Fréttablaðið - 14.06.2018, Blaðsíða 52
Knattspyrnumenn Íslands risu ekki jafn hátt í alþjóðlegu umhverfi og viðskipta
menn landsins í aðdraganda hruns
íslenska bankakerfisins árið 2008.
Um miðjan októbermánuð árið
2007 fór íslenska karlalandsliðið
í knattspyrnu í eina sína mestu
sneypuför. Ísland sótti þá Liecht
enstein heim í undankeppni
Evrópumótsins sem haldið var
í Austurríki og Sviss árið 2008.
Liechtenstein fór með 30 sigur af
hólmi sem er stærsti sigur þessarar
smáþjóðar í undankeppni stór
móts. Þetta var raunar einungis
annar sigur Liechtenstein í undan
keppni Evrópumóts í sögunni.
Á sama degi var hins vegar ljósið
í myrkri íslenskrar knattspyrnu á
þeim tíma að spila með U19 ára
landsliði Íslands sem atti kappi
við Rúmena. Gylfi Þór Sigurðsson
skoraði þar annað marka íslenska
Frá smán í Liechtenstein
til hæstu hæða í Rússlandi
liðsins í 20 sigri í undankeppni
Evrópumótsins árið 2008 í þeim
aldursflokki. Gylfi Þór minnti svo
enn frekar á sig þegar hann skoraði
þrjú mörk fyrir Ísland í milliriðli
undankeppninnar.
Haustið 2007 voru leikmenn á
borð við Aron Einar Gunnarsson,
Ara Frey Skúlason, Birki Bjarnason,
Rúrik Gíslason, Kolbein Sigþórsson
og Hólmar Örn Eyjólfsson, þrátt
fyrir ungan aldur, burðarásarnir
í U21 árs landsliðinu. Gylfi Þór
braut sér svo leið inn í þetta lið um
þetta leyti eftir vaska framgöngu
sína með U19 ára landsliðinu.
Það var svo í undankeppni fyrir
Evrópumót U21 árs landsliða
sem haldið var í Danmörku árið
2011 sem núverandi lykilleikmenn
íslenska landsliðsins stukku hressi
lega fram á sjónarsviðið. Alfreð
Finnbogason, sem átti hvorki leik
fyrir U17 eða U19 ára landslið
Íslands, var markahæsti leikmaður
liðsins í þeirri undankeppni ásamt
Jóhanni Berg Guðmundssyni með
fimm mörk. Rúrik Gíslason kom
næstur með fjögur mörk og Gylfi
Þór og Kolbeinn skoruðu þrjú
mörk hvor.
Segja má að sigur þessa liðs á
Þýskalandi í Kaplakrika í þessari
undankeppni í ágúst árið 2010 hafi
kveikt von í brjóstum íslenskra
knattspyrnuáhugamanna um að
bjartari tímar væru fram undan
hjá íslenska Alandsliðinu í karla
flokki. Ísland tryggði sér svo þátt
tökurétt í lokakeppni mótsins með
sigri gegn Skotlandi þar sem Gylfi
Þór minnti hressilega á sig með
stórglæsilegu marki í leik liðanna
ytra.
Aroni Einari var svo kastað út í
djúpu laugina af Ólafi Jóhannes
syni og Pétri Péturssyni í undan
keppni heimsmeistaramótsins
2010, en hann lék þar sinn fyrsta
mótsleik einungis 19 ára gamall
og lék alls sjö leiki í þeirri undan
keppni. Sú reynsla sem hann fékk í
undankeppninni var einn af fáum
ljósum punktum í þeirri undan
keppni, en það átti svo sannarlega
eftir að skila sér þegar fram í sótti.
Fleiri leikmenn fylgdu svo í
djúpu laugina með Aroni Einari
í undankeppni Evrópumótsins
árið 2012. Birkir Bjarnason, Gylfi
Þór, Jóhann Berg, Rúrik og Kol
beinn voru allir farnir að gera
sig gildandi hjá liðinu þrátt fyrir
ungan aldur og báru liðið uppi í
þessari undankeppni. Alfreð Finn
bogason fékk nokkra leiki og þá
lék Hannes Þór Halldórsson sinn
fyrsta mótsleik fyrir Alandsliðið í
undankeppninni.
Fyrrgreindir leikmenn tóku
svo við keflinu í bland við eldri
leikmenn í næstu undankeppnum
og hafa borið hróður íslenska
liðsins um víða veröld æ síðan.
Íslenska liðið var grátlega nálægt
því að komast í lokakeppni heims
meistaramótsins sem haldið var
í Brasilíu árið 2014, fór í átta liða
úrslit á Evrópumótinu árið 2016 og
heldur nú áfram að gera íslensku
þjóðina stolta með því að taka þátt
í lokakeppni heimsmeistaramóts í
fyrsta skipti í sögunni.
Ótrúlegur upp-
gangur hefur
verið í íslenskri
knattspyrnu í
karlaflokki síðasta
áratuginn. Mikið
vatn hefur runnið
til sjávar síðan
liðið var niður-
lægt af smáþjóð
haustið 2007.
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
www.fi.is
Ég fer á fjöll
í sumar
Ungir leikmenn
íslenska karlalands-
liðsins í knattspyrnu
fengu tækifæri ungir að
árum sem reyndist gulls
ígildi.
Gylfi Þór Sigurðsson með boltann í leik með íslenska U-21 árs landsliðinu
gegn Sviss á Evrópumótinu í Danmörku árið 2011. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Leikmenn íslenska liðsins fagna öðru marka sinna gegn Noregi í vináttulands-
leik liðanna á Laugardalsvellinum fyrr í þessum mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Gylfi Þór Sigurðsson og Birkir Bjarnason fagna vel og innilega dýrmætu marki
þess fyrrnefnda í leik Íslands gegn Kósóvó síðasta haust. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
24 KYNNINGARBLAÐ 1 4 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U RÁFRAM ÍSLAND
1
4
-0
6
-2
0
1
8
0
5
:1
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
2
1
-F
B
2
8
2
0
2
1
-F
9
E
C
2
0
2
1
-F
8
B
0
2
0
2
1
-F
7
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
9
6
s
_
1
3
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K