Fréttablaðið - 14.06.2018, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 14.06.2018, Blaðsíða 52
Knattspyrnumenn Íslands risu ekki jafn hátt í alþjóð­legu umhverfi og viðskipta­ menn landsins í aðdraganda hruns íslenska bankakerfisins árið 2008. Um miðjan októbermánuð árið 2007 fór íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu í eina sína mestu sneypuför. Ísland sótti þá Liecht­ enstein heim í undankeppni Evrópumótsins sem haldið var í Austurríki og Sviss árið 2008. Liechtenstein fór með 3­0 sigur af hólmi sem er stærsti sigur þessarar smáþjóðar í undankeppni stór­ móts. Þetta var raunar einungis annar sigur Liechtenstein í undan­ keppni Evrópumóts í sögunni. Á sama degi var hins vegar ljósið í myrkri íslenskrar knattspyrnu á þeim tíma að spila með U­19 ára landsliði Íslands sem atti kappi við Rúmena. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði þar annað marka íslenska Frá smán í Liechtenstein til hæstu hæða í Rússlandi liðsins í 2­0 sigri í undankeppni Evrópumótsins árið 2008 í þeim aldursflokki. Gylfi Þór minnti svo enn frekar á sig þegar hann skoraði þrjú mörk fyrir Ísland í milliriðli undankeppninnar. Haustið 2007 voru leikmenn á borð við Aron Einar Gunnarsson, Ara Frey Skúlason, Birki Bjarnason, Rúrik Gíslason, Kolbein Sigþórsson og Hólmar Örn Eyjólfsson, þrátt fyrir ungan aldur, burðarásarnir í U­21 árs landsliðinu. Gylfi Þór braut sér svo leið inn í þetta lið um þetta leyti eftir vaska framgöngu sína með U­19 ára landsliðinu. Það var svo í undankeppni fyrir Evrópumót U­21 árs landsliða sem haldið var í Danmörku árið 2011 sem núverandi lykilleikmenn íslenska landsliðsins stukku hressi­ lega fram á sjónarsviðið. Alfreð Finnbogason, sem átti hvorki leik fyrir U­17 eða U­19 ára landslið Íslands, var markahæsti leikmaður liðsins í þeirri undankeppni ásamt Jóhanni Berg Guðmundssyni með fimm mörk. Rúrik Gíslason kom næstur með fjögur mörk og Gylfi Þór og Kolbeinn skoruðu þrjú mörk hvor. Segja má að sigur þessa liðs á Þýskalandi í Kaplakrika í þessari undankeppni í ágúst árið 2010 hafi kveikt von í brjóstum íslenskra knattspyrnuáhugamanna um að bjartari tímar væru fram undan hjá íslenska A­landsliðinu í karla­ flokki. Ísland tryggði sér svo þátt­ tökurétt í lokakeppni mótsins með sigri gegn Skotlandi þar sem Gylfi Þór minnti hressilega á sig með stórglæsilegu marki í leik liðanna ytra. Aroni Einari var svo kastað út í djúpu laugina af Ólafi Jóhannes­ syni og Pétri Péturssyni í undan­ keppni heimsmeistaramótsins 2010, en hann lék þar sinn fyrsta mótsleik einungis 19 ára gamall og lék alls sjö leiki í þeirri undan­ keppni. Sú reynsla sem hann fékk í undankeppninni var einn af fáum ljósum punktum í þeirri undan­ keppni, en það átti svo sannarlega eftir að skila sér þegar fram í sótti. Fleiri leikmenn fylgdu svo í djúpu laugina með Aroni Einari í undankeppni Evrópumótsins árið 2012. Birkir Bjarnason, Gylfi Þór, Jóhann Berg, Rúrik og Kol­ beinn voru allir farnir að gera sig gildandi hjá liðinu þrátt fyrir ungan aldur og báru liðið uppi í þessari undankeppni. Alfreð Finn­ bogason fékk nokkra leiki og þá lék Hannes Þór Halldórsson sinn fyrsta mótsleik fyrir A­landsliðið í undankeppninni. Fyrrgreindir leikmenn tóku svo við keflinu í bland við eldri leikmenn í næstu undankeppnum og hafa borið hróður íslenska liðsins um víða veröld æ síðan. Íslenska liðið var grátlega nálægt því að komast í lokakeppni heims­ meistaramótsins sem haldið var í Brasilíu árið 2014, fór í átta liða úrslit á Evrópumótinu árið 2016 og heldur nú áfram að gera íslensku þjóðina stolta með því að taka þátt í lokakeppni heimsmeistaramóts í fyrsta skipti í sögunni. Ótrúlegur upp- gangur hefur verið í íslenskri knattspyrnu í karlaflokki síðasta áratuginn. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan liðið var niður- lægt af smáþjóð haustið 2007. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS www.fi.is Ég fer á fjöll í sumar Ungir leikmenn íslenska karlalands- liðsins í knattspyrnu fengu tækifæri ungir að árum sem reyndist gulls ígildi. Gylfi Þór Sigurðsson með boltann í leik með íslenska U-21 árs landsliðinu gegn Sviss á Evrópumótinu í Danmörku árið 2011. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Leikmenn íslenska liðsins fagna öðru marka sinna gegn Noregi í vináttulands- leik liðanna á Laugardalsvellinum fyrr í þessum mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Gylfi Þór Sigurðsson og Birkir Bjarnason fagna vel og innilega dýrmætu marki þess fyrrnefnda í leik Íslands gegn Kósóvó síðasta haust. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 24 KYNNINGARBLAÐ 1 4 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U RÁFRAM ÍSLAND 1 4 -0 6 -2 0 1 8 0 5 :1 8 F B 0 9 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 2 1 -F B 2 8 2 0 2 1 -F 9 E C 2 0 2 1 -F 8 B 0 2 0 2 1 -F 7 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 9 6 s _ 1 3 _ 6 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.