Fréttablaðið - 12.07.2018, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 12.07.2018, Blaðsíða 50
Við erum hætt! … eða hvað? Tónlistarfólk fær stundum algjörlega nóg af starf- inu enda er engin stimpilklukka í lífi listamanns- ins. Þá er oft gripið til þess ráðs að leggja niður störf og finna sér annað að gera. Þó gengur ekki alltaf vel að hætta og fólk hættir við að hætta. Í síðasta skipti Friðrik Dór heldur tónleikana Í síðasta skipti á næstunni og eru margir aðdá- endur söngvarans vafalaust að anda í brúnan bréfpoka akkúrat núna – það hljómar eins og Frikki ætli sér að halda þessa tónleika og leggja svo hljóð- nemann á hilluna. Það er þó alls ekki þannig – hann er aðeins á leiðinni út í nám á næsta ári og gerir ekki ráð fyrir að syngja mikið meðan á því stendur. Nostalgísk endurkomustund í Hörpu Önnur sveitaballahljómsveit sem hætti á há- tindinum. Írafár hætti í langan tíma en valdi svo rétta augnablikið til að koma aftur – nostalgían er í mikilli tísku og ákveðin kynslóð ólst upp við tónlist sveitarinnar, það var fullkomin blanda og Harpan troðfylltist á endurkomutónleikunum. Endalausar endurkomur Hljómsveitin Quarashi hefur hætt svo oft í gegnum árin og komið saman aftur að það er ómögulegt að telja skiptin. Hverjir einustu tónleikar sveitarinnar síðustu sirka 10 árin hafa verið einhvers konar „reunion“ sem stendur yfir heilt sumar áður en rokkrappararnir knáu „hætta“ aftur. Við á Lífinu getum ekki beðið eftir næstu endurkomu þeirra. Endurkoma aldarinnar Hnakkakóngarnir frá Selfossi hættu árið 2000, eða fóru í ótímabundið hlé. Þetta var auðvitað mikið áfall enda var sveitin á hátindi frægðar- innar. Flestir landsmenn áttu annaðhvort Honda Civic eða Subaru Impreza, voru með strípur eða með þykkbotna buffalo-hlunka í skóhillunni. Sveitin snéri þó aftur í tæka tíð og tryllti sveita- böllin á ný. Ozzy fær leið á fjölskyldunni Ozzy Osbourne tilkynnti sorgmæddum aðdáendum sínum að hann væri búinn að fá leið á því að vera aldrei heima hjá sér, geta aldrei keyrt bílinn sinn eða hitt fjölskylduna. Það er nú ósköp skiljanlegt, Ozzy er búinn að vera í bransanum í ein 30 ár stanslaust og virðist orðinn nokkuð rokkaður á líkama og sál. Hann var þó byrjaður að túra um heiminn aftur þremur árum síðar enda líklega orðinn leiður á heimilinu, bílnum og fjölskyldunni. Ekki kalla það endurkomu! Ég hætti aldrei! LL Cool J fékk nóg, loggaði sig inn á Twitter og sendi aðdáendum sínum kveðjubréfið í formi tísta um að hann væri hættur þessu rugli. Nokkrum mínútum síðar loggaði hann sig aftur inn og eyddi þessum tístum. Svo komu ný tíst í staðinn þar sem LL Cool J tilkynnti það að hann væri kominn aftur. Hálfleikur Jay-Z The Black Album Jay-Z kom út árið 2003 og þar sagði hann bless við bransann og „feidaði“ yfir í svart. Hann fór í mikla tónleikaferð sem átti að vera hans síðasta þar sem hann fékk með sér fjölmarga gesti til að kveðja almennilega. Síðan þá hefur hann gefið út fimm sólóplötur og fjórar plötur með öðrum listamönnum – þar á meðal plötuna Collis ion Course með Linkin Park ári eftir að hann „hætti“. Þetta var kannski bara hálfleiks-pása hjá honum. Fréttablaðið/GVa Fréttablað ið /an to n brin k Fréttablaðið/SteFán Fréttablaðið/Daníel 1 2 . j ú l í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R42 l í F I ð ∙ F R É T T A B l A ð I ð Lífið 1 2 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :5 3 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 5 E -E 1 5 0 2 0 5 E -E 0 1 4 2 0 5 E -D E D 8 2 0 5 E -D D 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.