Fréttablaðið - 28.08.2018, Síða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 0 2 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r Þ r i ð J u d a g u r 2 8 . á g ú s t 2 0 1 8
Ókeypis kynningartími
5. september
Ármúli 11, 3. hæð
Skráning á dale.is/ungtfolk eða í síma 555 7080
Fjárfestu í framtíðinni
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
A
ct
av
is
7
1
1
0
3
0
Betolvex
B-12
Fæst án
lyfseðils
Fréttablaðið í dag
sKOðun Bæta þarf stöðu inn
flytjenda, skrifar Guðjón S.
Brjánsson. 10
spOrt Finnur Orri braut loksins
ísinn í 199. leiknum. 12
tÍMaMót Leiðsögn um sögusýn
ingu Landsbókasafns Íslands. 14
„Þetta er þannig séð á áætlun,“ segir Sigþór Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hlaðbæjar Colas, um framvindu
gerðar Vaðlaheiðarganga. ÍAV er verktaki ganganna en Hlaðbær sér um útlagningu. Leki er í göngunum og
nokkuð hlýtt er þar inni enda hluti vatnsins heitur. Sigþór telur að allt smelli á réttum tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Fleiri myndir úr Vaðlaheiðargöngunum er að finna
á Plússíðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í
Fréttablaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLús
viðsKipti „Það hefur verið slegist
um hvert eintak, sem er jákvætt, en
ég held að þetta fari að detta í eðli
legra horf á næsta ári,“ segir Brynjar
E. Óskarsson, vörumerkjastjóri
Nissan hjá bílaumboðinu BL. Mikil
bið er nú eftir Nissan Leaf rafbílum.
Verðandi rafbílaeigendur sem
pöntuðu bíl í apríl hafa nú nokkrir
fengið upplýsingar um seinkun fram
í nóvember. Margir eru skiljanlega
svekktir yfir langri bið og töfum sem
orðið hafa.
„Ef þú ætlar að panta bíl hjá okkur
núna er 6–7 mánaða bið,“ segir
Brynjar. Íslenski markaðurinn sé
hins vegar ágætlega settur.
„Ísland er þrátt fyrir þetta framar
lega í magni sem við fáum, mark
aðir eins og Írland eru að fá svipað
marga bíla og við,“ segir Brynjar.
– smj / sjá síðu 6
Mikil bið eftir
Leaf-rafbílum
lÍfið Fréttablaðið
gluggar í þunga
rokkssumarið
mikla á Íslandi.
20
plús 2 sérblöð l fólK
l fasteignir
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
Guns n roses
viðsKipti Björgólfur Jóhannsson
sagði í gær upp sem forstjóri Ice
landair Group og Bogi Nils Bogason,
fjármálastjóri félagsins, hefur tekið
tímabundið við starfi forstjóra.
Samkvæmt uppfærðri afkomuspá
frá í gær mun afkoma ársins hjá
Icelandair verða lægri en gert var
ráð fyrir. Áætlað er að EBITDA ársins
2018, það er afkoma áður en tekið
hefur verið tillit til vaxtatekna, skatt
greiðslna og afskrifta, verði á bilinu
80100 milljónir Bandaríkjadala.
Upphaflegar spár gerðu ráð fyrir að
upphæðin kæmi til með að nema
170190 milljónum dala. Því er um
tæplega helmings lækkun að ræða.
„Lækkun afkomuspárinnar skýrist
fyrst og fremst af því að tekjur verða
lægri en áður hafði verið gert ráð fyrir.
Fyrir því eru einkum tvær ástæður,“ er
haft eftir Björgólfi í tilkynningu sem
send var Kauphöllinni í gærkvöldi.
„Í fyrsta lagi gerðum við enn ráð
fyrir því við gerð seinustu afkomu
spár að meðalfargjöld á seinustu
mánuðum ársins myndu hækka,
meðal annars í takt við kostnaðar
hækkanir flugfélaga. Við teljum nú að
þessar hækkanir muni skila sér síðar,
það er ekki fyrr en á árinu 2019,“
útskýrir Björgólfur þróunina.
Forstjórinn fráfarandi segir að inn
leiðing breytinga í byrjun sumars
2017 á sölu og markaðsstarfi félags
ins hafi ekki gengið nægilega vel.
Auk þess hafi verið gerðar breytingar
á leiðakerfinu í byrjun þessa árs sem
valdið hafi misvægi á milli framboðs
á flugi til Evrópu annars vegar og
NorðurAmeríku hins vegar.
„Vegna þessa hafa spálíkön, sem
meðal annars byggja á sögulegri
þróun, ekki virkað sem skyldi og er
uppfærð tekjuspá lægri en fyrri spá
gerði ráð fyrir,“ segir Björgólfur.
Þá segir Björgólfur að félagið hafi
eftir uppgjör annars ársfjórðungs
gripið til aðgerða til að bregðast við
þessari þróun. Árangur af því sé farinn
að skila sér en það muni taka mánuði
að sjá áhrif í afkomu félagsins.
„Þær ákvarðanir sem lýst er hér að
ofan eru teknar á minni vakt. Það er
ljóst að þær hafa valdið félaginu fjár
hagslegu tjóni á þessu ári. Ég ber sem
forstjóri félagsins ábyrgð gagnvart
stjórn og hluthöfum,“ er haft eftir
Björgólfi sem kveðst hafa óskað eftir
því í gær að hætta sem forstjóri. Það
sé ábyrgðarhluti að hafa ekki fylgt
breytingunum eftir með fullnægjandi
hætti og brugðist fyrr við. „Þá ábyrgð
tel ég rétt að axla.“
Í tilkynningunni er haft eftir Úlfari
Steindórssyni, formanni stjórnar
Icelandair Group, að það lýsi persónu
Björgólfs vel að axla ábyrgð þegar
betur hefði mátt gera. „Að beiðni
stjórnar mun Björgólfur vera stjórn
og stjórnendum til ráðgjafar.“
„Næstu skref eru að halda áfram
með mínum samstarfsmönnum
og samstjórnendum að breyta
áherslum í markaðsstarfi og að ná
vopnum okkar og laga misræmið í
leiðakerfinu. Þar liggur fókusinn á
næstunni og með því ætlum við að
bæta afkomu félagsins,“ segir Bogi
Nils Bogason, starfandi forstjóri Ice
landair. Aðspurður segir hann engar
aðrar breytingar fyrirhugaðar í stjórn
endahóp félagsins.
„Í hreinskilni sagt veit ég ekki hve
lengi ég mun gegna þessu starfi. Það
verður farið í það á næstunni að finna
framtíðarforstjóra,“ segir Bogi. – gar, jóe
Tekur ábyrgð
á slöku gengi
hjá Icelandair
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group,
segist axla ábyrgð á ákvörðunum sem valdið hafi
Icelandair tjóni og hefur sagt upp. Fjármálastjórinn
tekur við sem forstjóri og boðar breyttar áherslur.
Næstu skref eru að
halda áfram með
mínum samstarfsmönnum og
samstjórnendum að breyta
áherslum í markaðsstarfi.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair
2
8
-0
8
-2
0
1
8
0
5
:1
2
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
A
B
-0
9
0
8
2
0
A
B
-0
7
C
C
2
0
A
B
-0
6
9
0
2
0
A
B
-0
5
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
3
2
s
_
2
7
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K