Morgunblaðið - 23.05.2018, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2018
Framtak-Blossi er umboðsaðili
fyrirVOLVO PENTA á Íslandi
Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is
Framtak-Blossi
kappkostar að bjóða
góða þjónustu og
sanngjarnt verð á
varahlutum.
Hafið samband við
Hafþór í síma 895-3144
eða hafthor@blossi.is
„Fylgið okkar
hefur rokkað
mjög mikið og við
höfum verið und-
ir það búin en vit-
um að við eigum
heilmikið inni og
erum bjartsýn á
gengi Viðreisnar
í kosningunum,“
segir Þórdís Lóa Þórhallsdóttir,
oddviti Viðreisnar. Hún segir Við-
reisn ganga bjartsýna til kosninga.
„Í dag héldum við blaðamanna-
fund og sýndum spilin okkar og
lögðum fram kostnaðarútreikninga
sem fyrirhugaðar aðgerðir okkar
kosta. Viðreisn leggur áherslu á að
leggja fram fullbúnar tillögur um
leið og við setjumst í borgarstjórn.
Ég held að fólk vilji öguð og betri
vinnubrögð.“
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir
Eigum heil-
mikið inni
„Frábært, þetta
er mjög jákvætt
og við finnum
fyrir gríðarlega
miklum stuðn-
ingi sem kemur
fram í því að fólk
er að samsama
sig við sögur sem
við birtum á fés-
bókarsíðunni okkar, Hin Reykja-
vík,“ segir Sanna Magdalena
Mörtudóttir, oddviti Sósíalista-
flokks Íslands. Hún segir jákvætt
að nýr flokkur sem ekki hafi auð-
vald á bak við sig nái inn einum
manni og markið sé sett hærra.
„Okkar kosningabarátta fer fram
á samfélagsmiðlunum. Við erum
ekki á skiltum á strætóskýlum. Við
erum almenningur í strætó, sem
treystir á almenningssamgöngur.“
„Þetta eru ágætis
fréttir og sem
flugstjóri segi ég
að við ætlum okk-
ur að hækka flug-
ið enn frekar og
lenda svo mjúk-
lega á kjördag,“
segir Ingvar Már
Jónsson, oddviti
Framsóknarflokksins.
„Við erum ánægð með að mælast
með einn borgarfulltrúa inni. Ég vil
hvetja fólk til þess að kjósa Framsókn
fyrir breytingar í borginni. Við erum
að færast upp á við og ég hef trú á því
að við fáum meira fylgi,“ segir Ingv-
ar, sem segir að Framsóknarflokk-
urinn hugsi út fyrir miðbæinn. Það sé
skynsamlegt og eitt af aðalmálum
flokksins að hafa ókeypis í strætó, en
það hafi gengið vel erlendis
Sanna M. Mörtudóttir
Við erum al-
menningur
Ingvar Már Jónsson
Fljúga hátt,
lenda mjúkt
„Ég er ánægður
með þessar vís-
bendingar og þá
sókn sem Sam-
fylkingin og
meirihlutinn er
að fá,“ segir Dag-
ur B. Eggertsson,
borgarstjóri og
oddviti Samfylk-
ingarinnar.
„Mér finnst að kostirnir í borgar-
stjórnarkosningunum hafi verið að
kristallast og fleiri og fleiri að verða
þeirrar skoðunar að þróa eigi borg-
ina áfram inn á við. Að borgin sé
kraftmikil, fjölbreytt, áhugaverð og
skemmtileg og þess sé gætt að hún
sé fyrir alla. Þessi framtíðarsýn okk-
ar er að fá hljómgrunn.“
Dagur B. Eggertsson
Borgin er
fyrir alla
„Niðurstaðan er
svipuð og í síðustu
mælingum en við
erum með sama
fjölda fulltrúa, og
ég á von á því að
við fáum meira upp
úr kjörkössunum,“
segir Eyþór Arn-
alds, oddviti Sjálf-
stæðisflokksins. „Það eru mörg fram-
boð og flóknari mynd en áður hefur
verið í Reykjavík. Við erum eini stóri
flokkurinn sem getur náð að knýja
fram breytingar í borginni og ég er
viss um að við munum fá fólk með
okkur í þá vegferð. Við erum bar-
áttuglöð og ég hef fulla trú á því að við
fáum meiri stuðning í kosningunum
og meirihlutinn falli,“ segir Eyþór.
Eyþór Laxdal Arnalds
Meirihlutinn
mun falla
„Það er ánægju-
legt að heyra að
við séum að
bæta við okkur
fylgi frá síðustu
könnun Félags-
vísindastofn-
unar,“ sagði
Dóra Björt Guð-
jónsdóttir, efsti
maður á lista Pírata. „Við höfum
verið að mælast með tvo til fjóra
fulltrúa í síðustu könnunum sem
birtar hafa verið. Það sýnir
áhuga kjósenda á þeim málefnum
sem við höfum verið að leggja
áherslu á. Við munum að nýta
síðustu dagana fram að kjördegi
til að bæta fylgi okkar í borginni
enn frekar.“
Dóra Björt Guðjónsdóttir
Áhugi á okk-
ar málefnum
„Okkur hefur
verið vel tekið
alls staðar sem
við förum og
við finnum að
fólk er sam-
mála okkur um
áherslur. Þeim
finnst að
áherslur
Vinstri grænna í borginni hafi
gert borgina betri,“ segir Líf
Magneudóttir, oddviti Vinstri
grænna, og bætir við að til að
gera enn betur þurfi Vinstri
græn stuðning svo að framtíð-
arstefnumótun borgarinnar verði
í anda umhverfisverndar og
menntunar. „Við erum á réttri
leið.“
Líf Magneudóttir
„Erum á
réttri leið“
„Það má eigin-
lega segja að
þessi könnun sé
ómarktæk vegna
þess hversu fáir
svara, en svar-
hlutfallið er inn-
an við 50%,“ segir
Vigdís Hauks-
dóttir, oddviti
Miðflokksins.
„Það segir ákveðna sögu hvað
margir eru óákveðnir eða gefa ekki
upp afstöðu sína, en þar liggja tæki-
færi Miðflokksins og við stefnum á
að ná a.m.k. fjórum borgarfull-
trúum,“ segir Vigdís, sem segist
finna mikinn hljómgrunn meðal
kjósenda í Reykjavík og er bjartsýn
á góða útkomu á laugardaginn.
Vigdís Hauksdóttir
Ætla að ná
fjórum inn
Núverandi meirihluti í borgarstjórn Reykjavík-
ur heldur velli í kosningunum á laugardaginn,
en þó með minnihluta atkvæða á bak við sig.
Þetta sýnir könnun Félagsvísindastofnunar fyr-
ir Morgunblaðið sem gerð var 17. til 21. maí.
Sósíalistaflokkurinn og Framsóknarflokkurinn
mælast nú með einn fulltrúa hvor en Flokkur
fólksins engan, sem er breyting frá síðustu
könnun sem birt var 27. apríl.
Samkvæmt könnuninni fá átta framboðslistar
menn kjörna í borgarstjórn. Samfylkingin er
stærst með 31,8% fylgi og 8 fulltrúa. Sjálf-
stæðisflokkurinn er í öðru sæti með 26,3% sem
gefur 7 fulltrúa. Píratar eru með 8% og fengju 2
fulltrúa. Vinstrihreyfingin – grænt framboð er
með svipað fylgi; 7,4% og fengi einnig 2 fulltrúa.
Meirihlutaflokkarnir, Samfylkingin, Píratar og
VG eru með 12 fulltrúa af 23 í borgarstjórn. Á
bak við flokkana er þó ekki meirihluti kjósenda;
samanlagt fylgi þeirra er 47,2%.
Miðflokkurinn er með 6,5% fylgi og fengi einn
fulltrúa kjörinn. Fylgi Viðreisnar er 4,9% sem
gefur einn fulltrúa. Sósíalistaflokkurinn er með
3,9% og einn fulltrúa. Loks er Framsóknar-
flokkurinn með 3,6% og einn fulltrúa.
Samtals eru bornir fram 16 framboðslistar.
Átta þeirra fá ekki fulltrúa. Þetta eru auk
Flokks fólksins, sem er með 3,4%, Kvennafram-
boðið með 0,9%, Karlalistinn með 0,9%, Íslenska
þjóðfylkingin með 0,8%, Höfuðborgarlistinn
með 0,6%, Alþýðufylkingin með 0,6%, Borgin
okkar með 0,4% og Frelsisflokkurinn sem
mældist ekki með neitt fylgi. Alls svöruðu 1.610
en könnunin var send á 3.650 manns. Þátttakan
er því 44%.
Þau leiðu mistök áttu sér stað við útsendingu
á könnuninni á mánudaginn að svarmöguleika
vantaði fyrir borgarstjórnarframboð Borgar-
innar okkar og Karlalistans, en boðið var upp á
að skrifa inn nöfn annarra framboða í opinn
textareit. Könnunin var send á nýjan leik til
allra þeirra sem höfðu svarað í gær, þannig að
fólk gat lagfært svör sín ef það óskaði þess.
gudmundur@mbl.is
Niðurstöður skoðanakönnunar fyrir Morgunblaðið um fylgi stjórnmálaflokkanna í Reykjavík
Könnunin var gerð dagana 17. til 21. maí 2018.
Einnig var spurt um fylgi Alþýðufylkingarinnar
(0,6%), Borgarinnar okkar (0,4%), Frelsis-
flokksins (0,0%), Höfuðborgarlistans (0,6%),
Íslensku þjóðfylkingarinnar (0,8%), Karlalist-
ans (0,9%) og Kvennaframboðs (0,9%). Björt
framtíð býður ekki fram að þessu sinni.
Heildarúrtak í könnuninni var 3.650 einstak-
lingar. 1.610 svöruðu eða 44%.
Kjörnir verða 23
borgarfulltrúar í vor
í stað þeirra 15 sem
nú eru.
12 fulltrúa þarf til að
mynda meirihluta.
Úrslit kosninga 31. maí 2014
Fylgi í % og fjöldi borgarfulltrúa
Fylgi í könnunum 29. mars og 27. apríl
Könnun 23.-25. apríl 2018
Fylgi í % og fjöldi borgarfulltrúa30%
25%
20%
15%
10%
Heimild: Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands
2
10,7%
0
2,7%
0
2,8%
1
3,6% 2
7,3%
1
5,3%
1
4,9%
1
5,9%
2
7,7%
0
1,4%
2
6,8%
0
1,8%
2
8,0%
1
3,9%
5
31,9%
8
31,7%
8
30,5%
8
31,8%
1
5,0% 2
7,3%
1
6,5%
1
8,3% 3
12,8%
2
9,7%
2
7,4%
4
25,7%
7
27,4%
7
27,3%
7
26,3%
0
3,1%
1
3,6%
0
3,4%
B Framsóknar-flokkur C Viðreisn D Sjálfstæðis-flokkur F Flokkur fólksins J Sósíalista-flokkinn M Miðflokkurinn P Píratar S Samfylkingin V Vinstrihreyfingin– grænt framboð
Fulltrúar 8 framboða ná kjöri
Meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur heldur velli með minnihluta atkvæða á bak við sig
Samfylkingin langstærsti flokkurinn Sósíalistar og Framsókn fá einn fulltrúa hvor flokkur
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2018