Morgunblaðið - 23.05.2018, Síða 28

Morgunblaðið - 23.05.2018, Síða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2018 Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 ✝ SigurðurBjörgúlfsson arkitekt fæddist í Reykjavík 22. jan- úar 1950. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 6. maí 2018. Foreldrar Sig- urðar voru Björg- úlfur Sigurðsson verslunarmaður, f. 3.7. 1915, d. 1.10. 1985, og Ingibjörg Þorleifs- dóttir, f. 12.11. 1915, d. 22.9. 1993. Sigurður var kvæntur El- ísabetu Öldu Pétursdóttur, f. 15.1. 1952, d. 10.5. 2017. Saman eignuðust þau þrjú börn. Þau eru Helen Inga, f. 25.5. 1977, d. 19.4. 1979, Telma Ingibjörg, f. 18.5. 1980, gift Ív- ari Erni, og Björgúlfur Krist- ófer, f. 1.1. 1994. Barnabörn Sigurðar eru Hel- en Ívarsdóttir, f. 20.3. 2013, og Arna Karen Ívars- dóttir, f. 6.11. 2014. Sigurður var kennari að mennt og kenndi eitt miss- eri. Hann hóf nám í arkitektúr í Árs- húsum en útskrif- aðist frá Kunst- akademíunni í Kaupmannahöfn árið 1981. Sigurður flutti til Íslands árið 1983. Hóf hann þá störf og gerðist meðeigandi að Vinnustofu Arkitekta ehf. sem varð síðar VA Arkitektar. Helstu verkefni voru ansi mörg á löngum starfsferli en helst mætti nefna Seljahlíð, Suð- urgötu 33, SEM húsið, Vitatorg, Bláa Lónið, Ingunnarskóla og Sæmundarskóla. Útför Sigurðar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 23. maí 2018, klukkan 15. Við viljum minnast Sigurðar Björgúlfssonar, náfrænda og vinar, sem verður jarðaður í dag. Það er erfitt að finna réttu orðin þegar góður maður fellur skyndilega frá. Fyrstu viðbrögð- in eru sorg og depurð, vanmátt- ur og skilningsleysi. Samhygð með börnum hans og barnabörn- um, sem missa pabba sinn og afa. En þegar frá líður streyma minningarnar fram. Þær veita huggun, því það eru góðar minn- ingar. Ef lýsa ætti Sigurði, eða Sigga Björgúlfs eins og hann var alltaf kallaður, þá kemur orðið „reffi- legur“ fljótt upp í hugann. Vel til fara, með grátt hárið greitt aftur og myndarlegt skegg, stundum með sólgleraugu og einstaka vindil, svona á góðum degi. Hann var lífsglaður og skemmtilegur, fróður og fróðleiksfús, skraf- hreifinn og vinmargur, ástríðu- fullur gagnvart því sem hann hafði áhuga á, hjálpsamur. Um leið var hann ekki skaplaus og gat verið snöggur upp ef honum mislíkaði eitthvað í pólitíkinni eða mannlífinu. En hann var líka fljótur niður – og svo hélt sam- talið áfram. Siggi var sýnilega ákveðinn í því að njóta lífsins. Hafði ánægju af því að umgangast annað fólk, njóta góðs matar og umfram allt eiga góðan félagsskap við vini og ættingja. Ferðast um heiminn, oft til fjarlægra slóða, og prófa eitthvað nýtt, heillast, læra, láta forvitnina leiða sig á ný mið og auðga lífið. Þegar Siggi var utanlands á framandi slóðum, kannski á markaði á Indlandi eða í tebúð í Marokkó, þá var hann einhvern veginn á heimavelli. Hann laðaði að sér fólk og rann áreynslulaust inn í mannlífið. Ef litið var af honum, þá var hann sestur að spjalli við ein- hverja karla, inn í búð á bak við og byrjaður að smakka tyrk- neskt kaffi eða döðlur, farinn að reifa helstu mál. Kom svo ef til vill út í persneskri skikkju eða með panamahatt. Hann spjaraði sig hvar sem er í heiminum. Hann var vinmargur og vel metinn, bæði í vinnu og í fé- lagslífi. Farsæll í sínu starfi sem arkitekt, hafði yfirleitt nóg að gera hvort sem það var upp- gangur eða niðursveifla. Tók hvoru tveggja af stóískri ró enda mikilvægari hlutir til í veröldinni heldur en vinnan, þó vissulega hafi hún verið honum mikilvæg. Og svo var það Elísabet. Þau voru glæsileg bæði tvö og góð saman. Hann talaði mikið um hana og var stoltur af henni. Þau nutu lífsins saman og hennar andlát fyrir ári síðan var harm- dauði. Við eigum góðar minning- ar af því að sjá þau koma í heim- sókn, brosandi bæði tvö, iðandi af tilhlökkun yfir fríi og ferða- lagi, eða bara skemmtilegu fjöl- skylduboði, eins og tveir ung- lingar á fyrsta stefnumóti. Við vottum elsku Telmu og Björgúlfi, eftirlifandi börnum Sigga, og fjölskyldunni allri okk- ar innilegustu samúð. Sigríður Ragna Jónsdóttir og Auðunn Atlason. Skyndilegt fráfall félaga og vinar breytir glaðværðinni í Kramhúsinu í sorg og söknuð þar sem við tökum höndum sam- an í minningu Sigurðar Björg- úlfssonar. Aldrei framar mun hann verða þjáningarbróðir okk- ar í armbeygjum, sem við teljum að fari fjölgandi með hækkandi aldri í leikfimihópnum. Hann mun ekki fara oftar í „hundinn“ eða verða hvatamaður að „slök- un“, sem var hans uppáhalds- æfing. Hver mun nú færa okkur kodda og teppi í slökunina þegar Sigga nýtur ekki lengur við? Og hver mun taka að sér að teygja fimmtudagskaffið yfir í öll mögu- leg tilefni á öðrum dögum? Sannleikurinn er sá að Sig- urður var kúnstner í mannlegum samskiptum. Það sjáum við svo glöggt þegar hann er allur. Oft- ast var hann með glettnissvip í augum, spaugileg sjónarhorn í tilsvörum og hláturkumrið á sín- um stað. Fasið var afslappað og svolítið bóhemískt. Það var alltaf tilhlökkun að hitta hann vegna þess hvað hann hafði þægilega nærveru. Siggi var í hópi þeirra inni- setumanna sem stofnuðu til leik- fimihópsins sem nú hefur púlað í 28 ár samfleytt undir styrkri og strangri leiðsögn Sóleyjar Jó- hannsdóttur. Drengir Sóleyjar er þessi hópur nú nefndur eftir að hafin var þátttaka í Gullald- arleikum Evrópska leikfimisam- bandsins. Við höfðum fyrir nokkru hafið æfingar fyrir næstu leikfimihátíð sem haldin verður í Pesaro á Ítalíu í september næstkomandi. Þar ætlaði „Bjorgulfson“ að vera fararstjóri hópsins um slóðir sem hann gjörþekkti og leiða okkur fyrir sjónir ekta ítalska menningu í gömlum fjallaþorpum. Rétt er að taka fram að eiginkonur Drengja Sóleyjar hafa jafnan tekið þátt í sýningaratriðum hópsins. Siggi ætlaði ekki að láta sig vanta á Ítalíu enda þótt Elísabet stigi ekki lengur með honum taktinn af sínum yndisþokka. Elísabet Alda Pétursdóttir andaðist fyrir réttu ári eftir stranga sjúkdómslegu. Einhvern veginn er sú staðreynd huggun- arrík að stutt varð á milli þeirra hjóna vegna þess að þau höfðu deilt kjörum frá námsárum í Kaupmannahöfn og þolað saman súrt og sætt. Elísabet og Sig- urður voru glæsilegt par og sálu- félagar. Engum duldist hve hann mat konu sína mikils og hversu mikið andlát hennar fékk á hann. Engu að síður var hann staðráð- inn í að njóta hverrar stundar sem gæfist og skoða heiminn með börnum og vinum. En líf mannlegt endar skjótt, alltof fljótt finnst okkur sem söknum Elísabetar og Sigurðar. Leikfimihópurinn er fyrir löngu hættur að snúast eingöngu um að liðka stirða liði og styrkja slappa vöðva. Hann er okkar fé- lagsmiðstöð og sálubót inn í dag- ana. Ein driffjöður er nú brostin í undirvagninum en við munum skrölta áfram veginn með minn- inguna um Sigurð sem aflgjafa. Við vottum börnum Elísabet- ar og Sigurðar og öðrum að- standendum okkar innilegustu samúð. F.h. leikfimifélaganna, Einar Karl Haraldsson. Það var þungbært að heyra að okkar kæri samstarfsmaður og vinur væri fallinn frá. Skarðið sem eftir situr er stórt en eftir lifa góðar minningar um Sigga sem var í senn stórskemmtilegur og með afar góða nærveru. Sigga var annt um samstarfs- fólk sitt og sýndi okkur á Vinnu- stofu Arkitekta hf., VA, mikla góðvild og hlýju. Hann blés já- kvæðum anda inn í stofuna, suma morgna með Karíba-brauði úr Bernhöftsbakaríi sem skyldi neytt með þykku lagi af smjöri. Með brauðinu fylgdu fimmaura- brandarar, misgóðir að sjálf- sögðu, og skrautlegar sögur frá ferðalögum hans og Lísu til framandi landa. Aðra morgna kom Siggi beint úr vinnu eftir leikfimi sem hann sótti sam- viskusamlega með Rikka og Hróbjarti. Þegar svo bar undir fengum við samstarfsfólkið oft að vita hvernig straumarnir lágu í þjóðfélaginu og í hvaða átt væri æskilegt að halda með íslenskt samfélag. Siggi var góður arkitekt og hokinn af reynslu. Í þeim efnum deildi hann þekkingu sinni með okkur yngri arkitektunum á sinn rólega og afslappaða hátt. Í leið- sögn sinni laumaði hann gjarnan að litlum brandara og flókinn þakfrágangur var þá orðinn að viðráðanlegu verkefni. Siggi hafði næmt auga fyrir smáatriðum í byggingarlistinni og lausnum þeim tengdum, en var í senn heimsborgari sem sá stóru myndina. Á ferðalögum var engu líkara en öll lífsorkan sem viðkomandi borg bjó yfir endurbirtist í Sigga, í formi mik- illar gleði og söngs. Þessu kynnt- umst við á ferðalögum okkar á stofunni til Barselóna og Lissa- bon. Siggi setti mikinn lit á vinnuumhverfið og í öllum sam- kvæmum og ferðalögum stofunn- ar voru hann og Lísa hrókar alls fagnaðar. Líflegra og skemmti- legra par var vandfundið. Það er erfitt að ganga fram hjá vinnuborði Sigga nú þegar hann er þar ekki lengur. Á sama tíma brýst þó þakklætið fram til okkar vinnufélaganna fyrir fjöl- margar frábærar stundir; við vinnuborðið, á kaffistofunni eða á ferðalögum til spennandi áfangastaða. Innblásin af tíma okkar með Sigga stefnum við bjartsýn inn í framtíðina. Fyrir hönd starfsmanna VA, Bjarki Gunnar Halldórsson og Magdalena Sigurðardóttir. Það var í kringum 1980 að ný- útskrifaðir arkitektar tóku að skila sér heim í meiri mæli en áð- ur hafði þekkst. Við vorum þó ekki fleiri en svo að við þekkt- umst flest eða kunnum deili hvert á öðru. Siggi Björgúlfs kom heim frá Kaupmannahöfn 1981 og stofnar tveimur árum síðar ásamt þeim Geirharði, Hróbjarti, Richard Briem og Sigríði Sigþórs Vinnustofu Arki- tekta hf. Þetta var framsækinn hópur sem innleiddi nýjungar í mótun bygginga og skipulags og naut velgengni þegar í upphafi. Meðal jafnaldra hans var uppi orðrómur um að Siggi hefði næma tilfinningu fyrir hinu list- ræna og legði gjarnan lokahönd á útlitsmyndir, það rímaði líka við heimsborgaralegt yfirbragðið og meðfædda glæsimennsku. Fjölmargar byggingar litu dags- ins ljós á þessum tíma, Seljahlíð, SEM húsið, Ísafjarðarkirkja, Vitatorg og saman teiknuðu þeir Rikki sér nýstárlegt parhús við Suðurgötu sem féll að byggð sem fyrir var þannig að til eftir- breytni er. Siggi kom að hönnun Bláa Lónsins þar sem næm tilfinning fyrir smáatriðum naut sín og var arkitekt Ingunnarskóla, fagur- lega mótaðrar byggingar sem boðaði nýja tíma í hönnun skóla- bygginga. Margar smærri bygg- ingar liggja eftir Sigga sem bera vitni um agað formskyn og glöggt auga. Nú er hálfur fjórði áratugur síðan stofan hóf göngu sína og margt borið við á langri leið. Starfsmenn hafa komið og farið, kreppur hafa komið og farið en Vinnustofan hefur lifað það allt af, ekki síst vegna þess að um- hyggja fyrir starfsmönnum og vitundin um að líðan þeirra skipti öllu hafa ráðið för. Siggi skildi mikilvægi þessa, var upp- örvandi við yngri starfsmenn og óspar á hvatningarorð. Greinar- ritari gekk til liðs við VA fyrir rúmum áratug og skynjaði fljótt að þegar mikið stóð til var Siggi jafnan staddur í miðju atburða- rásarinnar, hrókur alls fagnaðar. Jólaböll VA, þar sem Siggi stýrði innkaupum, skreytti jólatréð og smurði flatkökur, hafa verið ár- legt tilhlökkunarefni. Og utan- landsferðirnar, við sátum kannski 30 manns á veitingahúsi og það hvarflaði ekki annað að staðarhöldurum en Siggi færi fyrir hópnum, aðrir komu ekki til greina. Í þessum ferðum upp- lifðum við þá sérgáfu hans að ná til ólíkasta fólks, maður hafði á tilfinningunni að ókunnugir, eftir örstutt spjall, tryðu honum fyrir sínum einkalegustu málum í smáatriðum. Okkur var ljóst að Sigga var mjög brugðið þegar Lísa veiktist og féll frá svo alltof snemma. Þessi glæsilega, gáfaða og skemmtilega kona átti hug hans allan og var ómissandi í okkar hópi. Það er gott að hugsa til þess núna að þau biðu ekki með það að njóta tilverunnar eins og vill henda en lögðu land undir fót, heimsóttu fjarlægar slóðir. Einhvern tíma setti Siggi góð- látlega ofan í við greinarritara fyrir að ofnota orðið vinur, þeir væru örfáir í lífi hvers og eins sem verðskulduðu þann titil. En mótsögnin hér er sú að við öll hér á VA áttum hann að vini því vinur er það sem hann var í raun. Við erum þakklát fyrir þá dýrðardaga sem við vorum sam- ferða Sigga og Lísu og vottum þeim Telmu, Björgúlfi, Ívari og barnabörnunum okkar dýpstu samúð. Fyrir hönd VA arkitekta, Ólafur Ó. Axelsson. Ég hitti fyrst Sigga haustið 1991 þegar ég gekk óstyrkum skrefum upp á þriðju hæð á Skólavörðustig 12 í atvinnuleit. Það varð mér til gæfu að Siggi sá eitthvað í mér, og úr varð að við vorum starfsfélagar í 27 ár. Ég verð honum ævinlega þakklátur bæði fyrir ráðninguna og sam- ferðina. Það varð úr að við Siggi unn- um sameiginlega að mörgum verkum, bæði hér á landi sem og erlendis. Því var það að við vor- um margoft ferðafélagar. Þar sem ég er sjálfur frekar hlé- drægur að eðlisfari þá þótti mér alltaf mikil styrkur í að hafa Sigga með í för. Hann var mann- blendinn, skemmtilegur og gat með einhverju móti fundið upp á umræðuefni við nánast hvern sem er. Ég man eftir ófáum skiptum þar sem ég kom að hon- um í anddyri hótels, á veitinga- stað eða bara úti á götu að slá upp samtali við ókunnuga. Að þessum samtölum loknum var hann iðulega tilbúinn með ein- hvern fróðleik um hvað væri merkilegast að sjá, hvar væri best að borða, eða bara hvers- dagslegt innsæi um þá sem hann hafði talað við. Ferðalag með Sigga var þannig alltaf aðeins auðugra en það hefði annars ver- ið. Fyrir nokkrum árum unnum við Siggi saman að hönnun nýs hjúkrunarheimilis á Ísafirði. Við komust þá að því að dagsferð til Ísafjarðar að vetrarlagi með flugi getur auðveldlega orðið lengri en lagt er upp með. Siggi tók slíkum uppákomum af heim- spekilegri ró. Hann rölti þá mak- indalega inn í næstu kjörbúð og keypti tannbursta, fann svo hótel og góðan veitingastað. Alltaf sló Siggi á létta strengi við staðar- menn, og hafði fljótlega samið við veitingamann um að við fengjum að spila ballskák óhindrað fram eftir kvöldi gegn því að við keyptum veitingar jafnt og þétt. Svo reyndi hann af mestu þolinmæði og rólyndi að kenna mér að halda á kjuða. Það var ekkert það ólán sem Siggi gat ekki umbreytt í skemmtun. Svona var Siggi. Hann bætti all- ar kringumstæður með nærveru sinni, og það eitt er í raun eina arfleifðin sem er einhvers virði að skilja eftir sig að æviskeiði loknu. Indro Indriði Candi. Lífskúnstnerinn Sigurður Björgúlfsson léttir nú ekki leng- ur lund okkar vina hans og fé- laga. Er þá skammt stórra högga á milli því okkar ástkæra Lísa féll frá fyrir rúmu ári. Kynni af Sigga ná langt aftur í tímann en treystust enn frekar þegar hann tók að ferðast með okkur til framandi landa. Ekki skal hér fjölyrt um störf hans að teikningum. Þar tala sínu máli þau fjölmörgu verðlaun sem hann og félagar hans á stof- unni hafa unnið til en þar fer fá- gætur smekkur saman við fram- úrskarandi hönnun. Siggi hafði yndi af því að blanda geði við fólk. Hnyttni hans og sá eiginleiki að sjá menn og málefni í jákvæðu og jafn- framt gáskafullu ljósi gerir hann minnisstæðan. Hvert sem var málefnið, var unun að eiga orða- stað við okkar góða vin og af slíkum fundi fóru menn ætíð glaðsinna. Verður hans því sárt saknað. Við biðjum almættið að styrkja börn hans og skyldmenni og vonum að á Ódáinsvöllum megi Siggi finna aftur sína elsku Lísu. Erla og Árni. „The wind is in from Africa // last night I couldn’t sleep …“ Þetta spilaði hann aftur og aftur þar til mamma hans bankaði á dyrnar og spurði: „Siggi minn, er ekki allt í lagi?“ Það var kannski ekki allt í lagi. Siggi var með unglingaveikina. Hann hlustaði á Joni Mitchell-plötuna þar til grammófónninn gafst upp. Hann var þá á svipaðan hátt búinn að afgreiða The Rolling Stones. Ég kynntist Sigurði Björg- úlfssyni fyrst í Austurbæjarskól- anum. Þetta var þá hávaxinn sláni og mjög dökkhærður. Hann var alveg ófeiminn drengur og talaði við alla, háa sem lága. Þá var skólinn þrísetinn og kenn- arar kvörtuðu ekki. Kennari Sigga var Baldur Georgs, hvers vinur er nú á Þjóðminjasafninu. Þéttbýlismyndun var hafin sem átti vel við Sigga. Foreldrar hans höfðu reynt að fara með hann út á land en vanlíðan byrjaði strax í Ártúnsbrekkunni. Urð og grjót sagði hann og taldi það ótamda hesta sem pissuðu bara þar sem þeir stóðu. Ég held að áhugi Sigga hafi þá þegar verið farinn að beinast að húsagerðarlist. Hann fór samt fyrst í Kennaraskólann og klár- aði kennaramenntun. Leiðir okk- ar lágu svo aftur saman einmitt fyrir ofan Ártúnsbrekkuna þeg- ar ráðist var í gerð Vesturlands- vegar og í minningunni fannst okkur að bara við tveir hefðum gert þennan veg alla leið upp í Kollafjörð. Þar var mikið unnið og allar helgar og lítill tími til að skemmta sér en tókst nú samt. Og hvort það voru nú kynni af sveitinni uppi í Kollafirði eða eitthvað annað tókst Sigga þetta sumar að kynnast tilvonandi konunni sinni sem var úr norð- lenskri sveit. Hann safnaði líka fé til að byrja í arkitektúr í Árós- um og þangað fór hann til náms um haustið. Enn lágu leiðir okkar saman í Kaupmannahöfn þar sem ég var í framhaldsnámi. Þá hafði Elísa- bet flutt til Sigga og þau eignast dótturina Helen. Siggi vildi síðan skipta yfir í akademíuna í Kaup- mannahöfn sem var líka stærri borg. Tilviljun réð að honum var úthlutað íbúð á Sólbakkanum, tveimur hæðum fyrir ofan mig. Árið 1979 lést Helen litla af völdum heilahimnubólgu. Siggi og Elísabet fluttu af Sólbakkan- um í Charlottenlund þar sem þau bjuggu á meðan hann klár- aði námið. Telma Ingibjörg fæddist í maí 1980. Stuttu seinna fluttu þau til Ís- lands og Siggi fékk fljótlega vinnu á arkitektastofu við Skóla- vörðustíginn. Á nýársdag 1994 eignuðust þau Björgúlf Kristófer sem varð leikfélagi sona minna og tíður samgangur fjölskyldna okkar hélt áfram. Siggi var ein- staklega tryggur og hjálpsamur vinur. Elísabet greindist með krabbamein árið 2016 og ann- aðist Siggi hana í erfiðum veik- indum sem hún lést úr í maí 2017. Andlát hans sjálfs dynur yfir eins og reiðarslag, aðeins ári eftir andlát Elísabetar. Missirinn er sár. Elsku Björgúlfur, Telma og aðrir aðstandendur, við Anna Dóra og drengirnir samhryggj- umst ykkur innilega. Hafliði M. Guðmundsson og fjölskylda. Sigurður Björgúlfsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.