Fréttablaðið - 23.08.2018, Síða 24
Körfuboltamaðurinn og KR-ingurinn Kristófer Acox heldur á vit ævintýranna á
næstu dögum þegar hann flytur til
Frakklands en þar mun hann spila
með franska liðinu Denain Voltaire
í frönsku annarri deildinni. Hann er
spenntur yfir áskoruninni og segist
hafa nýtt sumarið vel í að styrkja sig
sem leikmann. „Þetta sumar, eins
og undanfarin sumur, hef ég reynt
að bæta úr veikleikum mínum en
á sama tíma auðvitað haldið áfram
að bæta við það sem ég er nú þegar
góður í. Fyrir veturinn mun ég svo
setja mér markmið fyrir tímabilið.
Það verður líka frábært að komast
úr þessu þrotaveðri í sól og hita.
Annars hef ég aldrei komið til
Frakklands og er spenntur fyrir því
að fá að túristast aðeins um landið
og skoða París og fleiri borgir.“
Dagsdaglega klæðist Kristófer
íþróttafatnaði, sérstaklega ef ekkert
sérstakt er fyrir stafni. „Fatastíll-
inn minn er frekar óformlegur
og verður íþróttafatnaður oftast
fyrir valinu. Ef eitthvað sérstakt er
í gangi eða mig langar að klæðast
öðru er það yfirleitt „street lookið“,
gallabuxur, bolur og einhver
þægileg hettupeysa með góðum
strigaskóm.“
Hvernig hefur tískuáhugi þinn
þróast?
Hann hefur þróast töluvert
síðustu árin. Áður fyrr spáði ég
eiginlega ekkert í hverju ég var
klæddur en undanfarin 2-3 ár hefur
það breyst. Nú hef ég meiri áhuga
á flottum klæðnaði og spái meira í
fatakaup og hverju aðrir klæðast.
Áttu þér tískufyrirmynd?
Ég mundi nú ekki segja það. Ég
fylgi tískunni sem er inni hverju
sinni og vinn mig út frá henni. En
mínir nánustu vinir hafa örugglega
mestu áhrifin á fatasmekk minn.
Hvernig fylgist þú helst með
tískunni?
Aðallega í gegnum samfélags-
miðla, þá helst Instagram. Svo sér
maður náttúrlega líka hverju fólk
klæðist hversdagslega, niðri í bæ
eða hvar sem er.
Hvar kaupir þú helst fötin þín?
H verslun, 66°Norður, 17 og
Húrra eru uppáhaldsverslanir
mínar hér á landi. Erlendis eru það
helst Urban og Zara. Ég er ekki enn
kominn á Gucci- og Louis-vagninn.
Hvaða litir eru í uppáhaldi?
Ég er mjög hefðbundinn þegar
kemur að litum og klæðist yfir-
leitt einhverju svörtu eða hvítu. Ef
það eru einhverjir litir sem ég vinn
stundum með eru það helst bleikur,
vínrauður eða blár.
Bestu og verstu fatakaupin?
Verstu kaupin eru örugglega
jakki sem ég neyddi mig til að
kaupa í einu númeri of litlu. Hann
var ekki til í minni stærð en mér
fannst hann svo flottur að ég þurfti
að eignast hann. Ég notaði jakkann
síðan aldrei. Bestu kaupin eru
örugglega eitthvað af þessum fötum
sem ég keypti sumarið 2016 og nota
enn.
Eyðir þú miklu í föt miðað við
jafnaldra þína?
Örugglega bara álíka mikið og
næsti maður. Ég á það til að kaupa
mikið af fötum á stuttu tímabili en
síðan kaupi ég ekki neitt í langan
tíma. Þannig að þetta jafnast út.
Notar þú einhverja fylgihluti?
Þeir sem þekkja mig vita að ég er
mjög háður derhúfum en fyrir utan
þær nota ég ekkert annað sérstakt.
Óformlegur stíll
Íþróttafatnaður verður oftast fyrir valinu hjá körfubolta-
manninum Kristófer Acox. Hann spilar í Frakklandi í vetur
og hlakkar til að komast í sólina og kynnast landinu betur.
Hér klæðist körfuboltamaðurinn Kristófer Acox dæmigerðum hversdagsklæðnaði; buxum frá 66°Norður (Banka-
stræti), anorakki frá Nike og hvítum skóm frá Vans. Hann segir fatastíl sinn vera frekar óformlegan. MYND/EYÞÓR
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
REGNKÁPUR
Kr. 16.900.-
Vatnsheldar, vindheldar, fóðraðar
Str. S-XXL
Litir: Dökkblátt, grænt
ÚTSÖLULOK
Einungis 6 verð:
Laugavegi 178 | Sími 555 1516
Opið: Virkir dagar 11-18 | Laugardagar 11-15
Kíkið á myndir og verð á Facebook
900 kr.
1.900 kr.
2.900 kr.
3.900 kr.
4.900 kr.
5.900 kr.
Gerið góð kaup á flottum
fatnaði á frábæru verði.
LÍFIÐ ER Á
FRETTABLADID.IS
Líð á frettabladid.is allar um
fólk, menningu, tísku, heilsu
og margt eira.
Ekki missa af neinu, fylgdu
Fréttablaðinu á Facebook
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 3 . áG ú s t 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R
2
3
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
A
1
-4
2
F
4
2
0
A
1
-4
1
B
8
2
0
A
1
-4
0
7
C
2
0
A
1
-3
F
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
2
2
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K