Fréttablaðið - 15.09.2018, Blaðsíða 39
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Helstu verkefni eru að stýra tíu manna liðsheild, stefnumótun og skipulagning
verkefna, áætlanagerð, gæðastýring og samskipti við stofnanir og ráðuneyti.
Frekari hæfnikröfur
• Viðeigandi háskólamenntun
• Reynsla af stjórnunarstörfum
• Reynsla og/eða þekking á stjórnsýslu og rekstri hins opinbera
• Góðir greiningarhæfileikar
• Góð innsýn í íslenskt þjóðlíf
• Þekking á fjárhagskerfum hins opinbera (Orra)
• Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
Deildarstjórar á endurskoðunarsvið
Um er að ræða tvær stöður deildarstjóra. Helstu verkefni eru stefnumótun og
skipulagning verkefna, umsjón með endurskoðun stofnana og fyrirtækja auk
sérstakra úttekta sem lúta að eftirliti með fjármálum ríkissjóðs. Deildarstjóri ber
ábyrgð á gæðaeftirliti og annast samskipti við stofnanir og ráðuneyti vegna
þeirra verkefna sem eru á hans ábyrgð.
Frekari hæfnikröfur
• Löggilding í endurskoðun, meistarapróf/cand.oecon á sviði
endurskoðunar og reikningshalds eða viðskiptafræði
• Hæfni til að leiðbeina og stýra verkefnum
• Umtalsverð reynsla af endurskoðunarstörfum
• Þekking á alþjóðlegum endurskoðunarstöðlum
• Reynsla og/eða þekking á rekstri og fjármálastjórn opinberra aðila
• Þekking á lögum nr. 123/2015, um opinber fjármál
• Víðtæk tölvukunnátta og reynsla af notkun fjárhags- og
mannauðskerfi ríkisins (Orra) er kostur
• Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
Lögfræðingur á lögfræðisvið
Helstu verkefni felast í eftirliti með fjárreiðum staðfestra sjóða, eftirliti með
fjármálum tengdum stjórnmálastarfsemi, úrlausn lögfræðilegra álitaefna og
þátttaka í stjórnsýsluúttektum.
Frekari hæfnikröfur:
• Meistara- eða cand.jur gráða í lögum
• Góð þekking og reynsla af stjórnskipunar- og stjórnsýslurétti og
viðeigandi málsmeðferðarreglum
• Þekking á reikningsskilum er kostur
• Þekking á reikningshaldi og uppgjöri opinberra aðila er kostur
• Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
Sérfræðingar á endurskoðunarsvið
Um er að ræða tvær stöður sérfræðinga. Helstu verkefni felast í endurskoðun á
reikningsskilum ríkisaðila, könnun á innra eftirliti stofnana og virkni þess og í
gerð annarra úttekta á fjárhagsmálefnum ríkisstofnana og ríkisaðila. Þátttaka í
teymisvinnu, samstarf við ýmsa aðila og ábyrgð á afmörkuðum verkefnum.
Frekari hæfnikröfur
• Löggilding í endurskoðun, meistarapróf/cand.oecon á sviði
endurskoðunar og reikningshalds eða viðskiptafræði
• Þekking á alþjóðlegum endurskoðunarstöðlum
• Reynsla og/eða þekking á rekstri og fjármálastjórn
• Þekking á lögum nr. 123/2015, um opinber fjármál
• Víðtæk tölvukunnátta og reynsla af notkun fjárhags- og
mannauðskerfi ríkisins (Orra) er kostur
• Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
Kerfisstjóri á tækni- og þróunarsvið
Helstu verkefni felast í daglegum rekstri á net-, síma- og tölvukerfum
embættisins, notendaaðstoð, uppsetning og viðhald á vélbúnaði starfsmanna
svo og afritataka, gagnaflutningar og öryggismál.
Frekari hæfnikröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af kerfisstjórn, netrekstri og notendaaðstoð
• Rík þjónustulund
• Þekking á Exchange, SQL, Microsoft Office og fjárhags- og
mannauðskerfi ríkisins (Orra)
• Reynsla af uppsetningu vél- og hugbúnaðar og þjónustu við
notendur
• Reynsla af afritunarlausnum er kostur
Ríkisendurskoðandi starfar samkvæmt lögum nr. 46/2016, um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga. Embættið stuðlar m.a. að umbótum á fjármálastjórn ríkisins og nýtingu almannafjár
og gerir grein fyrir niðurstöðum endurskoðunar og úttekta í skýrslum til Alþingis.
Ríkisendurskoðandi leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingum til
starfa við ýmis stjórnunar- og sérfræðistörf. Miklar breytingar eru nú fram
undan hjá embættinu, ný stefnumótun er að hefjast og tækniumhverfi og
starfsaðstaða verður löguð að breyttum þörfum. Er því tækifæri fyrir
kraftmikla einstaklinga til að slást í hóp reynslumikilla starfsmanna sem hluti
af sterkri liðsheild.
Grunnkröfur fyrir öll störfin eru:
• Frumkvæði og metnaður
• Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
• Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
• Geta til að vinna undir álagi
• Góð almenn tölvukunnátta
Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf,
þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni
viðkomandi til að gegna starfinu. Um launakjör fer samkvæmt
kjarasamningi Starfsmannafélags Ríkisendurskoðunar. Um er að
ræða 100% störf.
Umsóknir skulu fylltar út á Starfatorgi. Umsóknarfrestur er til og
með 8. október 2018. Öllum umsóknum verður svarað þegar
tekin hefur verið ákvörðun um ráðningar. Upplýsingar um
störfin veita mannauðsstjóri og ríkisendurskoðandi á
starf@rikisendurskodun.is
Viltu slást… í hópinn?
ATVINNUAUGLÝSINGAR 3 L AU G A R DAG U R 1 5 . S E P T E M B E R 2 0 1 8
1
5
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
D
7
-2
1
6
4
2
0
D
7
-2
0
2
8
2
0
D
7
-1
E
E
C
2
0
D
7
-1
D
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
0
4
s
_
1
4
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K