Morgunblaðið - 30.04.2018, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. APRÍL 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
inganna árið 1990 og hins vegar á
tímabilinu eftir þá sem enn stendur.
Hann segir einfalt að bera þessi tvö
tímabil saman. Fyrra tímabilið hafi
einkennst af ólgu og átökum þar
sem verðbólga lék aðalhlutverk í af-
komu fólks og starfsskilyrðum at-
vinnulífsins. Kjörin stóðu nánast í
stað eða versnuðu þrátt fyrir miklar
prósentuhækkanir launa. Á seinna
tímabilinu er stöðugleiki og lítil
verðbólga í fyrirrúmi. Lífskjör hafi
batnað umtalsvert á seinna tíma-
bilinu.
Nýir forystumenn í verkalýðs-
félögum eru herskárri en þeir sem
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Forseti Alþýðusambands Íslands
(ASÍ) segir að verkalýðshreyfingin
þurfi að ræða opinskátt og komast
að niðurstöðu um það hvort fylgja
eigi sömu kjarastefnu og verið hefur
eða hverfa aftur til stefnunnar sem
var fyrir þjóðarsáttarsamningana
árið 1990.
Í 1. maí ávarpi í veftímariti ASÍ,
Vinnunni, segir Gylfi Arnbjörnsson
frá sinni sýn á kjarabaráttu síðustu
áratuga; annars vegar á þrjátíu ára
tímabili fram til þjóðarsáttarsamn-
fyrir eru. Gylfi
segir í samtali við
Morgunblaðið að
hreyfingin verði
að ræða það opin-
skátt í aðdrag-
anda ASÍ-þings,
á þinginu sjálfu
og í aðildarfélög-
unum og komast
að niðurstöðu um
það hvaða kjara-
stefna eigi að vera ríkjandi. Það
kunni að vera að hreyfingin vilji fara
til baka, til fyrri tíma. Opinská um-
ræða sé hins vegar nauðsynleg til
þess að hreyfingin hrekist ekki
þangað vegna einhverra annarra
ástæðna en uppgjörs við stefnuna og
nefnir reiði þeirra lægstlaunuðu sem
dæmi um það.
Réttmæt reiði
Gylfi bendir á að þrátt fyrir að
tekist hafi að hækka lægstu laun um
36% meira en almenn laun í landinu
frá aldamótum ríki reiði í röðum
þeirra tekjulægstu. Hann segir að
það sé réttmæt reiði. Í pistlinum í
Vinnunni segir hann að hún sé eðli-
leg viðbrögð við aðgerðum eða að-
gerðaleysi stjórnvalda. Hann nefnir
að stjórnvöld hafi tekið ávinninginn
af mikilli hækkun lægstu launa af
með skerðingu barna- og húsnæðis-
bóta. Á sama tíma hafi stjórnvöld
lækkað skatta á þá efnameiri og
leyft kjararáði að hækka laun þing-
manna og æðstu embættismanna
langt umfram það sem almennt hef-
ur verið samið um.
„Ég tel afar mikilvægt að sam-
einuð verkalýðshreyfing bregðist
mjög hart við þessu og sameinist í
baráttunni gegn óréttlætinu sem op-
inberast í þessum gjörningum,“
skrifar forseti Alþýðusambands Ís-
lands.
Ræða þarf opinskátt um kjarastefnu
Forseti ASÍ segir að kjarastefnan sem fylgt hefur verið hafi skilað betri árangri en gömlu aðferðirnar
Gylfi
Arnbjörnsson
„Ég held að það séu 13 eða 14 svona
hjól á landinu, þau eru ekki mörg,“
segir Snorri Hrafn Finnsson (t.h.),
félagi í vélhjólaklúbbnum Víkingar
MC, sem var ásamt þeim Matta (t.v.)
og Þórarni Inga að dytta að bif-
hjólum í húsakynnum klúbbsins er
ljósmyndara Morgunblaðsins bar
að garði í gær. Hjólið sem um ræðir
er rússneskt Ural-hjól með hliðar-
vagni, sem Snorri á ásamt þremur
öðrum.
Þeir félagar voru að undirbúa
hjólin sín fyrir árlega hópkeyrslu
bifhjólafólks, sem Sniglarnir hafa
staðið fyrir undanfarna áratugi 1.
maí, til þess að minna aðra á tilvist
sína í umferðinni í upphafi sumars.
Alla jafna taka hátt í þúsund manns
þátt í keyrslunni.
„Það verður byrjað á Laugaveg-
inum, svo verður keyrt eitthvað
vestur í bæ og endað hjá Bauhaus.
Planið er að fara af stað klukkan
13.00,“ segir Snorri og mælist til
þess að þeir sem verði með bíla sína
í stæðum á Laugaveginum forði
þeim þaðan áður en keyrslan hefst.
Annars eigi þeir á hættu að verða
innilokaðir í bílastæðum sínum um
nokkra hríð. athi@mbl.is
Vélhjólamenn setja fákana í stand fyrir árlega hópkeyrslu bifhjólafólks 1. maí
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Græja hjólin
fyrir stærstu
keyrsluna
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Rekstur gistiþáttar væntanlegs sjúkrahótels
á Landspítalalóðinni við Hringbraut hefur
ekki verið boðinn út til einkaaðila. Vegna
dráttar á framkvæmdum hefur ekki verið
hægt að taka bygginguna í notkun en Nýr
Landspítali miðar við að afhenda spítalanum
mannvirkið í byrjun júlí. Ef það stenst og
ætlunin er að taka sjúkrahótelið strax í
notkun má útboð ekki dragast.
Deildar meiningar hafa verið um það
hvaða rekstarform sé heppilegast fyrir
sjúkrahótelið. Kom það meðal annars fram í
niðurstöðum starfshóps sem heilbrigðisráðu-
neytið skipaði til að skoða mismunandi
rekstrarform. Þau sjónarmið komu fram að
rekstri hótelsins væri best fyrir komið hjá
Landspítala. Einnig að betra væri að bjóða
reksturinn út að hluta eða öllu leyti eins og
algengt er með sjúkrahótel við spítala er-
lendis. Niðurstaða ráðuneytisins, á meðan
Óttarr Proppé var heilbrigðisráðherra, var
að bjóða rekstur hótelsins út. Landspítalinn
mun hins vegar annast hjúkrunarþáttinn.
Benedikt Olgeirsson, framkvæmdastjóri
þróunar á Landspítalanum, segir að unnið
sé að undirbúningi útboðs á hótelrekstr-
inum. Mikilvæg forsenda sé að hafa dag-
setningu á því hvenær rekstraraðili geti haf-
ið rekstur. Stilla þurfi útboðið saman við
verklok. Framkvæmdir við húsið hafi dreg-
ist og enn sé beðið eftir nákvæmri áætlun
um afhendingu.
Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri
Nýs Landspítala ohf. sem annast nýfram-
kvæmdir á Landspítalalóð, segir að húsið sé
nær fullbúið að innan. Framkvæmdir við
klæðningu hafi hins vegar dregist. Gunnar
segir að endanleg tímasetning á afhendingu
hótelsins ráðist af framvindunni hjá verk-
takanum. Samkvæmt upplýsingum hans sé
stefnt að skilum í júnímánuði. Byrjað sé á
nauðsynlegum úttektum og vonast hann til
að þeim ljúki að fullu í byrjun júlí. Húsið
verður afhent með húsbúnaði eins og rúm-
um, öðrum húsgögnum og eldhústækjum.
Sýna áhuga á rekstrinum
Benedikt hafði ekki tiltækar upplýsingar
um það hvort rekstur hótelsins yrði boðinn
út á Evrópska efnahagssvæðinu. Vitað er að
erlendir aðilar hafa sýnt verkefninu áhuga
auk rekstrarfélaga hótela og sjúkrahótels
hér á landi. Hann telur ekki að spítalinn sé
að falla á tíma með útboðið. Eftir að húsið
fæst afhent þurfi að ganga frá lausum bún-
aði og það taki einhvern tíma.
Ef útboðið verður auglýst á Evrópska
efnhagssvæðinu má búast við að ferlið frá
auglýsingu til samnings taki rúma tvo mán-
uði. Ef spítalinn fær húsið afhent í byrjun
júlí og ætlar að koma því strax í notkun er
ekki eftir neinu að bíða með að auglýsa út-
boðið.
Beðið með útboð hótelrekstrar
Vegna seinkunar framkvæmda hefur Landspítalinn enn ekki boðið út gistirekstur nýs sjúkrahótels
Tíminn orðinn naumur ef áætlun verktaka um afhendingu hússins og lok úttekta í byrjun júlí stenst
Ljósmynd/Nýr Landspítali ohf.
Sjúkrahótel Nýja hótelið verður á Landspítalalóðinni við Hringbraut. Það er enn ófrágengið
að utan en framkvæmdum er að mestu lokið að innan og búið að kaupa flesta innanstokksmuni.