Morgunblaðið - 23.05.2018, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 23.05.2018, Qupperneq 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2018 og magafylli fyrir austan á milli þess sem við riðum út með hon- um og fleiri gleðigjöfum á Hér- aði. Síðan var riðið norður aftur, en í stað öræfanna á austurleið- inni var þrædd gamla þjóðleiðin á heimleiðinni. Það var sama hvar við áðum, alls staðar var okkur tekið sem höfðingjum. Meistari Egilsen var vel kynntur og aufúsugestur á hverjum bæ. Nú hefur hann lagt á gæðing sinn og ríður á góð- gangi inn í sumarlandið. Það glittir í tóbakspontu í hendi og Grundarvatn í vasa. Góða ferð, gæskur. Gísli Sigurgeirsson. Hann hringdi gjarnan seint á kvöldin þegar ys dagsins hafði hljóðnað og okkur gafst tími til að spjalla. Um allt og ekkert, gaml- ar samverustundir og samtíma- atburði, einnig það sem fram undan var. Um vini okkar sem hann sá ætíð í því spaugilega ljósi sem var svo ríkur þáttur í fari hans. Engan mann hef ég þekkt sem hafði jafnsterka nærveru í símtali, sér í lagi þegar hláturinn yfirbugaði hann. Þá var eins og hann sæti andspænis mér við eld- húsborð en ekki í nokkur hundr- uð kílómetra fjarlægð. Ætíð gaf hann mér meira en ég gat nokkru sinni endurgoldið. Sömu sögu hafa áreiðanlega flestir vina hans að segja. Gunnar Egilson var ein- faldlega þannig maður. Minningar blika, stjörnur á næturhimni. Atvik í hestaferð lýsir ódrepandi jákvæðni og hug- arró Gunnars. Hann átti öflugan hest, töluvert erfiðan sá var reyndar tekinn að reskjast er hér var komið. Í forreiðinni heyrðum við kunnuglegt fnæs að baki okk- ar og litlu síðar fór sá bleikálótti fram úr okkur á stökki. Ég náði að kalla til Gunnars og spyrja hvort það yrði í lagi með hann. Já allt í himnalagi, sagði hann, Lyk- ill rýkur ekki nærri því eins hratt og hann gerði í gamla daga! Gunnar var nautnamaður á neftóbak og ölkær í betra lagi en fór vel með hið síðarnefnda svo að sjaldan sá á honum vín. En aldur og ósérhlífni í hversdags- striti tóku sinn toll og undanfarin ár hefur líkaminn tæplega haldið í við hugann. Síðasta og mesta höggið var Gunnari greitt í mynd heilablæðingar sem flæddi á augabragði yfir hugarlendur hans og slökkti tveimur dögum síðar á lífsandanum. Líklega hefði hann sjálfur kosið að kveðja einmitt þannig, snögglega og án málalenginga, en við sem eftir sitjum hefðum í sjálfselsku okkar sannarlega viljað hafa hann miklu lengur hjá okkur. En að því kemur að við hittumst öll aft- ur og þá verður haldið í hesta- ferðalag. Án tilgreinds áfanga- staðar eða lokadags en ég verð illa svikinn ef leiðin minnir ekki meira en lítið á ávöl og algróin heiðalönd Þingeyjarsýslu. Þá má treysta því að Gunnar Egilson mun gera það sem honum fór alltaf best. Að sitja hest sinn keikur og ausa af tilgerðarlausu örlæti úr Grundarvatns- og gleði- brunni sínum. Og láta dægrin ljóma. Ari J. Jóhannesson. Fáeinum dögum eftir að við fluttumst til Egilsstaða 1972 rák- umst við á Gunnar Egilson þar sem hann kom ríðandi á Gusti sínum eftir Egilsstaðanesinu. Var þetta upphafið að afar sterk- um vináttuböndum með fjöl- skyldum okkar sem haldist hafa æ síðan. Við hjónin bjuggum á Egils- stöðum í nokkur ár og urðum strax heimagangar á heimili þeirra Gunnars og Auðar. Fjöl- skylda þeirra bauð okkur að vera með þeim á þeirra helgustu stundum og um jól og áramót vorum við mikið hjá þeim. Var það afar vel þegið af okkur sem áttum enga ættingja á Héraði og urðu þau strax okkar fjölskylda. Á Egilsstöðum stóð heimili þeirra alltaf opið öllum og líklega hefur húsinu aldrei verið læst á meðan þau bjuggu þar. Gunnar var mikill selskapsmaður og gleðigjafi og sóttist fólk eftir nærveru hans. Á Egilsstöðum höguðu forlögin því þannig að um nokkuð langt skeið stóð hann vaktina sem flugumferðarstjóri alla daga ársins. Í dag þætti slíkt vinnuálag ekki boðlegt. En af trúmennsku vann hann allan sól- arhringinn ef því var að skipta. Ef stund gafst skaust hann á hestbak og stundum mátti sjá hann og Ingimar vin hans á Eg- ilsstöðum leggja af stað í reiðtúr undir miðnætti. Ári eftir að við fluttumst í Eyjafjörð fluttu Gunnar og fjöl- skylda til Akureyrar og skömmu síðar að Grund í Eyjafirði. Með kaupum Gunnars og Auðar á Grund jukust umsvif Gunnars í hestamennsku til muna. Var hann afar stoltur og glaður að hafa náð að festa sér Grund. Þó svo að ein fegursta sveitakirkja landsins stæði við hliðina á íbúð- arhúsi þeirra var Gunnar ekki mikið að ónáða sig við að sækja kirkju. Þrátt fyrir þetta bar hann hlýjan hug til kirkjunnar sem hann sýndi í verki þegar þess þurfti með. Gunnar var mikill sögumaður og kunni ógrynni af gamansögum af Héraði. Eftir að við hjónin fluttum til Reykjavíkur hringd- umst við oft á og yfirleitt leiddist samtalið að því að Gunnar rifjaði upp góðar sögur frá Egilsstaða- dvöl okkar. Ef við spurðum um snjóalög á Grund harðneitaði hann ævinlega að nokkur snjór væri sjáanlegur, aðeins græn tún. Gunnar var afar orðheppinn og eru margar tilvitnanir í hann fleygar í vinahópi þeirra hjóna. Þá var einn eiginleiki sem fylgdi Gunnari, en það var glópalánið sem hann kallaði svo. Þetta glópalán var einstakt. Sem dæmi má nefna þegar hann fór ríðandi norður í land, en týndi ávísana- heftinu úti í móum á leiðinni. Þegar hann áði á sveitabæ í Bárðardal var ávísanaheftið komið þangað áður en hann náði að sakna þess. Einu sinni var hann á ferðinni með fjölskylduna akandi um Evrópu með tjaldvagn í eftirdragi. Þegar þau komu í lok ferðar á tjaldstæði í Kaupmanna- höfn bilaði bíllinn og þurftu þau að skilja hann eftir þar. Svo heppilega vildi til að næsti bíll á eftir inn á tjaldstæðið var íslensk fjölskylda sem var alveg til í að hengja tjaldvagninn aftan í sinn bíl og taka þau með í bílinn til Bergen svo að þau kæmust heim með Norrænu. Við vottum Auði, Þorsteini, Bryndísi, Kjartani, Snæfríði, Öglu og fjölskyldum þeirra inni- lega samúð okkar og munum við leggja okkur fram um að halda minningu hans á lofti. Jónína G. Jósafatsdóttir Bjarni B. Arthursson. Með mikilli eftirsjá sé ég á bak traustum vini mínum, Gunnari bónda á Grund, er kvaddi þetta jarðlíf fyrirvaralítið nú í upphafi gróandans. Hygg ég að harmur sé að æði mörgum kveðinn, því Gunnar var niðjasæll ættfaðir og ákaflega vinmargur. Ræktaði hann þau tengsl af fágætri atorku til endadægurs, eins og þrotlaus símanotkun hans bar vitni um. Hann var vitur maður og góðgjarn og sakir nærfærni sinnar og aðgátar í nærveru sálar var hann aðgengilegur trúnaðar- vinur og mörgum samferða- mönnum sínum afar mikils virði. Hann var ráðhollur mannasættir, sem jafnan lagði gott eitt til mála af asaleysi og yfirvegun. Vegna þroskaðs skilnings síns á mann- legu eðli og breyskleika sá hann oft aðra fleti á málum en aðrir gerðu. Hann var réttsýnn hug- sjónamaður, sem jafnan stóð með hinum hrakta. Gunnar man ég sem ungling, þótt við kynntumst ekki að gagni fyrr en hálfri öld síðar. Hann var þá sumarstrákur á Guðlaugsstöð- um í Blöndudal og naut þar sér- stakrar hylli húsbænda, heima- fólks og nágranna sakir geðprýði sinnar, fjörmikils dugnaðar og glaðværðar. Hann þótti vera prýddur gerðarþokka. Þá þegar var nautn hans af því að fást við hross orðin afar áberandi og virt- ist hún endast honum til enda- dægurs. Gunnar átti sérlega auðvelt með að komast í kynni við fólk og heilla það með persónu sinni, því bæði sýndi hann viðmælanda sín- um virðingu og áhuga, en var jafnframt léttur í viðmóti með kraumandi húmor undir niðri. Sagnamaður var hann einstakur og varð það honum hvalreki mik- ill að búa um drjúglangt skeið austur á Héraði, þar sem íbúar virtust flestir hinn ágætasti efni- viður í gamansögur. Gunnar hafði ennfremur skarpan skiln- ing á kímnigáfu viðmælenda sinna. Hann var hvarvetna au- fúsugestur, sem fegraði geðblæ hverrar samkundu með nærveru sinni einni saman en ekki síður hnyttnum tilsvörum, sagnalist og söng. Gallar hans og neftóbaks- notkun hurfu í skuggann af kost- um hans. Gunnar var í eðli sínu við- kvæmur listamaður, sem að nokkru leyti lifði fyrir ánægju stundarinnar og treysti á að mál- in redduðust. Hann helgaði hinni frjóu lífsnautn og mannlegum samskiptum tilveru sína. Til dauðadags gat hann hlakkað til komandi mannfagnaða líkt og barn til jólanna. Hann bjó að fornri kunnáttu í fiðluleik og org- anleik, var ágætlega lagviss og hafði gott vit á skáldskap. Hann var enda af skáldum kominn og í ættum hans má finna þjóðfræg stórmenni á sviði klassískra fræða, myndlistar, tónlistar, fé- lagsmála og sálusorgunar. Hann fetaði slóð frelsarans í handverki sínu. En mestur listamaður var hann í umgengni sinni við menn og skepnur. Miklar þakkir kann ég hinum horfna vini fyrir margvíslega greiðasemi hans og þrotlaust ör- læti. Hann mun engum gleymast, sem á vegi hans urðu. Pétur Ingvi Pétursson. „Gulli og perlum að safna sér sumir endalaust reyna, vita ekki að vináttan er verðmætust eðalsteina.“ „Hefurðu heyrt þessar stór- kostlegu vísur hans Hjálmars? Hann er snillingur.“ Þannig mæltist Gunnari Egil- son og hóf að þylja gullfallegar vísur Hjálmars Freysteinssonar við fallega lagið frá Gotlandi, Vem kan segla, þar sem við lág- um hlið við hlið á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri. Ég hafði þá nýfengið gervihné og Gunnar með nýja gervimjöðm, en báðir með gömlu raddböndin, sem við þöndum með þessum sannindum um vináttuna óborg- anlegu. Við höfðum áður kynnst á Rót- arýfundum og gátum sannarlega tekið undir með okkar fjórprófi Rótarýmanna að sannleikur þessa texta stæðist það: · Er það satt og rétt? · Er það drengilegt? · Eykur það velvild og vinar- hug? · Er það öllum til góðs? Við náðum gott betur en að rifja upp okkar fyrra samstarf, svo sem þegar við lékum saman undir söng á einhverri Rótarý- gleði, hann á fiðlu langafabróður síns, Benedikts Gröndal, og ég á píanó eða hljómborð. Við spauguðum mikið hvor í sínu rúminu og þótti okkur, að eigin sögn, við vera svo skemmti- legir, að við hétum því að liggja ætíð saman á sjúkrastofum, ef svo bæri undir. Jafnvel datt okkur í hug að benda heilbrigðisráðherra á þá sparnaðarleið að enginn sjúkling- ur yrði skráður inn á sjúkrahús nema að hann stæðist inntöku- próf í lágmarksfyndni. Við náðum þeirri ótrúlegu samstöðu að vera útskrifaðir með góða húmorseinkunn og vorum sendir saman í endurhæfingu á Kristnesspítala. Þvílík gleði, eins og þá sem ég upplifði með Gunnari á Grund, er í minningunni eins og sólskin á sumardegi. Síðast var það að loknum Fuglakabarett þeirra Daníels Þorsteinssonar og Hjörleifs Hjartarsonar í Laugarborg síð- asta vetrardag sem við féllumst í faðma glaðir og reifir, fagnandi sumri og fengum okkur pínku prís í nefið. Mér finnst ég ekki geta sýnt þessum perluvini mínum meiri virðingu, en með seinni vísu Hjálmars Freysteinssonar. Vinátta okkar Gunnars var mér verðmætust eðalsteina. Ég votta Auði, Þorsteini, Bryndísi, Kjartani, Snæfríði, Öglu og öllum öðrum aðstand- endum innilega hluttekningu við fráfall góðs drengs. Gull á ég ekki að gefa þér og gimsteina ekki neina en viltu muna að vináttan er verðmætust eðalsteina. Jón Hlöðver Áskelsson. Gunnar mágur minn Egilson var meðal skemmtilegustu manna sem ég hef kynnst á lífs- leiðinni. Hann var mikill söng- og stemningsmaður og hafði gaman af því að segja sögur, enda ein- staklega fundvís á það broslega í tilverunni. Sögurnar sagði Gunn- ar með tilþrifum og tilheyrandi eftirhermum án þess að vera nokkurn tíma meinlegur eða meiðandi. Oftar en ekki var grín- ið á hans eigin kostnað eða þeirra hjóna, hans og Auðar. Hann var einstakt ljúfmenni, hlýr og greið- vikinn með afbrigðum og vildi allt fyrir aðra gera. Hann var ótrú- lega vinmargur enda laðaðist fólk úr öllum áttum að þessum glað- væra og skemmtilega manni. Fyrir vikið var oft mjög gest- kvæmt á heimili þeirra Auðar hvort sem það var á Egilsstöðum, á Akureyri eða frammi á Grund í Eyjafirði. Ein mesta upphefðin sem mér hlotnaðist í samskiptum okkar nafna var þegar hann bauð mér að skoða „glerlistasafnið“ á Grund en þar stundaði hann þá kristilegu iðju að breyta vatni í vín. Hann var lunkinn víngerð- armaður og gjöfull á veigarnar. Þannig kom ekki annað til greina þegar framundan var stórafmæli hjá Snæfríði systur hans en að hann leysti okkur út með stóran kassa af guðaveigum til að nota í veislunni. Hef ég sjaldan ekið jafn varlega milli Reykjavíkur og Akureyrar því ekki hefði verið gott að lenda í umferðaróhappi með slíkan varning í skottinu. Allt gekk þetta áfallalaust og veislan var hin skemmtilegasta enda enginn skortur á söngolíu, þökk sé nafna mínum og Grund- arvatninu hans. Ég tel óhætt að greina frá þessu nú enda málið löngu fyrnt. Sem fyrr segir var Gunnar góður sögumaður, eins og reynd- ar þau systkin öll og þegar þau koma saman er glatt á hjalla og mikið hlegið. Þannig var það sannarlega kvöld eitt rétt eftir að efnahagskreppan skall á haustið 2008. Þá höfðu systkinin, grun- laus um hvað í vændum var, ákveðið með góðum fyrirvara að fara ásamt mökum til Kaup- mannahafnar og heimsækja Dav- íð bróður þeirra sem þar var bú- settur. Hörmungarsögur af hruni Íslands höfðu þá um nokkurt skeið verið meðal helstu fyrir- sagna fjölmiðla á Norðurlöndum. Eitt kvöldið þegar hópurinn fór út að borða var nafni í sérstak- lega miklu stuði. Má segja að hópurinn hafi verið í samfelldu hláturskasti allt kvöldið og var þetta farið að vekja athygli ann- arra gesta á staðnum. Þegar við vorum í þann mund að yfirgefa veitingahúsið gat virðuleg norsk kona sem sat við næsta borð ekki lengur orða bundist og spurði hvaðan úr veröldinni þessi fjör- ugi hópur kæmi. Þegar hún heyrði að við værum frá Íslandi varð hún mjög undrandi og sagði þessi eftirminnilegu orð: „Mikið er gott að þið Íslendingar getið enn hlegið.“ En þannig var það í kringum Gunnar Egilson, það var sama hvort þjóðarskútan var á mikilli siglingu eða við það að sökkva, það voru aldrei leiðindi eða lognmolla í kringum okkar mann. Fyrir það og allt annað þökkum við samferðafólk hans nú þegar leiðir skilja. Auði, sem staðið hefur eins og klettur við hlið manns síns alla tíð, sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur sem og öllu fólkinu þeirra Gunn- ars á Grund. Gunnar E. Kvaran. Glaður og reifur skyli gumna hver uns sinn bíður bana. Þetta spakmæli Hávamála lýsir vel lífs- hlaupi vinar míns Gunnars Eg- ilson. Fyrir skömmu ókum við fjög- ur, vinahópur fjölskyldunnar, norður í Grund í Eyjafirði í heim- sókn. Frá því í haust hafði þetta staðið til en alltaf var eitthvað sem tafði. Eins og búast mátti við feng- um við góðar móttökur á Grund. Þar var glatt á hjalla, mikið spjallað, hlegið og sagðar sögur. Allir voru kátir og hressir, ekki síst sjálfur „Grundarjarlinn“ Gunnar Egilson. Aðeins fjórum dögum seinna bárust þær óvæntu og sorglegu fréttir að Gunnar hefði fengið heilablóðfall sem dró hann til dauða tveim dögum síðar. Fyrir um það bil 60 árum flutt- ust ung og glæsileg hjón, Gunnar og Auður Egilson, til Egilsstaða og settust að í lítilli íbúð í flug- turninum á Egilsstaðaflugvelli þar sem Gunnar hóf störf sem flugumferðarstjóri. Síðar byggðu þau sér fallegt heimili í Egils- staðakauptúni og bjuggu þar í nær tvo áratugi þar til þau fluttu til Akureyrar og Gunnar gerðist flugumferðarstjóri við Akureyr- arflugvöll. Fljótlega eftir komu þeirra austur kynntumst við og einlæg vinátta myndaðist milli fjölskyldna okkar. Sameiginlegt áhugamál var hestamennskan og margra skemmtilegra reiðtúra og ferðalaga er að minnast. Má þar nefna árlega Urriðavatnsreið og Jónsmessureið. Í Urriðavatn riðum við að vetrinum, lentum stundum í norðanbyl en létum það ekki hefta för og höfðum að mælikvarða að ef hundarnir ekki snéru aftur þá var fært. Oft rið- um við út alla Jónsmessunóttina, völdum skemmtilega og fallega reiðleið, t.d. um Egilsstaðaskóg og slepptum alveg svefni. Mottó- ið var: Ekki eyða fegurstu sum- arnóttunum í svefn á meðan mað- ur er ungur, geyma það þar til í skammdeginu eða ellinnar, þá gefst nægur tími til að sofa. Minnisstæð er ferð okkar Guð- rúnar, Gunnars og Auðar og yngstu barnanna í fjölskyldunum á heimsmeistaramót íslenska hestsins í Hollandi 1979. Farið var með ferjunni Norröna og ekið suður England, um Frakkland og Belgíu til Hollands og til baka um Þýskaland, Jótland, yfir til Sví- þjóðar og til Bergen og svo aftur með Norröna heim. Þessi fimm vikna ferð var heilt ævintýri með ýmsum uppákomum sem um væri hægt að skrifa heila bók. Ári eftir að Gunnar og Auður fluttu norður hringdi hann í mig og spurði hvort hann mætti koma austur og ríða út með okkur, jafnvel taka einn gaur með sér að norðan. Það var auðsótt mál og nokkru seinna komu hann og gaurinn (sem reyndar heitir fullu nafni Hólmgeir Valdimarsson) austur. Riðið var út alla helgina, hestamenn heimsóttir og gleði haldið á lofti. Þetta varð árlegur viðburður í nokkur ár og gekk undir því virðulega nafni Gaura- gangur. Stundum var breytt til, farið norður, Gauragangurinn haldinn þar og riðið út með Ak- ureyringum. Eftir að við fluttum til Hvann- eyrar hélt Gauragangurinn áfram og eyfirskir gaurar komu í heimsókn og riðu út með hesta- fólki á Hvanneyri og nágrenni eða hestafólk frá Hvanneyri fór norður. Í minningunni er þetta eins og segir í vísunni: Eigi man eg allt sem skeði, en eitt er víst að þá var gleði. Það var stór og djörf ákvörðun þegar Gunnar keypti Grund ll í Eyjafirði en mikið gæfuspor og þar hefur sælureitur fjölskyld- unnar verið síðan. Fyrir nokkru var Gunnar spurður hvort hann færi ekki að hætta þessu búskap- arbasli, seldi Grund og tæki því rólega. „Frá Grund fer ég ekki lifandi,“ svaraði hann þá og hefur nú sannað þá ákvörðun. Nú er gleðigjafinn Gunnar Eg- ilson allur. Hans er sárt saknað en minningin um góðan og traustan vin mun ylja mér um hjartarætur á meðan ég tóri. Blessuð sé minning hans. Auði og fjölskyldu sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Ingimar Sveinsson. Fyrstu heimildir um „pott- verja“ á Hrafnagili er að finna í Víga-Glúmssögu þegar Þorgrím- ur á Espihóli sat fyrir Arnóri sem sótti malt í Gásir til að lífga upp á brúðkaup sitt á Þverá fremri (Munkaþverá). Þá sat Þorgrímur í Hrafnagilslaug með sínum fylgi- sveinum og hröktu þeir Arnór yf- ir á austurbakka Eyjafjarðarár en náðu að taka af honum mjöð- inn! Þannig er löng hefð fyrir því að slappa af í heitum potti á Hrafnagili. Gunnar á Grund er farinn úr heita pottinum hér í Hrafnagils- laug þar sem hann átti fast sæti og skáp nr. 5. Hann lék á als oddi í spjalli yfir kaffibolla að loknu sundi með okkur á föstudags- morgni en seinni partinn fékk hann þungt heilablóðfall og var allur tveimur dögum seinna. Hann skilur eftir sig skarð sem verður vandfyllt. Nær alltaf var hann maður léttleikans og átti auðvelt með að sjá björtu hlið- arnar á málunum. Það var aðeins þegar hann varði verk Jóhönnu Sigurðardóttur að alvaran kom í ljós. Kratablóðið var ekta. Gunn- ar var gæfumaður og mikill fjöl- skyldumaður. Allir hestamenn þekkja hann og líklega taka a.m.k. tveir hestamenn á móti honum þarna hinum megin, Magnúsar tveir. Hann var mikill gleðigjafi og sagði sögur af ýms- um þekktum mönnum og hermdi gjarnan eftir þeim. Svo var hann lykilmaður í gleðiflokknum Hryllingi en þeir félagar riðu um héruð en drápu engan heldur drukku heilsudrykki á áningar- stöðum og kváðu vísur enda margir snjallir hagyrðingar í hópnum. Aðalstarf Gunnars var flugum- ferðarstjórn, bæði á Egilsstöðum og Akureyri, en til að hafa svig- rúm fyrir sitt áhugasvið, hrossa- rækt, keypti hann höfuðbólið Grund hér í Eyjafjarðarsveit. Þar skildi hann við þennan heim, tók hnakk sinn og hest og reið rakleitt til Lykla-Péturs og bað um hagagöngu sem hefur vænt- anlega verið auðfengið mál. Þar eigum við von á að hann muni taka á móti okkur pottverjum þegar okkar tími kemur. Blessuð sé minning hans og við sendum innilegar samúðarkveðjur til Auðar konu hans og fjölskyldu. Fyrir hönd sundfélaga í Hrafnagilslaug, Páll Ingvarsson, Reykhúsum.  Fleiri minningargreinar um Gunnar Egilson bíða birt- ingar og munu birtast í blað- inu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.