Morgunblaðið - 30.04.2018, Blaðsíða 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. APRÍL 2018
Nýr stór
humar
Opið virka daga 10.00 - 18.15 | laugardaga 11.00 - 15.00
Gnoðarvogi 44 | 104 Reykjavík | sími: 588 8686
Glæný lúða
Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði
fyrir þig til að taka með heim
Ný línuýsa
Klaustur-
bleikja
Benedikt Valsson fjölmiðlamaður á 30 ára afmæli í dag. Hanntók í byrjun apríl við spurningaþættinum Satt og logið sem ersýndur á Stöð 2. „Þetta er búin að vera skemmtileg vegferð og
skemmtilegur þáttur og virkilega gaman að vinna í honum. Það er
kominn nýr og ferskur kynnir, annars er þátturinn með frekar hefð-
bundnu sniði.“
Benedikt og Fannar Sveinsson sáu um Hraðfréttir á RÚV og unnu
síðast saman að þáttunum Hásetar, sem gáfu afar góða innsýn í líf sjó-
manna á frystitogurum. „Samband okkar Fannars er gott og við erum
alltaf í einhverjum pælingum og erum uppfullir af hugmyndum sem
er of snemmt að segja frá núna.“
Annars er Benedikt að skella sér í sumarfrí í tilefni afmælisins og
er á leiðinni til Ameríku með kærustunni sinni, Heiðu Björk Ingimars-
dóttur danskennara. „Ég fór í vikunni á Liverpool-Roma, það var smá
afmælishopp en svo ætlum að skella okkur til Washington og við ætl-
um jafnvel að henda okkur eitthvað sunnar, jafnvel til Bahamaeyja.
Fá sól í hjartað.“ Benedikt var þó ekki búinn að ákveða hvað hann
ætlaði að gera í dag þegar blaðamaður ræddi við hann fyrir helgi.
„Ég er enginn brjálaður afmæliskall þannig að ég er ekkert að stressa
mig á því hvað ég mun gera og leyfi þessu að ráðast. En ég hlýt að
henda í góðan dinner.“
Hvað um áhugamál? „Ég nýt þess að vera í kringum vini mína og
fjölskyldu. Við vinirnir úr Verzló hittumst alltaf alla fimmtudaga sem
er mikilvægur partur af vikunni, spilum fótbolta og kíkjum í bæinn.
Annars finnst mér notalegt að grípa í playstation eða netflix. Þegar
sólin hækkar á lofti hendist ég í folf. Gríðarlega gott hobbí sem tekur
stuttan tíma, auðvelt að spjalla og jafnvel fá sér einn kaldan drykk
með.“
Þáttastjórnandi Benedikt í settinu í spurningaþættinum Satt og logið.
Í frí til Washington
og í Karíbahafið
Benedikt Valsson er þrítugur í dag
G
uðbrandur Brynjúlfsson
fæddist 30. apríl 1948
á Hrafnkelsstöðum á
Mýrum og ólst þar upp
til átta ára aldurs og
síðan á Brúarlandi.
Hann var í Barnaskólanum á
Varmalandi, lauk landsprófi frá
Unglingaskólanum í Borgarnesi,
stundaði nám við Bændaskólann á
Hvanneyri og lauk þaðan prófum
sem búfræðingur 1966, stundaði
nám við KÍ í einn vetur og lauk síð-
an búfræðikandidatsprófi frá
Hvanneyri 1971.
Guðbrandur stundaði öll almenn
sveitastörf á Brúarlandi á unglings-
árum, tók þar við búskap ásamt
tveimur bræðra sinna 1973, stund-
aði félagsbúskap með öðrum þeirra
til 1975 og bjó á móti hinum þar til
Guðbrandur Brynjúlfsson, bóndi og form. Landgræðslusj. – 70 ára
Með sonunum Guðbrandur, Snjólaug, Brynjúlfur, bóndi á Brúarlandi, og Guðmundur Ingi umhverfisráðherra.
Skógræktaráhuginn kom
með móðurmjólkinni
Á Brúarlandi Guðbrandur og Þuríður Yngvadóttir við undirritun samnings
milli Landgræðslusjóðs og Skógræktarfélags Mosfellsbæjar um ræktun
landgræðsluskógar í Mosfellsdal með stuðningi sjóðsins.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða
mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í
einn mánuð.
Hægt er að senda mynd
og texta af slóðinnimbl.
is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Á „Íslendinga“ síðum
Morgunblaðsins er
meðal annars sagt frá
merkum viðburðum
í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum,
barnsfæðingum
eða öðrum
tímamótum.