Fréttablaðið - 15.09.2018, Page 39

Fréttablaðið - 15.09.2018, Page 39
 Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs Helstu verkefni eru að stýra tíu manna liðsheild, stefnumótun og skipulagning verkefna, áætlanagerð, gæðastýring og samskipti við stofnanir og ráðuneyti. Frekari hæfnikröfur • Viðeigandi háskólamenntun • Reynsla af stjórnunarstörfum • Reynsla og/eða þekking á stjórnsýslu og rekstri hins opinbera • Góðir greiningarhæfileikar • Góð innsýn í íslenskt þjóðlíf • Þekking á fjárhagskerfum hins opinbera (Orra) • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli Deildarstjórar á endurskoðunarsvið Um er að ræða tvær stöður deildarstjóra. Helstu verkefni eru stefnumótun og skipulagning verkefna, umsjón með endurskoðun stofnana og fyrirtækja auk sérstakra úttekta sem lúta að eftirliti með fjármálum ríkissjóðs. Deildarstjóri ber ábyrgð á gæðaeftirliti og annast samskipti við stofnanir og ráðuneyti vegna þeirra verkefna sem eru á hans ábyrgð. Frekari hæfnikröfur • Löggilding í endurskoðun, meistarapróf/cand.oecon á sviði endurskoðunar og reikningshalds eða viðskiptafræði • Hæfni til að leiðbeina og stýra verkefnum • Umtalsverð reynsla af endurskoðunarstörfum • Þekking á alþjóðlegum endurskoðunarstöðlum • Reynsla og/eða þekking á rekstri og fjármálastjórn opinberra aðila • Þekking á lögum nr. 123/2015, um opinber fjármál • Víðtæk tölvukunnátta og reynsla af notkun fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins (Orra) er kostur • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli Lögfræðingur á lögfræðisvið Helstu verkefni felast í eftirliti með fjárreiðum staðfestra sjóða, eftirliti með fjármálum tengdum stjórnmálastarfsemi, úrlausn lögfræðilegra álitaefna og þátttaka í stjórnsýsluúttektum. Frekari hæfnikröfur: • Meistara- eða cand.jur gráða í lögum • Góð þekking og reynsla af stjórnskipunar- og stjórnsýslurétti og viðeigandi málsmeðferðarreglum • Þekking á reikningsskilum er kostur • Þekking á reikningshaldi og uppgjöri opinberra aðila er kostur • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli Sérfræðingar á endurskoðunarsvið Um er að ræða tvær stöður sérfræðinga. Helstu verkefni felast í endurskoðun á reikningsskilum ríkisaðila, könnun á innra eftirliti stofnana og virkni þess og í gerð annarra úttekta á fjárhagsmálefnum ríkisstofnana og ríkisaðila. Þátttaka í teymisvinnu, samstarf við ýmsa aðila og ábyrgð á afmörkuðum verkefnum. Frekari hæfnikröfur • Löggilding í endurskoðun, meistarapróf/cand.oecon á sviði endurskoðunar og reikningshalds eða viðskiptafræði • Þekking á alþjóðlegum endurskoðunarstöðlum • Reynsla og/eða þekking á rekstri og fjármálastjórn • Þekking á lögum nr. 123/2015, um opinber fjármál • Víðtæk tölvukunnátta og reynsla af notkun fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins (Orra) er kostur • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli Kerfisstjóri á tækni- og þróunarsvið Helstu verkefni felast í daglegum rekstri á net-, síma- og tölvukerfum embættisins, notendaaðstoð, uppsetning og viðhald á vélbúnaði starfsmanna svo og afritataka, gagnaflutningar og öryggismál. Frekari hæfnikröfur: • Menntun sem nýtist í starfi • Reynsla af kerfisstjórn, netrekstri og notendaaðstoð • Rík þjónustulund • Þekking á Exchange, SQL, Microsoft Office og fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins (Orra) • Reynsla af uppsetningu vél- og hugbúnaðar og þjónustu við notendur • Reynsla af afritunarlausnum er kostur Ríkisendurskoðandi starfar samkvæmt lögum nr. 46/2016, um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga. Embættið stuðlar m.a. að umbótum á fjármálastjórn ríkisins og nýtingu almannafjár og gerir grein fyrir niðurstöðum endurskoðunar og úttekta í skýrslum til Alþingis. Ríkisendurskoðandi leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingum til starfa við ýmis stjórnunar- og sérfræðistörf. Miklar breytingar eru nú fram undan hjá embættinu, ný stefnumótun er að hefjast og tækniumhverfi og starfsaðstaða verður löguð að breyttum þörfum. Er því tækifæri fyrir kraftmikla einstaklinga til að slást í hóp reynslumikilla starfsmanna sem hluti af sterkri liðsheild. Grunnkröfur fyrir öll störfin eru: • Frumkvæði og metnaður • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð • Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum • Geta til að vinna undir álagi • Góð almenn tölvukunnátta Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Ríkisendurskoðunar. Um er að ræða 100% störf. Umsóknir skulu fylltar út á Starfatorgi. Umsóknarfrestur er til og með 8. október 2018. Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningar. Upplýsingar um störfin veita mannauðsstjóri og ríkisendurskoðandi á starf@rikisendurskodun.is Viltu slást… í hópinn? ATVINNUAUGLÝSINGAR 3 L AU G A R DAG U R 1 5 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 1 5 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :1 1 F B 1 0 4 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 D 7 -2 1 6 4 2 0 D 7 -2 0 2 8 2 0 D 7 -1 E E C 2 0 D 7 -1 D B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 0 4 s _ 1 4 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.