Fréttablaðið - 14.06.2018, Blaðsíða 60
Hannes Þór Hall-
dórsson lék sinn
fyrsta landsleik 27 ára
gamall og hefur ekki gefið
öðrum markmönnum
færi á að hrifsa af sér
markmannsstöðuna
síðan hann lék þann leik.
Faxafeni 11 • Sími 534 0534
Finndu okkur á
Nú styttist í HM!
Opið 17. júní!
32 KYNNINGARBLAÐ 1 4 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U RÁFRAM ÍSLAND
Hannes Þór Halldórsson lék sinn fyrsta A-landsleik í septemberbyrjun árið 2011,
en hann var þá 27 ára gamall og
átti engan leik að baki fyrir yngri
landslið Íslands. Hannes Þór var
þá leikmaður KR, en hann hafði
gengið til liðs við félagið fyrir
keppnistímabilið 2011 og varð
tvöfaldur meistari með KR á sínu
fyrsta tímabili með Vesturbæjar-
liðinu.
Hannes Þór var verðlaunaður
fyrir frammistöðu sína með KR
með sæti í landsliðinu og hefur
hann ekki litið til baka síðan. Ef
litið er hins vegar til baka á leik-
mannsferil hans má furðu sæta
að þessi geðþekki kvikmynda-
leikstjóri sé á leiðinni til Moskvu
að koma í veg fyrir það að Lionel
Messi, einn besti leikmaður knatt-
spyrnusögunnar, komi boltanum
í netmöskva íslenska liðsins á
stærsta sviði knattspyrnunnar.
Framan af ferlinum glímdi þessi
uppaldi Leiknismaður við erfið
axlarmeiðsli sem gerðu honum
erfitt um vik og komu í veg fyrir
að hann kæmist í hæstu hæðir
með feril sinn. Þegar Hannes Þór
var um tvítugt gekk honum illa að
brjóta sér leið inn í uppeldisfélag
sitt, Leikni, og leitaði því á önnur
mið. Fræg er sagan af því að Númi,
sem þá lék í þriðju og neðstu deild
íslenskrar knattspyrnu, taldi sig
ekki hafa not fyrir íslenska lands-
liðsmarkvörðinn sem leit við á
æfingu hjá liðinu haustið 2004.
Tröppugangur hefur hins vegar
verið á ferli hans síðan þá og
kemst hann í hæstu tröppu þegar
hann mátar sig við bestu knatt-
spyrnumenn heims á stærsta sviði
knattspyrnunnar næstu vikurnar.
Hannes Þór spilaði með Aftur-
eldingu í 2. deildinni, Stjörnunni í
1. deildinni, Fram í efstu deild og
varð svo tvisvar Íslandsmeistari og
jafn oft bikarmeistari með KR.
Þá hefur Hannes leikið erlendis
með norsku liðunum Brann,
Sandnes Ulf og Bodø Glimt, hol-
lenska liðinu NEC og danska liðinu
Fékk ekki samning hjá Núma
en mætir nú Messi
Hannes Þór Halldórsson er skýrt dæmi þess að knattspyrnumenn eigi að stefna hátt og aldrei að
gefast upp. Hannes Þór var kominn á botninn þegar hann spyrnti við fótum og klifraði hærra og
hærra upp metorðastigann. Nú er hann kominn á hátindinn sem er sjálft heimsmeistaramótið.
Hannes Þór Halldórsson ræðir málin við Heimi Hallgrímsson á æfingu íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu í Kabardinka í Rússlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Hannes Þór æfir undir stjórn Guðmundar Hreiðarssonar, markmannsþjálfara íslenska liðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Randers þar sem hann leikur þessa
stundina. Hann hefur leikið 49
landsleiki, farið í átta liða úrslit
á Evrópumóti og tekst nú á við
stærstu áskorun sína á ferlinum, að
verja skot frá bestu leikmönnum
heims með augu heimsins á sér.
Hannes á Guðmundi Hreiðars-
syni, markmannsþjálfara íslenska
liðsins, mikið að þakka, en þeir
unnu saman hjá KR á sínum tíma
og tók hann stórstígum framförum
undir handleiðslu Guðmundar.
Hannes var vissulega öflugur mark-
maður en hafði sína vankanta.
Spyrnutækni, úthlaup og ákvörð-
unartaka Hannesar bötnuðu til
mikilla muna eftir að Guðmundur
komst með puttana í hann. Þá
jókst trúin á eigin hæfileika og
andlegur styrkur hans einnig
umtalsvert á tíma hans hjá KR og
síðar með íslenska landsliðinu.
Öskubuskuævintýri vekja jafnan
gleði og eftirtekt og það má með
sanni segja að Hannes sé að skrifa
enn einn kafla í ævintýri sitt sem
náði lægsta punkti á æfingu með
Núma á Tungubakkavelli í Mos-
fellssveit og nær nú hápunkti þegar
hann röltir út á Spartak-leikvang-
inn við hlið Messi og meðreiðar-
sveina hans á laugardaginn.
1
4
-0
6
-2
0
1
8
0
5
:1
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
2
1
-F
1
4
8
2
0
2
1
-F
0
0
C
2
0
2
1
-E
E
D
0
2
0
2
1
-E
D
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
9
6
s
_
1
3
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K