Fréttablaðið - 28.08.2018, Side 4

Fréttablaðið - 28.08.2018, Side 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti kl. 5.00 á morgnana. Skráðu þig á póstlista Frétta- blaðsins á www.frettabladid.is/ nyskraning. Það kostar ekkert. Vertu fyrst/ur að lesa blaðið ALFA ROMEO GIULIETTA FRUMSÝNING LAUGARDAGINN 1. SEPTEMBER KL. 12-16. ALFA ROMEO FRUMSÝNING UMBOÐSAÐILI ALFA ROMEO Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 alfaromeo.is DÓMSMÁL Landsréttur staðfesti í liðinni viku kyrrsetningu á eignum meðlima Sigur Rósar, þeirra Jóns Þórs Birgissonar, Georgs Holm og Orra Páls Dýrasonar. Úrskurðirnir þrír voru birtir í gær. Sagt var frá því í Fréttablaðinu í mars að sýslumaðurinn í Reykjavík hefði í desember síðastliðnum fall- ist á kyrrsetningarkröfu Tollstjóra. Ástæðan eru meint skattalagabrot tónlistarmannanna. Þremenning- arnir reyndu að fá kyrrsetningunni hnekkt í héraði en kröfu þeirra var hafnað. Niðurstaða héraðsdóms var kærð til Landsréttar sem staðfesti hana. Í úrskurði Landsréttar segir að fyrir liggi rökstuddur grunur um að mennirnir hafi brotið gegn lögum um tekjuskatt og hegningarlögum. Talin var hætta á því að eignunum yrði skotið undan. Í úrskurði Lands- réttar segir að skattframtöl mann- anna bæru það með sér að ekki væru til aðrar eignir eða tekjur sem gætu staðið til fullnustu á greiðslu kröfunnar. Auðvelt væri að framselja fasteignir eða rýra verðgildi þeirra með veðböndum eða kvöðum. Þá var það mat réttarins að verðmæti eignanna væri ekki umfram það sem þyrfti til að tryggja kröfu Tollstjóra. Verðmæti hinna kyrrsettu eigna er tæpar 800 milljónir króna en munar þar mestu um eignir Jónsa en þær nema 638 milljónum. – jóe Kyrrsetning eigna meðlima Sigur Rósar staðfest í Landsrétti Af tónleikum Sigur Rósar á Lowlands-hátíðinni í Hollandi. NoRdicpHotS/getty SaMféLag „Þetta er spennandi en kvíðvænlegt á sama tíma. Maður er mjög berskjaldaður að hleypa fólki alveg að innsta koppi,“ segir Guð- mundur Felix Grétarsson. Tuttugu ár eru síðan Guðmundur missti báða handleggina í vinnuslysi. Hann hefur beðið handaágræðslu í Frakklandi í áratug. Guðmundur er nú á Íslandi. Heim- ildarmynd um hann verður frum- sýnd í Bíói Paradís á fimmtudag. Kvikmyndagerðarmenn hafa fylgt Guðmundi eftir frá árinu 2011 og er afraksturinn myndin „Nýjar hendur innan seilingar“. Mikið var fjallað um það í fjölmiðl- um þegar Guðmundur ákvað að fara í handaágræðsluna sem yrði sú fyrsta sinnar tegundar. Alls söfnuðust 40 milljónir króna, meðal annars til að hann gæti haldið út til Lyon og geng- ist undir aðgerðina. Síðan hafa flestir kannski lítið heyrt af gangi mála. Heimildarmyndin varpar ljósi á það sem gerst hefur síðan. Biðina, ótal frestanir, baráttuna við kerfið og skrifræðið ytra. „Ég er alltaf spurður sömu spurn- inganna þegar ég hitti Íslendinga. Myndin sýnir hvað er búið að vera í gangi og hvers vegna ég er ekki enn kominn með hendur. Það er heil- mikið búið að vera að gerast þó að ég hafi svolítið horfið af yfirborðinu,“ segir Guðmundur sem hefur búið í Lyon í fimm ár. „Staðan er alltaf sú að við bíðum eftir gjafa. Frá 2016 erum við komin yfir mesta skrifræðið og allt sem við lentum í fyrstu árin. Það tók rosa- legan tíma að lenda í kerfinu en núna erum við í raun að bíða eftir að einhver deyi. Það er skrýtin staða að vera í, að hlusta eftir sjúkrabílum. Að vonast eftir að þetta fari að gerast sem aftur þýðir að maður er að von- ast eftir að einhver deyi. Þetta er sið- ferðilegt dílemma.“ Guðmundur segir að hann búi enn að þeim fjármunum sem söfnuðust fyrir hann. Mikill kostnaður hafi fall- ið til í byrjun. Síðan hafi þetta staðið undir leigu og uppihaldi í Lyon. Nú sé einnig komið í gegn að rannsóknar- sjóður við spítalann mun koma að fjármögnun aðgerðarinnar að ein- hverju leyti. Eins og sjá má í myndinni, sem óhætt er að mæla með, gefst Guð- mundur ekki upp og heldur enn í vonina og veit að aðgerðin mun eiga sér stað. „Það veit enginn hvernig þetta mun takast. En það sem telst ásættan- legur árangur er olnbogahreyfingar, að ég geti lyft og hreyft olnboga. Það er ekki mjög líklegt að ég geti notað fingurna. Hvað mig varðar, þó svo að ég muni ekki geta notað fingurna og á endanum myndi taka hendurnar sjálfar af aftur, þá er ég samt mikið betur settur hvað úrval gerviútlima varðar.“ – smj Siðferðilegt dílemma að sitja og bíða eftir að einhver láti lífið Maður er að vonast eftir að einhver deyi. Þetta er siðferðilegt dílemma. Guðmundur Felix Grétarsson Mynd um baráttu guðmundar er frumsýnd á fimmtudag. eiginkona hans er Sylwia Nowakowska. FRéttAbLAðið/eRNiR Ný heimildarmynd sýnir hvers vegna ég er ekki enn kominn með hend- ur, segir Guðmundur Felix Grétarsson. Stærstu hindranirnar í bið eftir handaágræðslu séu að baki. trjÁrækt Skógræktin leitar nú að jörðum á Vestfjörðum undir þjóð- skóg. Fram kemur í fundargerð bæjarráðs Ísafjarðar að nærtækast sé talið að líta til jarða í eigu ríkis- ins sem ekki eru í ábúð og henta til skógræktar. „Fáar ríkisjarðir (eða engar) eru norðan Arnarfjarðar í Ísafjarðarbæ en í hinum forna Auðkúluhreppi eru nokkrar sem eru í eigu ríkis eða ríkisstofnana. Einnig gæti Skóg- ræktin hugsað sér að gera langtíma samninga um heppilega jörð í eigu sveitarfélags og þá eru einhverjar innan Ísafjarðarbæjar svo sem. Sandar í Dýrafirði og Kirkjuból í Engidal og ef til vill fleiri,“ segir í fundargerðinni. Þjóðskógar Skóg- ræktarinnar eru á yfir fimmtíu stöð- um en enginn á Vestfjörðum. – gar Undirbúa þjóðskóg á Vestfjörðum Skógarhögg. FRéttAbLAðið/ANtoN bRiNk 2 8 . Á g ú S t 2 0 1 8 Þ r I Ð j U D a g U r4 f r é t t I r ∙ f r é t t a B L a Ð I Ð 2 8 -0 8 -2 0 1 8 0 5 :1 2 F B 0 3 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 A B -2 1 B 8 2 0 A B -2 0 7 C 2 0 A B -1 F 4 0 2 0 A B -1 E 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 3 2 s _ 2 7 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.