Fréttablaðið - 14.06.2018, Blaðsíða 44
Hér til vinstri má sjá Guðmund Benediktsson í leik með U-21 árs landsliðinu og að ofan má sjá Kristbjörgu Ingadóttur við þjálfun.
Albert Guðmundsson
Guðmundur Benediktsson
og Kristbjörg Ingadóttir
Albert Guðmundsson er af íslensk-
um fótboltaaðalsættum. Faðir
hans, Guðmundur Benediktsson,
lék tíu landsleiki á árunum 1994 til
2001 og skoraði tvö mörk. Móðir
Alberts, Kristbjörg Ingadóttir, lék
fjóra landsleiki 1996, árið áður en
Albert fæddist. Faðir hennar, Ingi
Björn Albertsson, lék 15 lands-
leiki og skoraði tvö mörk. Faðir
hans, Albert Guðmundsson, var
fyrsti atvinnumaður Íslands, lék
fyrsta landsleik Íslendinga 1946 og
skoraði tvö fyrstu mörk íslenska
landsliðsins. Albert eldri lék alls
sex landsleiki og skoraði tvö mörk.
Eplið féll ei langt frá eikinni
Fjórir leikmenn í íslenska HM-hópnum eiga foreldra sem hafa spilað fyrir íslenskt A-landslið. Hér
að neðan má sjá hvaða fjórir leikmenn þetta eru og afrek foreldra þeirra tíunduð í stuttu máli.
Rúnar Alex Rúnarsson
Rúnar Kristinsson
Markvörðurinn Rúnar Alex er
sonur Rúnars Kristinssonar, eins
besta fótboltamanns sem Ísland
hefur átt. Rúnar lék 104 lands-
leiki á árunum 1987 til 2004
og skoraði þrjú mörk.
Hann er eini íslenski fót-
boltamaðurinn sem hefur
leikið 100 landsleiki eða
fleiri. Rúnar lék með KR,
Örgryte, Lilleström og
Lokeren á löngum og far-
sælum ferli. Hann stýrði
KR á árunum 2010-14 og
Rúnar Alex steig sín fyrstu
skref í meistaraflokki undir
stjórn föður síns. Rúnar tók
aftur við KR síðasta haust
eftir að hafa þjálfað Lille-
ström og Lokeren.
Hólmar Örn Eyjólfsson
Eyjólfur Sverrisson
Varnarmaðurinn Hólmar Örn Eyj-
ólfsson er sonur Eyjólfs Sverrisson-
ar, fyrrverandi landsliðsfyrirliða og
-þjálfara. Eyjólfur lék 66 landsleiki
á árunum 1990 til 2001 og skoraði
tíu mörk, þar á meðal frægt mark
á móti heimsmeisturum Frakka á
Stade de France. Eyjólfur lék með
Tindastóli, Stuttgart, Besiktas og
Hertha Berlin. Hann varð bæði
þýskur og tyrkneskur meistari og
lék í Meistaradeild Evrópu. Eyj-
ólfur stýrði A-landsliðinu 2006-07
en hefur þjálfað U-21 árs landsliðið
síðan 2009 og kom því á EM 2011.
Hólmar lék undir stjórn föður síns
í U-21 árs landsliðinu.
Birkir Bjarnason
Bjarni Sveinbjörnsson
Birkir Bjarnason er sonur Bjarna
Sveinbjörnssonar sem lék lengst
af með Þór á Akureyri. Bjarni var
skæður framherji og var næst-
markahæsti leikmaður efstu
deildar 1992 og 1994. Hann spilaði
einnig eitt tímabil með ÍBV og eitt
með Dalvík. Bjarni lék einn lands-
leik, gegn Færeyjum 1985. Birkir
hefur verið lykilmaður í íslenska
landsliðinu á undanförnum árum.
Hann hefur leikið 67 landsleiki
og skorað níu mörk. Birkir hefur
leikið með Aston Villa síðan í árs-
byrjun 2017.
Bjarni Sveinbjörnsson á æfingu með Þór, en hann var afar drjúgur fyrir liðið.
Eyjólfur Sverrisson fær ráðleggingar frá Guðjóni Þórðarsyni í landsleik.
Amínósýrur, Rósepli, Cactus extract,
öflug blanda af B-vítamínum og Magnesíum.
Virkar vel gegn þynnku
2 töflur fyrir fyrsta drykk
2 töflur fyrir svefn
Fæst í apótekum og heilsuhillum verslana
www.artasan.is
Morgundagurinn
verður betri með
After Party
Náttúruleg lausn við timburmönnum
16 KYNNINGARBLAÐ 1 4 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U RÁFRAM ÍSLAND
1
4
-0
6
-2
0
1
8
0
5
:1
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
2
1
-F
B
2
8
2
0
2
1
-F
9
E
C
2
0
2
1
-F
8
B
0
2
0
2
1
-F
7
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
9
6
s
_
1
3
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K