Fréttablaðið - 14.06.2018, Side 92
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Elmar Hallgríms Hallgrímsson elmar@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Valdimar Birgisson valdimar@frettabladid.is
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ólafur H.
Hákonarson olafurh@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI
512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
HM-torg á Oxford
Street Vesturbæjar
Emmsjé Gauti, Pétur Marteinsson, Friðrik Guðmundsson og Gísli Marteinn. HM-Torgið má sjá í bakgrunninum.
Vesturbæingar og nærsveitamenn geta tekið gleði sína eftir áfallið sem þeir urðu fyrir þegar það komst í fréttir hér í þessu
blaði að rífa ætti Hagavagninn – HM
í knattspyrnu verður skellt á skjá í
hjarta Vesturbæjarins, á Melavellin-
um við Hofsvallagötu, sem af sumum
er kölluð Oxford Street Reykjavíkur.
„Ég er hérna staddur á skrifstofu
Kaffi Vest og er að horfa á Exton
menn byggja risaskjá fyrir utan. Það
er kominn neðri parturinn á risaskjá
sem er staðsettur á túninu við hliðina
á Vesturbæjarlaug, við Hagavagninn.
Þar erum við nefnilega að setja upp
HM-torg, á því sem heitir Melavöll-
urinn,“ segir Emmsjé Gauti frá Haga-
vagninum en HM torgið er samstarf
á milli Kaffi Vest, Brauð og Co., Mela-
búðarinnar og Hagavagnsins.
„Við vorum að hugsa hvernig við
gætum aukið hverfisstemminguna
og hvað við getum gert fyrir fólkið.
Svo er líka þessi gata að verða svona,
tja … Oxford Street Vesturbæjarins.
Eða nýi Laugavegurinn. Það er að
skapast rosalegur menningarkjarni
hérna. Það eru flestir í þessum fyrir-
tækjum sem fá sér kaffi á Kaffi Vest
þannig að þar hittumst við og þar
spratt upp þessi hugmynd að gera
þetta svona í kringum HM. Hug-
myndin fékk að gerjast í smá tíma og
endaði svona. Það er dálítið fyndið
við þennan hóp sem setur þetta
saman, þessa Vesturbæjar-mafíu, að
þar eru fimm Breiðhyltingar.“
Gauti segir að hugmyndin hafi svo
orðið að veruleika með innkomu
Coke og Origo inn í hana en þá fóru
hlutirnir að gerast.
„Það verður veitingasala á staðn-
um. Við erum að stefna á að þetta
verði fjölskylduvæn hátíð og að hér
verði aðallega húllumhæ í kringum
þessa þrjá íslensku leiki – og auðvitað
ef við komumst áfram þá sýnum við
það. Við erum svona að meta hvernig
þetta verður þegar á líður – hvort við
verðum með fleiri stóra leiki hérna
eða hvernig það verður – það fer svo-
lítið eftir stemmingu.“
Verður fólk bara þarna í lautar-
ferðarstemmingu með teppi á grasinu
eða hvernig verður þetta?
„Við ætlum að setja upp bekki
og stóla en hvetjum fólk samt sem
áður að taka með sér tjaldstóla og
teppi. Næsta verkefni er að biðja til
veðurguðanna til að fá þá til að vera
góðir við okkur. Nú veit maður aldr-
ei hvernig spáin verður en ég mun
standa þarna í ponsjó sama hvernig
veðrið verður.“
stefanthor@frettabladid.is
Við VOruM að HugSa
HVernig Við gætuM
aukið HVerfiSSteMMinguna
Og HVað Við getuM gert
fyrir fólkið. SVO er líka
þeSSi gata að Verða SVOna,
tja … OxfOrd Street VeStur-
bæjarinS. eða nýi lauga-
Vegurinn.
HÁGÆÐA IÐNAÐARHURÐIR
Járnháls 2-4 | 414-8600 | velaborg@velaborg.is
gæði... ending… ánægja.
skoðaðu úrvalið á Weber.is
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Amadeus borðstofuhúsgögn
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
Komið og skoðið úrvalið
Melavelli, túninu við
Vesturbæjarlaug, er
verið að umturna
í HM-torg. Þar er
kominn risaskjár og
geta nágrannar og
aðrir þar horft á leiki
Íslands á HM í góðu
stuði.
1 4 . j ú n í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R40 l í F I ð ∙ F R É T T A B l A ð I ð
1
4
-0
6
-2
0
1
8
0
5
:1
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
2
1
-B
1
1
8
2
0
2
1
-A
F
D
C
2
0
2
1
-A
E
A
0
2
0
2
1
-A
D
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
9
6
s
_
1
3
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K