Ingi, f. 14 júní 1969 maki María
Guðmundsdóttir.
Börn þeirra: Guð-
jón Rafnar, f. 1995,
Svala Björg f. 2000
og Gabríel Snær f.
2001. Fyrir átti
María Thelmu Ósk
Jóhannesdóttur, f.
1987, sambýlis-
maður Jóhannes
Birgir Pálmason og
eiga þau dótturina
Ronju Máneyju, f.
2017. 2) Hjalti, f. 11. desember
1974, d. 31. mars 1996, ókvæntur
og barnlaus. 3) Ómar, f. 28.
ágúst 1977, sambýliskona Kelli
Arenburg.
Dagmar starfaði í Garðyrkju-
félagi Vestmannaeyja auk þess
sem hún var virkur þátttakandi í
Junior Chamber Vestmannaeyja
(JCV) og varð m.a. forseti þess
félags. Söng Dagmar nokkur ár
með Samkór Vestmannaeyja og
síðustu 23 árin hefur hún sungið
með Mosfellskórnum. Þótt Dag-
mar hafi ekki verið lang-
skólagengin vann hún við bók-
haldsstörf í nær 30 ár, þar af
síðustu 19 árin hjá Fosshótelum.
Útför hennar fer fram frá Há-
teigskirkju í dag, 30. apríl 2018,
klukkan 13.
Á mánudag fer fram útför
elsku systur minnar og góðu vin-
konu. Það er ótrúlega sárt að
kveðja hinstu kveðju þann sem
manni er svo kær. Elsku Dagga
mín barðist við krabbamein í 11
mánuði, þessir mánuðir voru
henni mjög erfiðir. Hún þoldi illa
lyfjagjafirnar og þurfti að hætta
fyrr en áætlað var. Allan þennan
tíma var hún svo jákvæð, bjart-
sýn og sérstaklega æðrulaus.
Alltaf sagði hún „þetta verður allt
í lagi, það hafa það margir verra
en ég,“ þó að hún væri virkilega
veik þessi elska. Ég er svo þakk-
lát að hafa átt hana sem systur,
og aldrei man ég eftir að við vær-
um eitthvað ósáttar við hvor
aðra. Á tímabili sem börn sváfum
við saman í sófa og fannst henni
svo gott að fá litlu systir til að
klóra sér á bakinu en ef ég neitaði
þá sagðist hún ætla að bíta í nefið
á mér (og það gerðist kannski
tvisvar), ekki tók ég nú séns á því.
Dagga var aðeins unglingur þeg-
ar hún kynnist eftirlifandi eigin-
manni sínum (til 50 ára) og eign-
aðist sinn fyrsta dreng 1969. Á 18
ára afmælisdegi hennar gengu
þau í hjónaband og nokkrum ár-
um seinna bættust tveir drengir
við, 1974 og 1977. Hún var innan
við tvítugt húsmóðir í Hagkaups-
slopp með rúllur í hárinu. Það var
hræðilegt áfall þegar þau misstu
miðdrenginn sinn af slysförum
1996, blessuð sé minning elsku
Hjalta míns. Mikill söngur og
tónlist hefur alltaf fylgt okkur
systrum og fjölskyldunni allri.
Sungum öll mikið á heimilinu
sem börn, síðar í Samkór Vest-
mannaeyja, Sönghóp ÁtVR (Átt-
hagafélag Vestmannaeyinga á
Reykjavíkursvæðinu) og loks í
Mosfellskórnum síðastliðin 23 ár.
Við elskuðum að syngja og hitt-
umst systkinin og makar öðru
hvoru til að syngja og njóta sam-
verunnar saman. Mín elsku syst-
ir sagðist alltaf vera umboðsmað-
ur minn og vildi að ég gerði meira
af því að syngja opinberlega
(dásamleg). Dagga gerði allt vel
sem hún gerði, vandvirk, ná-
kvæm, blíð og nærgætin. Ég verð
henni ævinlega þakklát fyrir að
vera hjá mér þegar ég eignast
frumburð minn í Vestmannaeyj-
um 1980. Hún vék ekki frá mér
og sýndi þessu mikinn áhuga.
Mikið gladdist hún þegar það
kom stúlka (hún átti þrjá drengi)
og eignaði sér strax hlut í henni.
Svo mikill var áhuginn á barninu
að hún gleymdi að tilkynna föð-
urnum (sem var á sjó) og ættingj-
unum fæðinguna. 1984 og 1990
eignaðist ég tvær stúlkur í viðbót
og Dagga sagðist eiga þær allar
með mér. Elsku hjartans systir
mín, takk fyrir að vera svona
yndisleg og góð við litlu systur
þína (mig) og dætur mínar og
barnabörn. Elsku Dagga, sorg
mín og söknuður er mikill en ég
hugga mig við góðar og fallegar
minningar.
Kæri Gutti mágur, Rúnar
Ingi, María, Thelma, Guðjón
Rafnar, Svala Björg, Gabríel
Snær, Ómar og Kellí, megi allar
góðar vættir vaka yfir ykkur og
styrkja á þessum erfiðu tímum.
Minningin um yndislega mann-
eskju mun lifa. Guð geymi ykkur
öll.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem)
Takk fyrir allt, elsku systir
mín, ég mun ávallt elska þig.
Sjáumst þótt síðar verði. Þín litla
systir og vinkona Stína Run.
Kristín H. Runólfsdóttir.
Dagmar Svala
Runólfsdóttir
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum.
Minningargreinar