Fréttablaðið - 23.08.2018, Blaðsíða 28
Vöruúrvalið á Heimkaup.is er nú um 40.000 vörur og fer sífellt stækkandi. Rúm-
lega 60% vöxtur milli ára. Hverju
þakkar forstjórinn, Guðmundur
Magnason, þennan mikla vöxt?
„Fólk vill nýta tímann sinn,
umferðin eykst með hverju ári
eins og allir vita og þeir sem kynn-
ast þægindunum sem felast í því
að panta á netinu og fá vörurnar
sendar frítt heim að dyrum sam-
dægurs, þeir verða fastakúnnar,
það er ósköp einfalt!“ segir Guð-
mundur. „Það sem skiptir svo
mestu máli er úrvalið. Við erum
með yfir 40.000 vörur í sölu og
aukum úrvalið daglega. Þegar
úrvalið og verðið er gott, þá gerist
þetta svolítið af sjálfu sér. Nýleg
könnun hjá ASÍ leiddi t.d. í ljós að
skólabækurnar eru ódýrastar á
Heimkaup.is. Við erum það sem
kallast „one stop shop“, viðskipta-
vinir okkar eiga að geta keypt allt
sem þá vantar á einum stað, hvort
sem það er gæludýrafóður, hár-
næring, ísskápur eða bók, já eða
allt í skólann þessa dagana. Og
þegar kemur að þægindum er allt-
af hægt að gera betur. Við bjóðum
t.d. upp á samsetningu á grillum
og þegar við komum með stór
tæki, s.v. ísskápa og þvottavélar
tökum við gömlu tækin fyrir fólk
og komum þeim í endurvinnslu.
Fólki líkar svona þjónusta.“
En hvernig gengur að afgreiða
vörur af svona gríðarstórum lager?
„Við fórum sömu leið og Amazon
þegar kemur að vöruhúsinu.“ segir
Guðmundur. „Notast er við hug-
myndafræði sem kallast „chaotic
storage“. Það er handahófskennd
röðun í hillur. Nýjar vörur fara
bara í næsta lausa hillupláss, það
eru engar deildir og engir flokkar.
Starfsmenn þurfa ekki „að vita“
hvar neinar vörur eru heldur leiðir
kerfið þá áfram þegar vörur eru
teknar saman fyrir viðskiptavini
og alltaf stystu leið. Þetta auð-
veldar okkur líka að auka úrvalið
og það munum við gera svo um
munar á næstu misserum.“
Guðmundur Magnason segir um-
ferðina um vefin aukast stöðugt.
Skoðaðu vöruúrvalið
á lya.is
Pantaðu á netinu
Losnaðu við vesenið og losnaðu við hretið.
Það er langsamlega einfaldast að panta gegnum netið.
Á lagernum er notast við hugmyndafræðina „chaotic storage“, eða handahófskennd röðun. MYND/SIGTRYGGUR ARI
Heimkaup.is –
Stærsta vefverslun landsins
Tekjur Heimkaup.
is hafa aukist um
rúmlega 60% milli
ára. Vefverslunin
býður eitt mesta
vöruúrval lands-
ins og sendir
heim að dyrum
samdægurs.
Viðskiptavinir fá
vörurnar sendar
frítt heim að dyrum
samdægurs“
Við fórum sömu
leið og Amazon
þegar kemur að vöruhús-
inu. Það eru engar deildir
og engir flokkar.
Öryggisins vegna á aldrei að senda viðkvæmar upplýsingar, svo sem kredit-
kortanúmer, í tölvupósti. Einnig er mikilvægt að skoða vel alla skilmála.
Oft er hægt að gera veru-lega góð kaup á netinu og ekki er verra að fá vöruna
senda heim að dyrum. Áður en
lokaskrefið er tekið og gengið frá
greiðslu er nauðsynlegt að skoða
vel skilareglur og einnig hvaða
gjöld þarf að borga þegar verslað
er hjá erlendum vefverslunum.
Annars er hætt við að kaupand-
inn sitji uppi með vöru sem hann
hefur ekkert að gera með, fyrir
hærra verð en hann gerði ráð
fyrir.
Allar vörur eru tollskyldar
Skynsamlegt er að skoða vel
heimasíðu Tollstjórans en þar má
finna upplýsingar um hvað gott
er að hafa í huga þegar vörur eru
pantaðar frá útlöndum í gegnum
netið. Þar kemur meðal annars
fram að allar vörur sem fluttar
eru til landsins eru tollskyldar án
tillits til verðmætis nema annað sé
sérstaklega tekið fram í lögum og
reglugerðum, svo sem vegna toll-
fríðinda tækifærisgjafa eða ferða-
manna. Þetta merkir að allar vörur
eru tollskyldar, sama hvort þær
eru 10 króna virði eða 100 þúsund
króna virði.
Eru gjöld hærri en verðið?
Áður en vara er pöntuð á netinu
þarf að gera ráð fyrir því að hún
kosti meira þegar hún er komin til
landsins en verðmerking seljanda
segir til um. Verð eru stundum
gefin upp án flutnings- og pökk-
unarkostnaðar. Ef vara er mjög
ódýr getur verið að kostnaður við
innflutning hennar sé meiri en
hún kostar. Það getur margborgað
sig að nota reiknivél á heimasíðu
tollsins til að áætla innflutnings-
gjöld svo endanlegur reikningur
komi ekki á óvart.
Er netverslunin örugg?
Hvað öryggisatriði varðar er ráð
að kanna bakgrunn þess sem selur
vöruna á netinu áður en korta-
númer og aðrar upplýsingar eru
gefnar upp. Hægt er að gúggla
umsagnir um viðkomandi net-
verslun og skoða hvort hún hafi
fengið góða eða slæma dóma ann-
arra kaupenda.
Það á aldrei að borga fyrir vöru
með kreditkorti hjá netverslun
sem ekki er með svokallaðan
SSL-staðal en hann er notaður af
viðurkenndum netverslunum. Það
á heldur aldrei gefa upp kredit-
kortanúmer í tölvupósti. Með því
er hættunni boðið heim og fólk
getur orðið fyrir stórtjóni sé það
gert.
Til að fá upplýsingar um verslun
á netinu er hægt að spyrjast fyrir
hjá vinum og vandamönnum eða
senda inn fyrirspurn á Facebook-
hópa sem snúast um netverslun.
Svo er sumt harðbannað að flytja
til landsins, jafnvel þótt hægt sé að
kaupa það á netinu. Má í því sam-
bandi nefna dýr og plöntur, lyf til
lækninga og að sjálfsögðu vopn.
Upplýsingar m.a. fengnar af vef-
síðunni www.tollur.is.
Netið og öryggið
Sífellt fleiri kjósa að versla á netinu,
enda þægilegt að fá vöruna senda
heim að dyrum. Mikilvægt er að
skoða vel skilmála og reglur áður
en gengið er frá pöntuninni.
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@frettabladid.is
4 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . ÁG ú S T 2 0 1 8 F I M MT U DAG U RNETvERSLUN
2
3
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
A
1
-1
B
7
4
2
0
A
1
-1
A
3
8
2
0
A
1
-1
8
F
C
2
0
A
1
-1
7
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
2
2
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K