Morgunblaðið - 30.04.2018, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 30.04.2018, Blaðsíða 32
 „Hjartað slær enn í Færeyjum“ er yfirskrift viðburðar sem fram fer í Borgarbókasafninu í Spönginni í dag kl. 17.15. Þar mun Sif Gunnarsdóttir reyna að útskýra hvers vegna hluti af hjarta hennar varð eftir í Færeyjum og af hverju henni finnst að allir verði betri menn af því að skreppa þangað í heimsókn. Sif er nýflutt heim eftir fimm ára dvöl í Færeyjum en þar stýrði hún Norræna húsinu í Færeyjum undan- farin ár en húsið er stærsta menningar- stofnun Færeyja og sinnir öllum tegundum lista og menningar. Hluti af hjartanu varð eftir í Færeyjum Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Mest ræktum við af rósum enda eru þær fallegar og standa fyrir sínu hvert sem tilefnið er. Hins vegar er vandasamt að rækta rósir og plönt- urnar eru frekar bæði á ljós og vatn,“ segir Axel Sæland, garð- yrkjubóndi á Espiflöt í Biskups- tungum. „Annars krefst öll ræktun natni og stöðugrar yfirlegu og þú þarft að fylgjast vel með nýjum stefnum og straumum því tískan í blómarækt breytist eins og í öðru. Mest seljum við frá janúar og fram í júní, og núna eru framundan mæðradagurinn og stúdentsút- skriftir sem eru miklir blómadagar.“ Í 150 litum Á morgun er opið hús í Espiflöt í tilefni af 70 ára afmæli garðyrkju- stöðvarinnar þar. Það var einmitt á þeim degi sem hjónin Eiríkur Sæ- land og Hulda kona hans fluttu aust- ur og komu þá til starfa á ræktunar- stöðinni á Stóra-Fljóti. Jafnhliða hófu þau undirbúning að eigin rekstri og settu sprota í mold, ef svo mætti segja. Þau stunduðu svo grænmetisrækt áratugum saman, en áherslubreytingar urðu þegar Sveinn og Stígur synir þeirra komu inn í reksturinn árið 1977. Sveinn og Áslaug Sveinbjarnardóttir kona hans tóku reksturinn svo alfarið yfir nokkrum árum síðar. Þau seldu meirihlutann svo til Axels sonar síns og Heiðu Pálrúnar Leifsdóttur konu hans fyrir fáum árum, en starfa áfram við stöðina. „Svigrúmið var í blómabúskapn- um sem við veðjuðum á. Það reynd- ist rétt ákvörðun og í dag erum við með 7.000 fermetra undir gleri,“ segir Sveinn um blómabúskapinn á Espiflöt og fjölbreytta flóruna þar. Á stöðinni eru ræktaðar ellefu teg- undir og má þar nefna auk rósanna gerberu, sólliljur, liljur í ýmsum af- ir minn byrjaði að rækta fallega blómstrandi plöntu og Jón Bjarna- son garðyrkjubóndi á Reykjum í Mosfellssveit að bjástra við það sama. Eitthvað varð afkvæmið að heita og Jón kom með tillögu um nafnið Ásta Sóllilja með vísan til sögupersónu í Sjálfstæðu fólki, skáldsögu Halldórs Laxness. Þetta styttist og plantan var einfaldlega kölluð sóllilja sem er bara ágætt,“ segir Sveinn og að lokum: Fallega blómstrandi „Aðferðir í ræktun hafa breyst á undanförnum árum, til dæmis er orðið mjög hverfandi að nota varn- arefni á plönturnar gegn til dæmis sjúkdómum og meindýrum. Núna stólum við á náttúrulegar varnir og þær gefast vel. Í garðyrkjunni er mikil framþróun eins og vel sést til dæmis á fagsýningum og víðar.“ Í heimkynnum sólliljunnar  Ræktað á Espi- flöt í Biskups- tungum í 70 ár Ljósmynd/Ívar Sæland Blómafólk Í gróðurhúsinu á Espiflöt í Reykholti í Biskupstungum. Frá vinstri: Sveinn Sæland og Áslaug Sveinbjarn- ardóttir og svo Axel Sæland og Heiða Pálrún Leifsdóttir en þau eiga nú meirihlutann í þessari gamalgrónu stöð. brigðum og chrysur. Litaafbrigðin eru um 150 og í dag nýtur blágræni liturinn nokkurra vinsælda meðal blómaunnenda. „Við höfum verið brautryðjendur í ýmsu hér á Espi- flöt. Það var í kringum 1970 sem fað- MÁNUDAGUR 30. APRÍL 120. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Hjón ættu að gera samning um … 2. Eyjamenn eru úr leik 3. Gögnin styrkja frásögn … 4. Ökumaðurinn er í lífshættu »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Hinn árlegi alþjóðlegi dagur djass- ins er í dag og af því tilefni mun Jazz- deild FÍH ásamt Jazzklúbbnum Múl- anum, Kex hosteli, Húrra og Bryggjunni brugghúsi standa fyrir tónlistardagskrá í Hörpu og á fleiri stöðum víða um höfuðborgina og þá stöðum sem bjóða upp á reglulega djasstónleika. Á Bryggjunni brugg- húsi mun Helgi Björns koma fram með djasskvartetti kl. 20 og á Kex hosteli kl. 20.30 mun Latínjazz- kvintett Tómasar R. Einarssonar leika fyrir gesti. Kl. 21 verða haldnir tón- leikar á Björtuloftum í Hörpu sem Jazzklúbburinn Múlinn stendur fyrir og kemur þar fram ASA tríó og á sama tíma hefst á Húrra við Tryggva- götu Mánudjass. Haldið upp á alþjóð- legan dag djassins Á þriðjudag Vestlæg eða breytileg átt, 5-10 m/s og dálítil él, en suðaustan 10-15 og rigning eða slydda á austanverðu landinu fram eftir degi. Hiti 1 til 6 stig, en víða næturfrost. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Dregur úr vindi og úrkomu, kólnar heldur og styttir víða upp, fyrst vestast. Stöku él vestantil í kvöld en áfram rigning suðaustanlands. VEÐUR „Þetta er draumur að verða að veruleika, að spila úr- slitaleik í Meistaradeild- inni,“ sagði Sara Björk Gunnarsdóttir í viðtali við Morgunblaðið, en hún verð- ur að öllum líkindum fyrst íslensks knattspyrnufólks til að spila úrslitaleik Meist- aradeildar Evrópu þegar Wolfsburg mætir Lyon í úr- slitaleik 24. maí. Wolfsburg sló Chelsea út af miklu ör- yggi. »1 Draumurinn að veruleika Sveinn Aron Guðjohnsen skoraði tvö mörk fyrir Breiðablik sem byrjaði Ís- landsmótið í knattspyrnu afar vel um helgina með því að vinna ÍBV, 4:1. Víkingur R. vann 1:0- sigur á Fylki í Reykjavíkurslag, FH vann einnig 1:0 gegn Grindavík suður með sjó en Fjölnir og KA gerðu 2:2-jafntefli í Egilshöll. »4 og 5 Sveinn Aron byrjaði mótið með látum „Ekki bætti úr skák að allir vafadóm- ar féllu með heimamönnum. Segja má að annað árið í röð hafi dómarar fallið á prófinu í Turda. Norskir frændur okkar stóðu ekki í lappirnar á lokakaflanum,“ segir Ívar Bene- diktsson meðal annars í grein frá Turda í Rúmeníu, þar sem ÍBV féll naumlega úr leik í Áskorendakeppni Evrópu í handbolta. »2 Annað árið í röð féllu dómararnir á prófinu ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Biskupstungur í Bláskógabyggð eru sveit blómanna og framleiðsla Espiflatarbænda fæst í söluskálum sveitarinnar og í flestum blóma- búðum landsins. Blómin þaðan prýða einnig gisti- og ferðaþjónustustaði um landið allt. „Svona spilar allt saman, hver atvinnugrein hér styður við aðra og úr verður blómstrandi sveit,“ segir Axel Sæland. Þannig er blómaræktin í Biskupstungum nokkuð umsvifamikil, á meðan til dæmis grænmetisrækt er í aðalhlutverki á Flúðum, sem eru í næstu sveit. Blómstrandi Biskupstungur GARÐYRKJUBÚSKAPUR VÍÐA Í UPPSVEITUM ÁRNESSÝSLU Blóm Sóllilja er falleg eins og nafnið ber með sér.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.