Fréttablaðið - 14.06.2018, Blaðsíða 38
Á hverj-
um
leikstað erum
við með fjög-
urra manna
sveit frá okkur
sem mætir á
undan liðinu á
leikstaði og
verður til
aðstoðar, hvort
sem um ræðir
fjölskyldur
leikmanna eða
almenna
stuðnings-
menn lands-
liðsins.
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@frettabladid.is
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is
Opið alla virka daga 10–18 | Laugardaga 11–16
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Bók sem
börnin vilja
• VIÐTÖL VI
Ð LEIKMENN
• STIGATÖF
LUR
• ÆFINGAR
• LEIÐ ÍSLAN
DS Á HM
Fræðandi og skemmtileg
bók sem fótboltaaðdáendur
munu gleyma sér yfir!
Undirbúningurinn hófst í raun áður en við unnum sæti á HM. Það er komið eitt
og hálft ár síðan við völdum okkur
hótel. Þegar tryggt var að liðið
færi út fór allt á fullt. Eitt af því
fyrsta sem við gerðum var að ráða
inn fleira starfsfólk til að halda
utan um skipulagið allt. Svo hófst
vinnan og verkefnin hafa verið
tekin fyrir eitt af öðru,“ segir Klara
Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ
og fararstjóri íslenska landsliðsins
í Rússlandi, en hún gaf sér nokkrar
mínútur í spjall áður en hópurinn
lagði af stað til Rússlands á laugar-
daginn.
Þá var undirbúningurinn á loka-
sprettinum og óteljandi handtök
og margra mánaða vinna að skila
sér.
„Því er ekki að neita að þetta
er mun flóknara verkefni en
þegar liðið fór á EM í Frakklandi.
Megin skipulagningin fer fram á
skrifstofunni og þar erum við með
fjölmiðladeild, landsliðsdeild og
miðadeild. Þetta er tíu manna
hópur sem heldur utan um papp-
írshlið mála og nagar blýantana.
Svo kemur fjöldi fólks að öðrum
þáttum sem tengjast liðinu sjálfu
eins og þjálfarar, sjúkraþjálfarar
og margir fleiri. Farnar voru tvær
ferðir þvers og kruss um Rússland
til að skoða hótel og eftir að það
var klárt hafa tvær vettvangsferðir
verið farnar. Þá fór hópur út um
daginn á undan landsliðinu sjálfu
til að undirbúa komu þess út,“
segir Klara.
Samstarfið við rússneska kollega
hafi gengið vel.
„Við óskuðum eftir ákveðinni
uppfærslu á hótelinu og brugðist
var vel við öllum okkar kröfum.
Við erum með langa tékklista og
tékklista yfir tékklistana og þeim
boxum sem eftir á að tikka í fækkar
hratt. Þetta er allt að smella. Helsta
vandamálið sem við þurftum að
kljást við var að fá nógu gott þráð-
laust net. En gott netsamband er
nauðsynlegt, bæði fyrir liðsmenn
og þjálfara og alla sem að þessu
standa,“ segir Klara.
Ekki væsi því um íslenska lands-
liðið og passað verði vel upp á
góðan mat og drykk.
„Nú fara tveir kokkar með okkur
út sem er breyting frá því á EM. Við
verðum með okkar eigin eldhús og
fáum aðstöðu á hótelinu til þess.
Kokkarnir kaupa inn og sjá alfarið
um að elda ofan í liðið. Að vissu
leyti er þetta hagkvæmara og auð-
veldara fyrir okkur, að stjórna því
hvað við fáum. Í Rússlandi er ekk-
ert að hráefninu en matreiðslan
er kannski önnur. En við verðum
með þaulreynda kokka með okkur.
Leikmenn borða oft og þurfa mikla
og góða næringu,“ segir Klara.
Hópurinn heldur þó ekki
einungis utan um mál landsliðsins
heldur þjónustar fjölskyldur leik-
manna og aðstoðar einnig stuðn-
ingsmenn liðsins.
„Á hverjum leikstað erum við
með fjögurra manna sveit frá
okkur sem mætir á undan liðinu
á leikstaði og verður til aðstoðar,
hvort sem um ræðir fjölskyldur
leikmanna eða almenna stuðn-
ingsmenn landsliðsins. Þá verður
okkar besta manneskja í miðamál-
um úti allan tímann til taks,“ segir
Klara. Greinilega er því vel búið
um hnútana enda segir hún engan
taugatitring að finna í undirbún-
ingshópnum.
„Ég hef ekki miklar áhyggjur af
nokkrum hlut. Við erum mjög vel
undirbúin og skipulögð og mjög
vel mönnuð. Við erum líka með
góðan stuðning af skrifstofunni
heima meðan á keppni stendur.
Auðvitað mun eitthvað koma upp
og örugglega á eftir að koma í ljós
að eitthvað gleymdist en við erum
reiðubúin að bregðast við öllu sem
kemur upp þegar það kemur.“
Ekki áhyggjur
af nokkrum hlut
Undirbúningur þátttöku Íslands í Heimsmeistaramótinu
í fótbolta 2018 hefur staðið yfir í tæp tvö ár. Klara Bjart-
marz, framkvæmdastjóri KSÍ, er fararstjóri liðsins.
Stuðningsmenn íslenska landsliðsins voru mættir á fyrstu æfingu liðsins í Rússlandi. MYND/EYÞÓR
10 KYNNINGARBLAÐ 1 4 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U RÁFRAM ÍSLAND
1
4
-0
6
-2
0
1
8
0
5
:1
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
2
1
-E
C
5
8
2
0
2
1
-E
B
1
C
2
0
2
1
-E
9
E
0
2
0
2
1
-E
8
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
9
6
s
_
1
3
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K