Morgunblaðið - 23.05.2018, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 23.05.2018, Blaðsíða 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2018 Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is Frábært verð á glerjum Einfókus gler Verð frá kr. 16.900,- Margskipt gler Verð frá kr. 41.900,- Vanni umgjörð kr. 27.900,- Vanni umgjarðir eru hágæða ítölsk hönnun. Handsmíði fagmanna með áratuga kunnáttu og þekkingu. Samband íslenskra myndlistarmanna, SÍM, er regnhlíf- arsamtök sem sam- anstanda af Mynd- höggvarafélagi Reykjavíkur, Leir- listafélaginu, Íslenskri grafík, Myndlist- arfélaginu, Félagi ís- lenskra samtíma- ljósmyndara, Textílfélaginu og einstaklings- félögum. Félagar í SÍM eru að verða átta hundruð og er það stærsta félag skapandi listamanna á Íslandi. Þrátt fyrir að það sé stærsta fé- lag listamanna, þá hefur ekki tek- ist að fá stjórnvöld til að leggja fram ásættanlegt framlag til myndlistarmanna miðað við önnur félög listamanna. Til dæmis fá tónlistarmenn og rithöfundar 90% hærra framlag til að kynna sína listgrein en myndlistarmenn. Þessi staða er óásættanleg með öllu og segir okkur að starf mynd- listarmanna er ekki metið að verð- leikum. Þennan ójöfnuð milli list- greina verða stjórnvöld að leiðrétta. Það verður að hafa hug- fast að ábyrgðin á núverandi stöðu er fyrst og fremst myndlist- armanna og SÍM. Stjórn og formaður SÍM eru ekki lengur fær um að starfa að sérverkefnum með fullum árangri, nema að „valdeflingu“ verði komið á hjá einstökum aðildarfélögum innan SÍM. Þessi ákveðna breyt- ing yrði til þess að virkja þekk- ingu, tengsl, útfærslumöguleika og samvinnu til að koma beinum og óbeinum skilaboðum áleiðis og til að koma í veg fyrir niðurbrot inn- viða menningarinnar. Á næsta ári verða framlög til menningarmála skorin niður um tæpan hálfan milljarð. Þessi menningarstefna breikkar bilið milli þeirra sem hafa aðgang, þekkingu, tíma og fjárráð til að njóta menningarafurða og þeirra sem ekki hafa þennan aðgang. Það sem verður í boði fyrir þær stétt- ir, sem ekki hafa aðgang að menn- ingu, er neysla og afþreying, sem býður upp á meiri firringu, hlutgervingu og niðurlægingu. Þessi nýja menning- arstefna festir í sessi „elítisma“ og gerir stéttaskiptingu sýni- legri. Verkefni SÍM hafa byggst á að lagfæra og þá um leið að stuðla að uppbygg- ingu á innviðum myndlistar. Hér má sjá heimasíðu með heildarmynd af öllum þáttum innviða myndlistar (https://heildarmyndin.blogspot.is) á Íslandi. Verkefnið Borgum myndlistarmönnum hafði forgang á síðustu árum, með þeim árangri að það verður ekki aftur snúið. Reykjavíkurborg hefur verið í for- ystu með því að leggja fram auka- fjárveitingu til Listasafns Reykja- víkur til að hægt sé að borga myndlistarmönnum (https:// vidborgummyndlistarmonn- um.info). Listasafn Íslands, höf- uðsafn myndlistar á Íslandi, hefur ekki fengið neina fjárveitingu til að borga myndlistarmönnum og að ég tali nú ekki um að stofnunin sem slík er undirmönnuð, fjársvelt og hefur ekki burði til að sinna rannsóknum og vera með tegund af sýningarhaldi í samræmi við þá safnaþróun sem á sér stað í heim- inum. Þegar síðari heimsstyrjöld var í hámarki þurfti Winston Churchill að verja fjárlög sem gerðu ráð fyrir auknu fé til lista. „Hvernig geturðu lagt þetta til þegar þjóðin stendur andspænis slíkri skelf- ingu?“ Churchill svaraði: „Ég geri það, herra minn, til að minna okk- ur á til hvers við erum að berj- ast.“ SÍM á tímamótum Eftir Steingrím Eyfjörð Steingrímur Eyfjörð » Churchill svaraði: „Ég geri það, herra minn, til að minna okkur á til hvers við erum að berjast.“ Höfundur er myndlistarmaður. endless@this.is Hljómsveitin Aero- smith varð á sínum tíma fræg að endem- um. Sagan segir að samningar sveit- arinnar við tónleika- haldara hafi kveðið svo á að fimm eintök af blaðinu Wall Street Journal skyldu vera til taks baksviðs fyrir hverja tónleika. Þá átti að vera búið að lita öll „o“ í blaðinu með grænum penna. Þetta voru þó engir stjörnustælar, heldur var ver- ið að kanna hvort samningar hefðu verið lesnir, ákvæðum þeirra full- nægt og hljómsveitinni óhætt að stíga á svið. Já, gott er að geta lesið sér til gagns, ekki síst þegar um flókna samninga er að ræða. Það á við um flest mál. Sá samningur sem skólastjórar og sveitarstjórnarmenn þurfa að lesa vandlega er Aðalnámskrá grunnskóla, „samningur þjóð- arinnar við sjálfa sig um mennta- mál“ eins og þar stendur. Hún er „sá rammi sem mótast hefur í anda gildandi laga, reglugerða og al- þjóðasamninga“. Þar er starfs- rammi stjórnenda markaður. Þar er réttur nemenda skýrður. Allir eiga rétt á námi við hæfi, bæði bóklegu námi, verk- og listnámi. Skylt er að sjá nemendum fyrir viðeigandi námstækifærum, hvernig sem á stendur. Þó ákvæði séu í nám- skránni um sjálfstæði skóla, mega stjórnendur ekki fara á skjön við þennan rétt nemenda, því rétturinn er þeirra allra. Stjórnendur, háir eða lágir, sem ekki skilja þetta, hafa ekki lesið Aðalnámskrána sér til gagns. Fögur fyrirheit en framkvæmd í skötulíki Hver fylgist svo með því að þessi ákvæði séu virt? Eftirlitið er í hönd- um viðkomandi fagráðuneytis og sveitarfélaganna sjálfra, sem er merkilegt fyrirkomulag. Þá sér sami aðili bæði um framkvæmd og eftirlit. Þannig getur borgin t.d. haft eftirlit með sjálfri sér. Það gefur augaleið að það er glatað kerfi. Mætti ég t.d. sjálfur hafa eft- irlit með því, hvort ég borgi fyrir dýrustu bílastæðin í mið- bænum? Auðvitað ekki. Hvernig skilgreinir námskráin hlutverk kennara? Jú, þeim ber að útfæra á faglegan hátt það sem þar stendur, enda „búi þeir yfir sérfræðilegri starfs- menntun“. Drög að menntastefnu Reykjavíkurborgar bæta um betur: Kennarar eiga að vera „framsækið fagfólk“. Gott er að allir ættu kost á námi við hæfi, bóklegu námi, verk- eða listnámi hjá framsæknu fagfólki og farið væri eftir þessu. Að sjálf- sögðu eru ákvæði í námskrá sem lúta að síðastnefndu greinunum. Þar eru heilar 11 bls. um listgrein- arnar tónmennt, myndmennt, dans og leiklist. Hvernig skyldi svo fram- kvæmdinni vera háttað? Í stuttu máli fer afar lítið fyrir dansi og leik- list og borgin virðist vinna mark- visst að því að útrýma tónmennt úr grunnskólum. A.m.k. er hún að mestu hætt að auglýsa eftir tón- menntarkennurum. Yfirmaður grunnskólasviðs telur tónmenntar- kennara ekki með í viðtölum um kennaraskort í Reykjavík. Gott dæmi um það hvernig borgin kemst upp með að sópa skítnum undir teppið. Aldrei virðist fjölmiðlum detta í hug að sannreyna orð sviðs- stjórans. Gengisfelling listgreina Sagt er að miðaldakirkjan hafi skilgreint almenna menntun út frá eigin þörfum. Framkvæmd og eft- irlit hafi verið í höndum sama aðila. Það þótti vissara. Það finnst líka þeim sem stjórna skólamálum hjá borginni. Enda víða pottur brotinn. Tökum dæmi: Í stað þess að auglýsa eftir tónmenntarkennurum eru gerðir samningar við fyrirtæki úti í bæ sem útvegar mannskap til að fylla upp í tónmenntartíma til mála- mynda án þess að hirða um ákvæði námskrár eða uppfylla kröfur um menntun kennara. Þetta fyrir- komulag sparar ýmis vinnutengd gjöld. Sá sparnaður er á kostnað barnanna en getur skapað fjárhags- legt svigrúm fyrir gæluverkefni skólastjóra. Því verður ekki á móti mælt. Hér vakna ýmsar spurningar. Af hverju er þetta látið viðgangast? Er verið að bola listgreinunum út úr almennu menntuninni og inn í frí- stundirnar? Taka þær af fram- sæknu fagfólki og færa í hendur lausráðnum leiðbeinendum? Auglýs- ingar frá Skóla- og frístundaráði benda stundum til þess að svo sé. Boðar þetta einhverjar breytingar á menntastefnu borgarinnar? Á að gengisfella þann hluta skyldunáms- ins sem lýtur að listum? Hvaða námsgrein á þá að gengisfella næst? Fær einhver skólastjóri að ráða því? Eða lýsir þetta vanhæfi þeirra sem eftirlitið eiga að annast, vegna þess að þeir eru undir sama þaki og þeir sem stjórna framkvæmdinni og rekstrinum? Er kunningsskapurinn í litlu Reykjavík stundum of náinn við þá sem á að hafa eftirlit með? Mig grunar að svo sé. Væri ekki best að borgin losaði sig við þetta eftirlitshlutverk og fæli það mennta- og menningarmálaráðuneytinu? Við það sparaðist fé sem nýta mætti úti í skólunum. Hlutlaust eftirlit yrði tryggt með því að ákvæðum laga, reglugerða og aðalnámskrár yrði fylgt og réttur nemenda virtur. Staðið yrði við samning þjóðarinnar við sjálfa sig um menntamál. Listgreinar og samningur þjóðarinnar um menntamál Eftir Pétur Hafþór Jónsson » Færi ekki best á því að borgin afsalaði sér eftirliti með eigin grunnskólum og fæli það mennta- og menn- ingarmálaráðuneytinu? Pétur Hafþór Jónsson Höfundur er fyrrverandi tónmennt- arkennari í Austurbæjarskólanum. peturhafthor@icloud.com Á fundi borg- arstjórnar 20. mars sl. óskaði ég eftir því að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri upplýsti um launakostnað Reykjavíkurborgar vegna þeirra fulltrúa stjórnmálaflokka sem hafa setið í ráðum og nefndum á vegum borgarinnar á kjör- tímabilinu. Spurningin er skýr og því á að vera auðvelt að svara henni. Svörin hefðu hins vegar leitt í ljós að kostnaður borgarinnar vegna fulltrú- anna er verulegur og að í hópi fulltrú- anna eru fjölmargir vinir borgar- stjóra. Gæðingar í húsi borgarstjóra Nú hafa verið haldnir fjórir borg- arstjórnarfundir án þess að borgar- stjóri hafi svarað fyrirspurn minni. Lesendur blaðsins þurfa ekki að velkjast í vafa um ástæðu þagnar- innar. Það hentar ekki borgarstjóra að svara fyrir kosningar. Þeir eru nefnilega ófáir gæðingarnir sem borg- arstjóri hefur á húsi. Nýir vendir sópa best Kostnaður við stjórn- sýslu borgarinnar hefur blásið út á kjörtíma- bilinu. Það er ekki ókeypis að stofna á fjórða hundrað ráð og nefndir til að móta stefnu borgarinnar. Sí- fellt fellur til meiri kostnaður vegna bitlinganna. Veljum fulltrúa Borg- arinnar okkar – Reykjavíkur til að taka til í rekstri borgarinnar. Veljum X-O í kosningunum 26. maí nk. Burt með bruðlið Eftir Sveinbjörgu B. Sveinbjörns- dóttur Höfundur er borgarfulltrúi og oddviti Borgarinnar okkar – Reykjavíkur. sveinbjorgbs@reykjavik.is Sveinbjörg B. Sveinbjörnsdóttir »Kostnaður við stjórnsýslu borg- arinnar hefur blásið út á kjörtímabilinu. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.