Fréttablaðið - 15.09.2018, Side 34
Mér finnst Krummi
kominn til að vera.
Hann er svo skemmti-
legur karakter að hann
getur alveg haldið uppi
stuðinu lengi lengi.
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
Þetta er í rauninni samstarfs-verkefni Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, Menningarfé-
lagsins og Leikfélags Akureyrar,“
segir Agnes Wild sem leikstýrir
sýningunni en hún á að baki fjölda
leik- og leikstjórnarverkefna. „Þetta
er fjölskyldusýning og gleðisprengja
sem fer fram í Hamraborg, stóra
sviðinu í Hofi.“ Aðspurð hvort um
söngleik sé að ræða segir hún svo
ekki vera. „Ég myndi segja að þetta
væri leikrit með söngvum þar sem
Krummi er aðalsöguhetjan. Honum
finnst hann vera langbestur og flott-
astur, aðalfuglinn á Íslandi. Hann
hefur verið einn á Íslandi með
vinum sínum snjótittlingunum en
hefur beðið mjög óþreyjufullur eftir
því að lóan og spóinn og krían snúi
aftur eftir langa vetursetu í heitari
löndum. Hann hefur sett upp
fuglakabarett á skemmtistaðnum
Fenjamýri þar sem fuglarnir tínast
inn einn af öðrum með tilheyrandi
tónlist og dansi.“ Sýningin er fjöl-
menn og góðmenn. „Það er átta
manna kór á sviðinu, fjórir dansarar
sem túlka alla fuglana með brúðum
og dansi og skemmtilegheitum
og svo er fjórtán manna hljóm-
sveit, að ótöldum einum leikara,
Jóhanni Axel Ingólfssyni sem leikur
Krumma. Það er ótrúlega gaman,
krefjandi og spennandi fyrir mig að
leikstýra öllu þessu fólki á sviðinu,
leikara, kór, lifandi hljómsveit
og dönsurum, þarna blandast öll
sviðin saman og vinna þétt saman.
Það þarf auðvitað gríðarlega skipu-
lagningu því þetta er margt fólk
sem allt hefur sitt sérsvið og sínar
listrænu þarfir sem leikstjóri þarf
að taka tillit til.“
Höfundar verksins eru Hjörleifur
Hjartarson sem semur textann,
en hann skrifaði einmitt textann í
verðlaunabókina Fuglar í fyrra auk
þess að vera annar hluti dúettsins
Hundur í óskilum, og Daníel Þor-
steinsson píanóleikari og tónskáld
sem semur tónlistina. „Hver fugl
fær sitt þemalag og Daníel blandar
saman mismunandi tónlistar-
stílum, allt frá klassík og yfir í rapp,“
segir Agnes.
Þegar þetta er skrifað er aðeins
áætluð ein sýning á morgun,
sunnudag, en Agnes segir mögulegt
að sýningum verði bætt við. „Það
ætti að koma í ljós á næstu dögum.
Það er að verða uppselt á þessa
sýningu og þá er kannski eftirspurn
eftir fleirum,“ segir Agnes og bætir
við: „Mér finnst Krummi kominn til
að vera. Hann er svo skemmtilegur
karakter að hann getur alveg haldið
uppi stuðinu lengi lengi.“
Agnes hefur aldrei búið á
Akureyri en hefur sterkar taugar
til bæjarins. „Ég er ættuð héðan og
finnst ég alltaf komin heim þegar
ég kem. Amma og afi bjuggu á
Kristnesi þegar ég var lítil svo ég hef
mjög sterk tilfinningatengsl hing-
að.“ Hún er mjög ánægð með að fá
að dvelja í bænum um skeið núna
og svo aftur í vor. „Ég er að setja
upp aðra sýningu hér sem verður
frumsýnd í vor sem heitir Djákninn
á Myrká, sagan sem aldrei var sögð
og er svona grínverk, eða eiginlega
hryllingsgrínverk kringum söguna
af Djáknanum á Myrká.“ En aftur
að Krúnk, krúnk og dirrindí. „Mig
langar að taka fram að lokum að
sýningin er afskaplega skemmtileg
fyrir alla og alls ekki nauðsynlegt
að hafa börn með sér þó sýningin
höfði til allra í fjölskyldunni.“
Krúnk, krúnk og dirrindí verður
sýnd á morgun, sunnudag, klukkan
fjögur í Hofi á Akureyri en allar
nánari upplýsingar má finna á mak.
is.
Krummi setur upp kabarett
Krúnk, krúnk og dirrindí er nýr barna- og fjölskyldusöngleikur sem frumsýndur verður í Hofi á
Akureyri á morgun, sunnudag. Agnes Wild leikstýrir sýningunni og tuttugu manna hópi hljóðfæra-
leikara, söngvara og dansara og svo náttúrlega Krumma. Fjölmenn gleðisprengja fyrir alla.
Agnes Wild, leikstjóri, Krúnk, krúnk
og dirrindí sem sýnt verður í Hamra-
borg í Hofi á sunnudaginn.
Jóhann Axel Ingólfsson í hlutverki Krumma sem undirbýr kabarett til að
fagna endurkomu vina sinna farfuglanna. Krefjandi og spennandi, segir hann.
Útsölumarkaður
Allt á að seljast
Verslunin hættir VIÐ TÆMUM ALLT
Útsalan hefst Laugardaginn 15. sept og
líkur sunnudaginn 23. sept eða í 9 daga.
Opið 12-18 alla daga
Aðeins 5 verð í búðinni
195 495 995 1.995 2.995
Komið og gerið góð kaup!
LOSAÐU ÞIG VIÐ FÓTAPIRRINGINN
Sölustaðir: Flest apótek og www.heilsanheim.is
Ertu að glíma
við fótapirring og
sinadrátt á nóttinni?
MAGNESÍUM NIGHT
húðvörurnar geta
hjálpað þér.
Innihalda:
Magnesíum
Arnica
Lavender
Bratislava
595 1000
20. september í 4 nætur
aaaaAustria Trend Hotel
VEGNA FORFALLA
Frá kr.
69.995
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 5 . s e p t e m B e R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
1
5
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
D
6
-F
9
E
4
2
0
D
6
-F
8
A
8
2
0
D
6
-F
7
6
C
2
0
D
6
-F
6
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
0
4
s
_
1
4
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K