Fréttablaðið - 14.06.2018, Page 78

Fréttablaðið - 14.06.2018, Page 78
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5407. Sextíu manna hópur í Safnaðar-félagi Áskirkju í Reykjavík fór í vel heppnaða dagsferð til Vest-mannaeyja 10. júní. Það var tilraun hans númer tvö til að stíga þar á land, sækja messu í hinni aldagömlu Landakirkju og upplifa töfra Eyjanna. Hún heppnaðist fullkom- lega. Fyrri tilraunin sem gerð var 9. júlí í fyrra mistókst vegna þess að bókun hjá rútufyrirtækinu Skybus týndist. Það gerði þó sitt besta til að redda málum en brottför seinkaði,  bíllinn  var  hæg- gengur og Herjólfur nýbúinn að leysa landfestar þegar hópurinn mætti í Land- eyjahöfn. Nú gáfu bæði fyrirtækin, Skybus og Herjólfur, safnaðarfélaginu fargjöldin og bættu þátttakendum þannig upp vonbrigðin í fyrra á höfðinglegan hátt, að sögn Petreu Ómarsdóttur, formanns Safnaðarfélags Áskirkju. „Dæmið gekk fullkomlega upp í þetta sinn og allir lögðust á eitt til að ferðin yrði sem yndislegust fyrir okkur. Við fengum fullkomna rútu á réttum tíma, frábært viðmót bílstjóra, notalega sigl- ingu, gott veður og afbragðs viðtökur og mat á Slippnum. Presturinn okkar, hann séra Sigurður Jónsson, var farar- stjóri eins og venjulega og í Eyjum tók séra Viðar Stefánsson, prestur í Eyjum, á móti okkur og sagði okkur frá stað- háttum þegar við rúntuðum þar um á rútunni.“ Petrea segir guðsþjónustu fastan lið í sumarferðum sóknarbarna Áskirkju, þar skiptu séra Sigurður og heimaprestur á áfangastaðnum jafnan með sér verkum. Auk messunnar og matarins hafi hópur- inn notið hinnar áhrifamiklu sýningar í Eldheimum áður en hann lagði í hann aftur upp á fasta landið. „Ég var svo glöð í hjarta mínu þegar ég kom heim,“ segir Petrea. „Allir voru svo sáttir.“ gun@frettabladid.is Ferð sem hófst fyrir ellefu mánuðum endaði vel Það var ánægjulegur söfnuður sem kom úr sumarferð Áskirkjusóknar til Eyja síðasta sunnu- dag. Lagt var upp fyrir 11 mánuðum en vegna mistaka missti hópurinn af Herjólfi þá. Hópurinn alsæll við heimkomuna eftir vel heppnaða ferð. Mynd/Gun Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sigurður Þorsteinsson fyrrverandi bóndi á Skúfsstöðum, síðar skógarbóndi á Melum, Hjaltadal, lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands Sauðárkróki þann 9. júní síðastliðinn. Útför hans fer fram frá Hóladómkirkju 21. júní næstkomandi klukkan 13.30. Hólmfríður G. Sigurðard. Gunnar Þór Garðarsson Reynir Þór Sigurðsson Una Þórey Sigurðardóttir Rafn Elíasson Njáll Haukur Sigurðsson Arnfríður Agnarsdóttir Inga Sigurðardóttir Stefán Ægir Lárusson Halla Sigrún Sigurðardóttir Birkir Marteinsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Guðmundur Jón Bjarni Finnsson pípulagningameistari, lést í faðmi fjölskyldunnar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mánudaginn 11. júní. Útförin verður auglýst síðar. Hallbera Árný Ágústsdóttir Matthildur Níelsdóttir Svanur Ingi Sigurðsson Níels A. Guðmundsson Hanna María Harðardóttir barnabörn og langafabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Jóhanna Jóhannsdóttir Smárahlíð 5e, Akureyri, lést á Sjúkrahúsi Akureyrar miðvikudaginn 6. júní. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 19. júní kl. 13.30. Sigríður A. Whitt Jónas Veigar Torfason Birna H. Laufdal Þórir Steindórsson Hreinn H. Laufdal Cristiane Nogueira de Andrade Hrönn H. Laufdal Kristján Knútsson barnabörn, langömmu- og langalangömmubörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Grétar Ólafsson tæknifræðingur, Víðilundi, Akureyri, lést á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð föstudaginn 8. júní. Jarðarförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Helga Jónsdóttir Jón Sævar Grétarsson Ólafur Grétarsson Jenný Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Baldvins Einarssonar Fróðengi 1 (lengst af Bláskógum 6). Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á meltingar- og nýrnadeild Landspítalans fyrir góða umönnun. Sigurveig Haraldsdóttir Einar Baldvinsson Aðalheiður Jónsdóttir Jón Heiðar Baldvinsson Jóhanna Sturlaugsdóttir Gunnar Baldvinsson Björg Sigurðardóttir Eyrún Baldvinsdóttir Stefán Jóhannsson Baldvin, Karólína, Jón Valur, Einar Örn, Þórey, Sigrún, Sigurgeir, Anna Karen, Erna Björk, Bjarki, Sigurður, Viðar og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, Trausti R. Hallsteinsson lést á heimili sínu miðvikudaginn 6. júní. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 15. júní klukkan 13.00. Björk Ingvarsdóttir Hallsteinn I. Traustason Nína V. Björnsdóttir Vignir Þór Traustason Inga Helma Guðfinnsdóttir og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Kristín R. Thorlacius er látin. Útför hennar fer fram frá Borgarneskirkju föstudaginn 15. júní kl. 13. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær dóttir, móðir, systir, tengdamóðir, amma og langamma, Gyða Sigurðardóttir andaðist á heimili sínu, fimmtudaginn 30. maí 2018. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 15. júní klukkan 15. Sigurður Jónsson Kristjana Barðadóttir Björn Óli Hauksson Ragnhildur Barðadóttir Sigurður Ringsted Thor Axel Patriksson Healy Sigurður Sigurðsson Þorsteinn Sigurðsson Stefán Barði, Marisa, Valter, Máni, Gunnhildur Kristjana Björk og Atli, Arnar Þór, Steinþór, Eyþór, Frosti Kennimennirnir Viðar Stefánsson, Fjalarr Sigurjónsson og Sigurður Jónsson. Fjalarr var meðal farþega, hann er elsti núlifandi prestur landsins. Mynd/JóHanna FriðriKSdóttir Ég var svo glöð í hjarta mínu þegar ég kom heim. 1 4 . j ú n í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R26 T í M A M ó T ∙ F R É T T A B L A ð I ð tímamót 1 4 -0 6 -2 0 1 8 0 5 :1 8 F B 0 9 6 s _ P 0 7 8 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 2 1 -A 7 3 8 2 0 2 1 -A 5 F C 2 0 2 1 -A 4 C 0 2 0 2 1 -A 3 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 9 6 s _ 1 3 _ 6 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.