Morgunblaðið - 23.05.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.05.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2018 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Vonandi get ég komið mér upp góðri aðstöðu, fengið að keppa á góð- um hestum og ég mun einnig reyna að koma mér upp samböndum er- lendis til að geta kennt þar,“ segir Klara Sveinbjörnsdóttir, hesta- stúlka úr Borgarfirði, sem fékk af- hent helstu verðlaun útskriftarnema í reiðmennsku og reiðkennslu á ár- legri reiðsýningu Hólanema um helgina. Reiðsýningin er hápunktur loka- dagskrár hjá BS-nemum í þriggja ára námi í reiðmennsku og reið- kennslu en þeir hafa lokið öllum sín- um prófum og bíða formlegrar brautskráningar frá Háskólanum á Hólum í byrjun næsta mánaðar. Í lok sýningar færði Siguroddur Pétursson, varaformaður Félags tamningamanna, nemana í einkenn- isjakka tamningamanna en hann er blár með rauðum kraga. Klara fékk viðurkenningu fyrir bestan árangur í lokaprófi í reið- mennsku og einnig verðlaunagripinn Morgunblaðshnakkinn, sem veittur er fyrir bestan heildarárangur í öll- um reiðmennskugreinum í náminu. Skemmtilegt og fræðandi „Þetta hefur verið stefnan frá því ég man eftir mér,“ segir Klara þegar hún er spurð hvort hún hafi lengi haft hug á að útskrifast sem reið- kennari. Hún hefur verið í hesta- mennsku frá því hún var barn. „Pabbi hefur mikinn áhuga á hestum og mamma hefur líka tekið þátt í þessu áhugamáli með okkur. Svo á ég líka vinkonu sem er í hesta- mennsku, Sigrúnu Rós Helgadóttur frá Mið-Fossum, en hún útskrifaðist með mér. Ég var mikið heima hjá henni,“ segir Klara. Sjálf hefur hún keppt á landsmótum hestamanna frá því hún var tólf ára. Foreldrar Klöru eru Sveinbjörn Eyjólfsson og Inga Vildís Bjarnadóttir á Hvannatúni á Hvanneyri. Námið á Hólum er bæði skemmti- legt og fræðandi, að sögn Klöru. Á fyrsta árinu er grunnurinn lagður, hvernig á að sitja hest og þess hátt- ar. Á öðru árinu er frumtamning, kennt hvernig eigi að temja trippi. Á þriðja árinu er reiðkennsla og þjálf- un á tömdum hestum fyrirferðar- mest, kennt hvernig á að undirbúa hesta fyrir keppni og kynbótasýn- ingu. Byggja sig upp að nýju Klara segir að nemendur verði eiginlega að gleyma öllu sem þeir kunna fyrir og byggja sig upp að nýju. Það kalli á mikla sjálfsskoðun sem reyni mjög á nemendur. Ekki geti allir aðlagast nýjum vinnu- brögðum og hætti námi. „Þegar maður er farinn frá Hólum getur maður síðan valið það sem maður vill nota og hvað ekki,“ segir Klara. Hún tekur fram að góð reynsla sé að fara í gegnum þetta nám, reiðkennar- arnir séu góðir og hún geti mælt með þessu námi við hvern sem er. Langar til að kenna erlendis  Klara Sveinbjörnsdóttir sópaði að sér verðlaunum í reiðkennaranámi á Hólum Fjölskyldan Klara á hestinum með foreldrum sínum, Sveinbirni Eyjólfssyni og Ingu Vildísi Bjarnadóttur. Svein- björn heldur á Morgunblaðshnakknum og Vildís á verðlaunum Félags tamningamanna. GÓÐ HEYRN GLÆÐIR SAMSKIPTI! Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel vegna þess að þau þekkja tal betur en önnur tæki. Tæknin sem þekkir tal Nýju ReSound LiNX 3D eru framúrskarandi heyrnartæki ReSound LiNX3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.