Fréttablaðið - 23.08.2018, Side 14
Frá degi til dags
Halldór
Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
ritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is fréttablaðið.iS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttablaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is helgarblað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
menning: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Það má margt
læra af Míu.
Eins og til
dæmis það að
staldra við og
njóta og gefa
sér dágóðan
tíma til þess.
Tvöfalt fleiri
leikskólar
eru full-
mannaðir.
Flísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Finndu okkur
á facebook
Gæði og g
læsileiki e
ndalaust ú
rval af há
gæða flísu
m
30
ára
2018
F yrir framan hús í Brautarholti stóð á dögunum lítil stúlka, sennilega tæplega tveggja ára gömul, og horfði heilluð í gegnum hvítt rimlagrindverk meðan faðir hennar stóð þolinmóður hjá. Þau stóðu þarna dágóða stund og allan
tímann horfði dóttirin, Mía, einbeitt í sömu átt.
Þeir fullorðnu sem hefðu leitast við að setja sig í
spor Míu litlu og kannað hvað heillaði hana svo
mjög hefðu ekki séð neitt sérlega spennandi. Mía
var bara að horfa á grasbreiðu fyrir framan hús. Það
var ekkert sérstakt við þetta gras, það var reyndar
mikið en afskaplega venjulegt eins og gras er í
hugum flestra. Ef einhver hefði verið skikkaður til
að finna eitthvað lofsvert við grasið hefði viðkom-
andi sennilega helst sagt, eftir nokkra umhugsun,
að það væri fallega grænt, en hefði svo sem ekki
mikið annað til málanna að leggja.
Mía litla er svo lánsöm að hafa hæfileika til að
hrífast af því einfalda og það svo mjög að hún
horfði einbeitt á hversdagslegt gras í dágóðan tíma
og var alsæl með það sem hún sá. Hún var ekkert að
flýta sér heldur naut stundarinnar. Það má margt
læra af Míu. Eins og til dæmis það að staldra við og
njóta og gefa sér dágóðan tíma til þess.
Mía er svo ung og forvitin að hún er enn upp-
tekin af umhverfi sínu og sér alls kyns undur í því
hversdagslega og fegurð í því sem flestir veita litla
sem enga athygli. Ástæða er til að ætla að vegna
ungs aldurs hafi Mía ekki fengið snjalltæki í sínar
litlu hendur. Tæki sem laðar eigandann að sér
þannig að hann grúfir sig yfir það við öll möguleg
tækifæri og glápir á það löngum stundum og er
meinilla við að skilja það við sig. Eigandanum væri
nær að leggja frá sér tækið og virða fyrir sér ein-
föld náttúruundur, eins og gras og ský. Ef nútíma-
maðurinn gerði meira af því að njóta hins einfalda
myndi vellíðan hans sennilega aukast þó nokkuð.
Það veitir sannarlega ekki af.
Hver rannsóknin á fætur annarri sýnir að hinn
dæmigerði nútímamaður þjáist af kvíða og streitu
og á jafnvel erfitt með einbeitingu, enda býr hann
við sífellt áreiti. Hann er vinnulúinn og glímir við
kulnun í starfi. Um leið er hann umvafinn tækjum
og tólum sem eiga að gera líf hans auðveldara og
gera það upp að vissu marki en geta samt ekki fært
honum hina mjög svo eftirsóknarverðu hugarró.
Á sama tíma þarf nútímamaðurinn að lifa við þá
staðreynd að hann hefur hagað sér svo óvarlega
og kæruleysislega að loftslagsbreytingar af hans
völdum eru að valda ólýsanlegum hörmungum
sem eiga enn eftir að færast í aukana.
Það er svo sem engin sérstök ástæða til að vera
yfirmáta bjartsýnn fyrir hönd mannkynsins, sem
er komið nokkuð á veg með að tortíma sjálfu
sér. Það er þó ekki alveg vonlaust að bjarga megi
heiminum. Það verður helst gert ef nýjar kynslóðir
kjósa aðra og betri vegferð en þá sem nú er farin. Í
því felst ekki síst að standa með náttúrunni, virða
hana og vernda og gefa sér um leið tíma til að njóta
hennar heilshugar.
Heimur Míu
Mun betur gengur að ráða í lausar stöður á leik-skólum, grunnskólum og frístundastarfi en undanfarin ár. Lausar stöður eru nú helmingi
færri í leikskólum og grunnskólum en á sama tíma í fyrra
og horfurnar betri í frístund. Nú er búið að ráða í nær 94%
stöðugilda í leikskólum borgarinnar og 98% í grunnskól-
unum. Eftir er að ráða í 62 stöðugildi á leikskólum sem
er að meðaltali eitt stöðugildi á hvern hinna 62 leikskóla
borgarinnar. Tvöfalt fleiri leikskólar eru fullmannaðir.
Þennan árangur má þakka góðu samstarfi stjórnenda
leikskóla og starfsfólks skóla- og frístundasviðs, mark-
vissri kynningarherferð um mikilvægasta starf í heimi,
markhópavinnu gagnvart háskólanemum og ungu fólki
og kynningu á þeim umtalsverðu hlunnindum sem bjóð-
ast starfsfólki hjá leikskólum borgarinnar, s.s. afslætti af
leikskólagjöldum, samgöngustyrkjum, ókeypis máltíðum,
menningar- og sundkortum, fjármagni til heilsueflingar
o.m.fl. Síðast en ekki síst hefur verið gripið til fjölmargra
aðgerða til að bæta starfsumhverfið, s.s. með hækkun
launa, fjölgun undirbúningstíma, auknu rými fyrir börn
og starfsfólk, fjölgun starfsfólks á elstu deildum o.fl. Þró-
unin er í rétta átt en vissulega er enn verk að vinna. Við
verðum ekki ánægð fyrr en leikskólarnir eru fullmannaðir
og öll börn með úthlutað leikskólarými hafa hafið sína
leikskólagöngu.
Nú eru um 200 börn á biðlista eftir leikskólaplássi og
er því langur vegur frá að fullyrðingar um 1.600 barna
biðlista fái staðist. Það sem meira er, allt bendir til að öll
þessi 200 börn fái boð um leikskólavist í haust því nú eru
ríflega 300 laus pláss á leikskólum borgarinnar. Og horf-
urnar eru góðar því við munum fjölga leikskólaplássum
í haust með nýjum deildum við nokkra eftirsóttustu
leikskóla borgarinnar og fjölgun barna við einkarekna
leikskóla. Nýr meirihluti í borginni ætlar að brúa bilið
milli fæðingarorlofs og leikskóla með fjölgun ungbarna-
deilda og byggingu nýrra leikskóla auk aðgerða til að
styrkja dagforeldrakerfið. Eftir þeirri stefnu störfum við
af fullum krafti samhliða baráttu við að fjölga leikskóla-
kennurum sem er forgangsmál til framtíðar.
Aðgerðir í leikskólamálum
skila árangri
Skúli Þór
Helgason
borgarfulltrúi
Samfylkingar-
innar
Þúsund evrur
Ungir jafnaðarmenn buðu á
dögunum Sigríði Á. Andersen
dómsmálaráðherra þúsund
evrur fyrir að segja af sér sem
ráðherra. Tilefnið er undirbún-
ingur reglugerðarsetningar þar
sem hælisleitendur eru styrktir
til brottfarar eftir synjun á
umsókn þeirra. Styrkurinn
lækkar eftir því sem viðkomandi
dregur það að svara. Ekki fylgdi
sögunni hjá jafnaðarmönnunum
hvort tilboð þeirra myndi fara
lækkandi með hverjum deg-
inum sem ráðherrann tekur sér
í umhugsunarfrest. Ósennilegt
er að ráðherra taki tilboðinu
enda með meirapróf í að sitja í
gegnum hin ýmsu mál.
mútutilboð?
Þessu tengt er ekki úr vegi,
svona upp á djókið, að rifja upp
109. grein almennra hegningar-
laga. Þar segir að hver sem gefur,
lofar eða býður opinberum
starfsmanni, alþingismanni eða
gerðarmanni gjöf eða annan
ávinning, sem hann á ekki tilkall
til, í þágu hans eða annars, til að
fá hann til að gera eitthvað eða
láta eitthvað ógert sem tengist
opinberum skyldum hans skal
sæta fangelsi allt að fjórum
árum. Refsingin má vera sektir
ef málsbætur eru fyrir hendi.
Ákvæðið á vafalaust ekki við í
þessu tiltekna máli en þrátt fyrir
það má ímynda sér að það yrði
stórskemmtilegt áhorfs.
joli@frettabladid.is
2 3 . á g ú s t 2 0 1 8 F I M M t U D A g U R14 s k o ð U n ∙ F R É t t A B L A ð I ð
SKOÐUN
2
3
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
A
1
-1
1
9
4
2
0
A
1
-1
0
5
8
2
0
A
1
-0
F
1
C
2
0
A
1
-0
D
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
2
2
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K