Fréttablaðið - 12.07.2018, Page 50
Við erum hætt!
… eða hvað?
Tónlistarfólk fær stundum algjörlega nóg af starf-
inu enda er engin stimpilklukka í lífi listamanns-
ins. Þá er oft gripið til þess ráðs að leggja niður
störf og finna sér annað að gera. Þó gengur ekki
alltaf vel að hætta og fólk hættir við að hætta.
Í síðasta skipti
Friðrik Dór heldur tónleikana Í síðasta
skipti á næstunni og eru margir aðdá-
endur söngvarans vafalaust að anda í
brúnan bréfpoka akkúrat núna – það
hljómar eins og Frikki ætli sér að halda
þessa tónleika og leggja svo hljóð-
nemann á hilluna. Það er þó alls ekki
þannig – hann er aðeins á leiðinni út í
nám á næsta ári og gerir ekki ráð fyrir
að syngja mikið meðan á því stendur.
Nostalgísk endurkomustund í Hörpu
Önnur sveitaballahljómsveit sem hætti á há-
tindinum. Írafár hætti í langan tíma en valdi svo
rétta augnablikið til að koma aftur – nostalgían
er í mikilli tísku og ákveðin kynslóð ólst upp við
tónlist sveitarinnar, það var fullkomin blanda og
Harpan troðfylltist á endurkomutónleikunum.
Endalausar endurkomur
Hljómsveitin Quarashi hefur hætt
svo oft í gegnum árin og komið
saman aftur að það er ómögulegt að
telja skiptin. Hverjir einustu tónleikar
sveitarinnar síðustu sirka 10 árin
hafa verið einhvers konar „reunion“
sem stendur yfir heilt sumar áður en
rokkrappararnir knáu „hætta“ aftur.
Við á Lífinu getum ekki beðið eftir
næstu endurkomu þeirra.
Endurkoma aldarinnar
Hnakkakóngarnir frá Selfossi hættu árið 2000,
eða fóru í ótímabundið hlé. Þetta var auðvitað
mikið áfall enda var sveitin á hátindi frægðar-
innar. Flestir landsmenn áttu annaðhvort Honda
Civic eða Subaru Impreza, voru með strípur eða
með þykkbotna buffalo-hlunka í skóhillunni.
Sveitin snéri þó aftur í tæka tíð og tryllti sveita-
böllin á ný.
Ozzy fær leið á fjölskyldunni
Ozzy Osbourne tilkynnti sorgmæddum
aðdáendum sínum að hann væri búinn að
fá leið á því að vera aldrei heima hjá sér, geta
aldrei keyrt bílinn sinn eða hitt fjölskylduna.
Það er nú ósköp skiljanlegt, Ozzy er búinn
að vera í bransanum í ein 30 ár stanslaust og
virðist orðinn nokkuð rokkaður á líkama og
sál. Hann var þó byrjaður að túra um heiminn
aftur þremur árum síðar enda líklega orðinn
leiður á heimilinu, bílnum og fjölskyldunni.
Ekki kalla það endurkomu!
Ég hætti aldrei!
LL Cool J fékk nóg, loggaði sig inn á
Twitter og sendi aðdáendum sínum
kveðjubréfið í formi tísta um að hann
væri hættur þessu rugli. Nokkrum
mínútum síðar loggaði hann sig aftur inn
og eyddi þessum tístum. Svo komu ný
tíst í staðinn þar sem LL Cool J tilkynnti
það að hann væri kominn aftur.
Hálfleikur Jay-Z
The Black Album Jay-Z kom út árið 2003 og þar
sagði hann bless við bransann og „feidaði“ yfir
í svart. Hann fór í mikla tónleikaferð sem átti
að vera hans síðasta þar sem hann fékk með
sér fjölmarga gesti til að kveðja almennilega.
Síðan þá hefur hann gefið út fimm sólóplötur
og fjórar plötur með öðrum listamönnum
– þar á meðal plötuna Collis ion Course með
Linkin Park ári eftir að hann „hætti“. Þetta var
kannski bara hálfleiks-pása hjá honum.
Fréttablaðið/GVa
Fréttablað
ið
/an
to
n
brin
k
Fréttablaðið/SteFán
Fréttablaðið/Daníel
1 2 . j ú l í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R42 l í F I ð ∙ F R É T T A B l A ð I ð
Lífið
1
2
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:5
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
5
E
-E
1
5
0
2
0
5
E
-E
0
1
4
2
0
5
E
-D
E
D
8
2
0
5
E
-D
D
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K