Fréttablaðið - 12.07.2018, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —1 6 3 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r F i M M t u d a g u r 1 2 . j ú l Í 2 0 1 8
Fréttablaðið í dag
sKOðun Gunnlaugur Stefánsson
skrifar um laxeldi án heimilda. 18
spOrt Uppgjör á fyrri umferð
Pepsi-deildar karla. 24
Menning Fiðludúettinn Bachelsi
sem nálgast tónverk Bachs á
nýjan hátt er með ókeypis tón-
leika í Gerðarsafni í Kópavogi. 32
lÍFið Tónlistarfólk fær stundum
nóg af starfinu enda
er engin stimpil-
klukka í lífi lista-
mannsins. Þó
gengur ekki
alltaf vel að
hætta og fólk
hættir við að
hætta. 42
FRÁBÆR FJÖLSKYLDUMYND FRÁ FRAMLEIÐENDUM
SHREK
CHARMING
KOMIN Í BÍÓ
KjaraMál Hluti forstöðumanna
ríkisstofnana íhugar hvort rétt sé
að stefna ríkinu vegna lokalauna-
ákvörðunar kjararáðs. Gríðarleg
óánægja ríkir innan Félags for-
stöðumanna ríkisins (FFR) að sögn
formanns þess.
Í síðustu viku var síðasta launa-
ákvörðun kjararáðs birt en
stjórnvaldið var lagt niður um
mánaðamótin. Þar voru laun 48 for-
stöðumanna hækkuð á einu bretti
og var vegin meðaltalshækkun
tæp ellefu prósent. Menn fengu þó
mismikið, sumir tæp tvö prósent
en aðrir rúm tuttugu. Ekki er hægt
að fullyrða nákvæmlega um allar
breytingar þar sem kjararáð hafði í
einhverjum tilvikum breytt launum
einhverra á síðustu árum án þess að
birta ákvörðun sína.
„Við funduðum síðasta mánudag
til að fara yfir stöðuna. Það er allstór
hópur sem átti erindi hjá ráðinu
sem ekki voru afgreidd,“ segir Gissur
Pétursson, forstjóri Vinnumála-
stofnunar og formaður FFR.
Gissur segir nákvæman fjölda
óafgreiddra erinda ekki liggja fyrir
en þau séu sennilega í kringum tíu.
Einhverjum erindum var vísað frá
kjararáði en öðrum var hreinlega
ekki svarað.
„Það er gífurleg óánægja í hópn-
um og við vitum ekki alveg hvernig
við eigum að koma henni frá okkur
eða hver tekur við henni eftir að
ráðið var lagt niður,“ segir Gissur.
Formaðurinn bendir á að í svana-
söng kjararáðs hafi menn hlotið
mismunandi afgreiðslu án þess að
það hafi verið rökstutt á nokkurn
hátt hverju það sætti.
„Við vitum eiginlega ekki hvers
konar afgreiðsla þetta var. Við
höfum ekkert fengið í hendurnar
nema ákvörðunina sem birt var,
engan frekari rökstuðning. Ein-
hverjir eru á mörkum þess að vilja
stefna ríkinu eða fjármálaráðherra
þar sem kjararáð hefur verið lagt
niður. Menn eru að velta því fyrir
sér hvernig sé best að snúa sér í því.
Það er sennilegast að einhver reyni
að sækja bætur vegna málsmeðferð-
arinnar því háttsemi kjararáðs er
brot á öllum stjórnsýsluaðferðum-
og reglum sem stofnanirnar, sem
við erum að stýra, þurfa að nota og
beita,“ segir Gissur.
Ekki liggur fyrir hvort af máls-
höfðun verður og þá hvort FFR
muni höfða það eða einstaklingar
innan félagsins með stuðningi þess.
„Það er gríðarlega mikil óánægja
meðal manna og þá sérstaklega
meðal þeirra sem enga afgreiðslu
fengu eða báru skarðan hlut frá
borði. Menn kunna ekki skýringu
á þessum vinnubrögðum eða hvað
þau eiga að fyrirstilla,“ segir Gissur.
Drög að frumvarpi um nýtt launa-
fyrirkomulag er nú til kynningar í
samráðsgátt ríkisstjórnarinnar en
það felur í sér að laun embættis-
manna verði ýmist lögákveðin eða
færð undir sérstaka deild fjármála-
ráðuneytisins. – jóe
Forstöðumenn
íhuga málsókn
Forstöðumenn ríkisstofnana telja að stjórnsýslu-
reglum hafi ekki verið fylgt hjá kjararáði. Hátt í tug
erinda var ekki svarað af ráðinu eða þeim vísað frá.
Það er sennilegast
að einhver reyni að
sækja bætur vegna málsmeð-
ferðarinnar því háttsemi
kjararáðs er brot á öllum
stjórnsýsluaðferðum- og
reglum sem stofnanirnar,
sem við erum að stýra, þurfa
að nota og beita.
Gissur Pétursson,
forstjóri
Vinnumála stofnunar
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, sjást hér ræða saman á
leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Brussel í gær. Íslensk starfssystir May, Katrín Jakobsdóttir, hlustar í
bakgrunni. Háværar kröfur Trumps Bandaríkjaforseta hafa sett mark sitt á fund NATO. NORDICPHOTOS/GETTY
plús sérblað l FólK
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
KjaraMál „Tilboð okkar eins og
það stendur er algjört lokatilboð og
það mun standa,“ segir Katrín Sif
Sigurgeirsdóttir, formaður samninga-
nefndar ljósmæðra.
Óvíst er með framhald viðræðna
ljósmæðra og ríkisins eftir að fundi
hjá Ríkissáttasemjara lauk í gær án
niðurstöðu og án þess að boðað yrði
til nýs fundar. Kröfur ljósmæðra
hljóða upp á heildarhækkun sem
nemur 17 til 18 prósentum. Katrín
segir mikinn einhug í ljósmæðrum en
óttast að brotthvarf úr stéttinni verði
ekki lagfært svo glatt.
„Það hafa fjölmargar ljósmæður
ráðið sig annað. Það gæti tekið fjöl-
mörg ár að lagfæra skaðann. Eftir því
sem tíminn líður þá slokknar eitthvað
í manni viljinn til að fara aftur inn í
kerfið.“ – sar / sjá síðu 4
Enginn afsláttur
hjá ljósmæðrum
hM 2018 Nú er ljóst að það verða Frakkland og Króatía
sem leika til úrslita á Heimsmeistaramótinu í knatt-
spyrnu karla. Króatía komst í úrslitaleikinn í fyrsta
skipti í sögunni með sigri á Englandi í seinni undan-
úrslitaleik mótsins í gærkvöldi.
Kylian Mbappe hefur skinið skærast hjá
franska liðinu, en þessi nítján ára gamli
framherji hefur skorað þrjú mörk á
mótinu til þessa og er markahæsti leik-
maður liðsins ásamt Antoine Griez-
mann.
Luka Modric er hins vegar heilinn
í króatíska liðinu og það eru fáar
sóknir þar sem hann er ekki hluti af
sóknaruppbyggingunni. Þessi 32 ára
gamli miðvallarleikmaður bindur
saman bæði varnar- og sóknarleik
króatíska liðsins.
Leikur liðanna fer fram á
Luzhn iki-leikvanginum í Moskvu
á sunnudaginn, en þar getur Frakk-
land orðið heimsmeistari í annað sinn
í sögunni. Króatía getur hins vegar skrifað
sig á spjöld sögunnar með sigri. – hó
Frakkar og Króatar í úrslit
1
2
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:5
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
5
E
-A
6
1
0
2
0
5
E
-A
4
D
4
2
0
5
E
-A
3
9
8
2
0
5
E
-A
2
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K