Morgunblaðið - 23.05.2018, Side 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2018
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds
Lífrænar
mjólkurvörur
• Engin aukaefni
• Meira af Omega-3
fitusýrum
• Meira er af CLA
fitusýrum sem byggja
upp vöðva og bein
• Ekkert undanrennuduft
• Án manngerðra
transfitusýra
www.biobu.is
Hindberjajógúrt
Fimm góðar ástæður til að velja lífræna jógúrt
Styrkjum úr Menningarsjóði Gunn-
arsstofnunar var úthlutað í þriðja
sinn sl. laugardag og fór athöfnin
fram á Skriðuklaustri. Í máli Bjarna
Benediktssonar fjármálaráðherra,
sem viðstaddur var úthlutunina, kom
fram að ríkisstjórn Íslands hefði sam-
þykkt að auka stofnfé sjóðsins með
16,5 milljóna króna framlagi, sem
þýddi að rúmar 60 milljónir króna
væru í sjóðnum til ávöxtunar.
Helgi Gíslason, formaður sjóðs-
stjórnar, sagði að í ljósi viðbótar-
framlags ríkisins hefði sjóðsstjórn
ákveðið að hafa 1,5 milljónir króna til
úthlutunar í ár. Metnaðarfullar um-
sóknir hefðu borist og alls verið sótt
um 6,7 milljónir króna. Stjórnin
ákvað að veita sex verkefnum styrki.
Hæsta styrkinn hlutu Sigurjón Pét-
ursson og Þóra Hrönn Njálsdóttir til
ljósmyndaverkefnis um Svartfugl,
skáldsögu Gunnars um morðin á Sjö-
undá, en þau hafa áður unnið verkefni
út frá Aðventu. Næsthæsta styrkinn,
300 þúsund krónur, fengu Berta
Dröfn Ómarsdóttir og Þorvaldur
Daði Kristjánsson til flutnings og
vinnustofu á Austurlandi vegna óp-
erunnar Raven’s Kiss. Þrjú verkefni
fengu 200 þúsund króna styrk og eitt
150 þúsund krónur.
Ljósmynd/SBG
Úthlutun Efri röð f.v.: Helgi Gíslason, formaður sjóðsstjórnar, Sigurjón
Pétursson, Sigríður Sigmundsdóttir stjórnarmaður, Bjarni Þór Haraldsson
og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. Fremri röð f.v.: Þorvaldur Davíð
Kristjánsson, Ólafía Herborg Jóhannsdóttir og Ívar Andri Bjarnason.
Sex styrkir og aukið fé
Þeir tíu sem enn sitja í Sænsku aka-
demíunni (SA) hyggjast velja inn
fjóra nýja meðlimi fyrir maílok.
Þetta hefur sænska dagblaðið
Expressen eftir
Göran Malm-
qvist. Í seinasta
mánuði hættu
alls sex meðlimir
vegna ósættis um
hvernig tekið var
á málefnum
Jean-Claude
Arnault, en áður
höfðu tveir með-
limir dregið sig út úr störfum SA.
Frá stofnun SA 1786 hefur þurft
12 atkvæði sitjandi meðlima til að
taka allar meiriháttar ákvarðanir,
s.s. að velja inn nýja meðlimi og
verðlaunahafa. Fyrr í mánuðinum
breytti Karl XVI. Gústaf Svíakon-
ungur og verndari SA stofnsátt-
mála SA með konunglegri til-
skipun. Breytingin felur m.a. í sér
að meðlimir geta nú hætt, en áður
voru þeir skipaðir til æviloka.
Í fréttatilkynningu frá SA kemur
fram að Lotta Lotass, Kerstin Ek-
man, Sara Stridsberg og Klas Ös-
tergren hafi formlega óskað eftir
því að yfirgefa SA til frambúðar og
það eru stólar þeirra sem ætlunin
er að fylla fyrir mánaðamótin
næstu. SA fundar ávallt á fimmtu-
dögum og því aðeins tveir fundir til
stefnu. Sara Danius, Katarina Fros-
tenson, Peter Englund og Kjell
Espmark hafa dregið sig út úr
störfum SA, en ekki óskað form-
lega eftir því að hætta. Anders Ols-
son, starfandi ritari SA, segist
binda vonir við að þau snúi aftur til
starfa.
„Við þurfum hæfan lögfræðing
og rithöfunda,“ segir Malmqvist, en
samkvæmt sænskum fjölmiðlum er
búið að setja saman lista yfir tíu
einstaklinga sem koma til greina.
Þeirra á meðal eru rithöfundarnir
Lars Nóren, Lena Andersson, Malte
Persson, Jerker Virdborg og Ellen
Mattson. Að sögn Kristinu Lugn
þurfa meðlimir að vera vel máli
farnir bæði í ræðu og riti. „Helst að
kunna fleiri erlend mál en ensku.
Tilbúin að fórna tíma sínum á
kostnað eigin skapandi starfa,“ hef-
ur Sydsvenskan eftir Lugn.
„Það er augljóst að SA þarf að
breyta starfsháttum sínum. Krísan
sem SA hefur gengið í gegnum er
mjög alvarleg,“ segir Olsson.
silja@mbl.is
Hyggjast skipa nýja meðlimi fyrir maílok
Anders Olsson
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Íslensk ástarljóð á vorkvöldi er
yfirskrift tónleika sem Hamra-
hlíðarkórinn heldur í Ásmundar-
safni við Sigtún í
kvöld, miðviku-
dag, kl. 20 undir
stjórn Þorgerðar
Ingólfsdóttur.
„Ég hef þekkt
Þorgerði í langan
tíma og ber mikla
virðingu fyrir
henni og hennar
frábæra starfi.
Þegar hún kallar
hlýðir maður því
kalli,“ segir Páll Valsson rithöf-
undur, sem þekkir Þorgerði bæði
sem stjórnanda og samkennara, en
á menntaskólaárum sínum söng
hann með kórnum og síðar kenndi
hann íslensku við Menntaskólann
við Hamrahlíð.
„Við gerðum sams konar pró-
gramm árið 2007 um Jónas Hall-
grímsson sem tókst ljómandi vel,“
rifjar Páll upp, en á tónleikum
kvöldsins mun hann kynna skáldin
og ljóðin, sem eru frá ólíkum tím-
um, allt frá 14. öld fram til okkar
daga. Tónlistin við ljóðin er öll ís-
lensk, þjóðlög og tónsmíðar.
Snýst um að tjá
hið ósegjanlega
„Þarna eru skáld eins og Jónas
Hallgrímsson, Bjarni Thorarensen,
Stefán Ólafsson, Steinn Steinarr,
Davíð Stefánsson, Páll Vídalín og
Halldór Laxness, þannig að það er
af heilmiklu að taka. Svo eru þetta
stórkostlega falleg lög eftir tónskáld
á borð við Atla Heimi Sveinsson,
Hróðmar Inga Sigurbjörnsson, Jón
Ásgeirsson, Jón Þórarinsson, Pál
Ísólfsson, Snorra Sigfús Birgisson
og Hjálmar Ragnarsson. Þetta
verður mikil unaðsstund þar sem
ástin svífur yfir vötnum.“
Páll þekkir ljóðformið vel enda
hefur hann í gegnum tíðina ritstýrt
mögum ljóðasöfnum og skrifað um
ljóðskáld. „Þegar best lætur slær
ekkert út ljóðformið. Ég held að öll
skáld dreymi um að yrkja ljóð, enda
er þetta hið fullkomna form til að
tjá tilfinningar.“ Spurður hvers
vegna ljóðaformið henti vel til að tjá
ástina bendir Páll á að ástin, jafnt
og aðrar tilfinningar, sé abstrakt
rétt eins og ljóðið. „Ástin er, eins og
aðrar tilfinningar, ekki rökleg held-
ur abstrakt. Sama gildir um ljóðið. Í
raun má segja að þetta snúist um að
segja hið ósegjanlega og þar hefur
ljóðið ákveðna yfirburði eða for-
skot.“
Samkvæmt upplýsingum frá Ás-
mundarsafni eru tónleikarnir liður í
hátíðarhöldum safnsins í tilefni þess
að 125 ár eru liðin frá fæðingu Ás-
mundar Sveinssonar myndhöggv-
ara. „Þetta eru mögnuð salarkynni
og ég ímynda mér að list Ásmundar
auki á dulúðina og stemninguna á
tónleikunum,“ segir Páll. Þess má
að lokum geta að aðgangur að tón-
leikunum er ókeypis.
„Þetta verður
mikil unaðsstund“
Hamrahlíðarkórinn syngur íslensk ástarljóð á vorkvöldi
í Ásmundarsafni 125 ár liðin frá fæðingu Ásmundar
Hæfileikafólk Hamrahlíðarkórinn syngur undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur í kvöld.
Páll
Valsson