Morgunblaðið - 23.05.2018, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.05.2018, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 3. M A Í 2 0 1 8 Stofnað 1913  119. tölublað  106. árgangur  VERKEFNIÐ MENNINGARMÓT - FLJÚGANDI TEPPI JOHN CLEESE ER ENN Í FULLU FJÖRI VERÐLAUNUÐ FYRIR REIÐMENNSKU OG REIÐKENNSLU GRÍNAST Í HÖRPU 41 KLARA SVEINBJÖRNSDÓTTIR 10KRISTÍN R. VILHJÁLMSDÓTTIR 12 Guðmundur Magnússon Guðrún Erlingsdóttir Framsóknarflokkurinn og Sósíalista- flokkurinn fá hvor einn fulltrúa í borg- arstjórn Reykjavíkur samkvæmt nýrri skoðanakönnun Félagsvísindastofnun- ar fyrir Morgunblaðið. Samtals fá 8 af 16 listum sem eru í framboði fulltrúa kjörna. Núverandi meirihluti Samfylk- ingarinnar, Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og Pírata heldur velli með 12 borgarfulltrúa af 23 og 47,2% atkvæða. Samfylkingin er stærsti flokkurinn með tæplega 32% atkvæða. Sjálfstæð- isflokkurinn nýtur fylgis rúmlega 26% kjósenda. Sérfræðingar Félagsvísindastofn- unar segja að verði fylgi framboðslist- anna í kosningunum á laugardaginn hið sama og er í þessari könnun verði fyrsti maður á lista Framsóknar- flokksins síðasti borgarfulltrúi inn, en næsti maður inn níundi maður Sam- fylkingarinnar. Í könnuninni voru þátttakendur einnig spurðir hvern þeir vildu sem næsta borgarstjóra í Reykjavík. Flest- ir, eða 43,5%, nefndu Dag B. Eggerts- son. Eyþór Arnalds nefndu 29,4% og Vigdísi Hauksdóttur 8,5%. Oddvitar flokkanna sem taka sæti í borgarstjórn samkvæmt nýjustu skoð- anakönnun sem Félagsvísindastofnun framkvæmdi fyrir Morgunblaðið eru ánægðir með niðurstöðurnar. Ýmist fagna þeir auknum stuðningi eða telja sig eiga meira inni. Dagur B. Eggertsson er ánægður með meðbyrinn og telur að framtíðar- sýn flokksins hafi hljómgrunn meðal borgarbúa. Eyþór Arnalds segir stöð- una flóknari en áður en er jákvæður um betra gengi á kjördag. Sósíalistar segja það frábært að ná manni inn í borgarstjórn og þau setji markið hærra. Framsóknarflokkurinn ætlar að fljúga hátt en lenda mjúkt á kjör- dag. Vinstri græn segjast vera á réttri leið en þurfa stuðning til að gera enn betur. Píratar ætla að nota síðustu dagana til þess að bæta við sig fylgi. Miðflokkurinn vonast til þess að ná inn fjórum mönnum þrátt fyrir að fá að- eins einn í skoðanakönnuninni og Við- reisn segist eiga heilmikið inni og mæta tilbúin til setu í borgarstjórn. Framsóknarflokkur og Sósíalista- flokkur mælast með mann inni  8 framboð fá fulltrúa kjörna í borgarstjórn  Samfylkingin með tæp 32% og flesta fulltrúa  Flestir vilja Dag áfram í embætti borgarstjóra B 3,6% C 4,9% D 26,3% F 3,4% J 3,9% M 6,5% P 8,0% S 31,8% V 7,4% Fylgi flokkanna í Reykjavík 1 1 7 1 0 2 1 8 2 Fjöldi borgarfulltrúa samkvæmt könnun Aðrir flokkar og framboð 4,2% MFulltrúar 8 framboða ná kjöri »6 Kjósarhreppur fær ekki leyfi Reykja- víkurborgar til að fara um land hennar á Kjalarnesi til að tengja ljósleiðarakerfi sveitarfélagsins við ljósleiðara í næstu símstöð. Rör hafa verið lögð heim á alla bæi og í mörg sumarhús og ljósleiðara- efnið bíður í geymslu. Á meðan for- ystumenn sveitarfélaganna deila þurfa íbúar og sumargestir í Kjósinni að bíða með lélegt eða ekkert netsamband og GSM-síma og lélegt sjónvarpsmerki. „Við stjórnendur sveitarfélagsins fáum gagnrýni fyrir þessa stöðu. Við stóðum hins vegar í þeirri trú að það væri sjálf- sagt mál að fara þarna niður eftir og leyfa íbúum á leiðinni að njóta þess,“ segir Guðný G. Ívarsdóttir sveitarstjóri. Til þess að fá leyfi eigenda einkalands sem fara þarf yfir hefur Kjósarhreppur hug á því að bjóða þeim að tengjast net- inu á sömu kjörum og íbúar Kjósar- hrepps. Borgin vill hins vegar ekki kljúfa bæina frá við útboð á lagningu ljósleið- ara í dreifbýli á landi Reykjavíkur- borgar. » 11 Borgin hindr- ar ljós í Kjós  Lagabreytingar verða ekki gerðar í sumar um greiðslu löggæslukostnaðar vegna bæjarhátíða og krafna um tæki- færisleyfi vegna útihátíða. Til stóð að fleiri aðilar en áður yrðu krafðir um greiðslu kostnaðar við lög- gæslu, en umræddir aðilar hafa hingað til verið undanþegnir kostnaðinum, t.d. bæjarhátíðir, íþróttaviðburðir, skóladans- leikir og tjaldsamkomur. Í greinargerð með frumvarpsdrögum segir að samfélagið hafi breyst á síðustu árum, rétt sé að endurmeta fyrirkomulag- ið núna og víkka út þá viðburði sem falli undir ákvæði sem gerir kröfu um tæki- færisleyfi vegna viðburða. Deilt hefur ver- ið um kostnað vegna bæjarhátíða í stjórn- sýslunni. »14 Þurfa ekki að greiða löggæslukostnaðinn Það er óhætt að segja að sumarið láti bíða eftir sér og suma daga ríkir á landinu sumar, vetur, vor og haust. Landinn er orðinn langeygur eft- ir betra veðri, en virðist þurfa að bíða eitthvað lengur samkvæmt veðurspánni. Haraldur Eiríksson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir að útlit verði fyrir þokkalegasta veður á morgun en rigning, væta eða skúrir verði á fimmtudag. Á föstu- dag verði skúraleiðingar en þurrt og bjart á Norður- og Austurlandi. Enn eru þrír dagar í að landsmenn gangi að kjörborðinu. Eins og veðurspáin lítur út í dag má búast við sunnanátt og rigningu, aðallega fyrri part dags, en síðdegis gæti gert þokka- legasta veður að sögn Haraldar, sem telur að miðað við spána eigi veður ekki að hamla flutningi kjörgagna milli talningarstaða. Vel klæddar á röltinu á meðan beðið er eftir sumrinu Morgunblaðið/Eggert Sumar, vetur, vor og haust

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.