Fréttablaðið - 15.09.2018, Blaðsíða 80
Viltu birta minningargrein á frettabladid.is?
Minningargreinar skal senda á timamot@frettabladid.is.
Birting er endurgjaldslaus og opin öllum á frettabladid.is/timamot
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Tómas Sæmundsson
skipstjóri,
lést að Hrafnistu í Reykjavík
miðvikudaginn 12. september.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju
þriðjudaginn 18. september kl. 13.00.
Rannveig Reymondsdóttir
Magnús Örn Tómasson Oddný Halldórsdóttir
Einar Björn Tómasson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku hjartans vinir og vandamenn.
Hugheilar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Arnfinns Friðrikssonar
ökukennara.
„Kærleikurinn er sterkasta aflið sem til er í heiminum og
þó jafnframt hið hógværasta sem unnt er að hugsa sér.“
(Mahatma Gandhi)
Steinunn Pálsdóttir
Sólveig Þóra Arnfinnsdóttir Guðmundur Jóhann Gíslason
Friðrik Páll Arnfinnsson Ragnheiður Vala Arnardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Jón G. Bjarnason,
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Innilegar þakkir til allra sem
sýndu okkur samúð, hlýhug
og styrk við andlát og útför
eiginkonu minnar,
Ölfu Malmquist
Fyrir hönd aðstandenda,
Pálmi Sveinsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
fósturfaðir, tengdafaðir og afi,
Gísli Magnússon
frá Frostastöðum, til heimilis að
Freyjugötu 28,
lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi, þriðjudaginn 11. september.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju,
föstudaginn 21. september kl. 13.00.
Ólöf Arngrímsdóttir
Magnús Halldór Gíslason Sólveig Þrándardóttir
Jóda Elín Valgerður Margrétardóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Ásdís Magnúsdóttir
lést á Ullerntunet sykehjem í Osló
föstudaginn 31. ágúst. Bálför hennar
fór fram í Osló miðvikudaginn
12. september.
Minningarathöfn í Reykjavík verður auglýst síðar.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Bílddælingurinn Jón Kr. Ólafsson er staddur hér syðra þessa dagana, „í hinni konunglegu borg“, eins og hann orðar það. Hann lætur bara vel af sér. „Veðrið er
himneskt. Það er líklega verið að bæta
okkur upp þetta sumar sem aldrei kom,“
segir hann. Kveðst búinn að reka tón
listar safn í átján ár á Bíldudal og aldrei
hafa kynnst öðru eins aðsóknarleysi.
„Það kom ekki sála í safnið. Íslendingar
fóru náttúrlega ekkert vestur á firði í
svona veðurfari, þeir héldu sig ýmist fyrir
austan í sumar eða bara í Hollywood.“
Þegar Jón er spurður hvað sé annars
títt, kemur fréttin: „Ég er að fara að gefa
út, ja, líklega lokadiskinn minn – ein
söngslög sem tekin voru upp þegar ég
var þrítugur. Ég söng lögin inn í Ríkis
útvarpinu við undirleik Ólafs Vignis
Albertssonar píanóleikara. Við æfðum
í tvo mánuði. Þetta var alvöru og ekkert
verið að kasta til höndum.“
Hann segir það hafa verið Svavari
Gests að þakka að þessar upptökur
útvarpsins fóru ekki á haugana, eftir
að búið var að nota þær í þætti hjá Jóni
Gunnlaugssyni. „Næst þegar ég kom til
Reykjavíkur hitti ég Svavar. Hann var
þá með sitt útgáfufyrirtæki og ég plötu
sölumaður hjá honum. Ég kom til hans
á lagerinn og það fyrsta sem hann sagði
var: „Ég er nú búinn að hlusta á þessar
frábæru upptökur með þér, góði, og ég
ætla bara að segja það strax að þetta
verðum við að gefa út á plötu – núna.“
Svo gerði hann það, gaf efnið út á vínyl
plötu 1983. Það var stór plata sem hét
Ljúfþýtt lag.“
Jón segir dægurlög hafa verið í bland
við hin klassísku á vínylplötunni en
nú verði bara klassík og ekkert annað.
Hann hafi orðið að láta endurvinna
upptökurnar, svo þurfi að senda þær
til útlanda. Diskurinn eigi að heita Jón
Kr. Ólafsson í 60 ár, enda séu 60 ár frá
því hann steig fyrst á svið. En hvenær
er von á diskinum? „Hann gæti komið
út eftir miðjan nóvember. Ég er ekkert
að stressa mig of mikið. Verð kannski
á ferðinni hér aftur í byrjun nóvember
og þá væri gott ef þetta yrði komið. Það
er nú ekki það þægilegasta í heimi að
stjórnast í svona hlutum gegnum síma
vestan af Bíldudal. Ég er nefnilega forn
gripur sem er ekki með tölvu.“
Safnið hans Jóns heitir Melódíur
minninganna og á liðnu vori segir hann
kunningja sinn, Ingimar Oddsson, hafa
gefið út plötu með sama nafni, honum til
heiðurs. „Ingimar tileinkaði mér diskinn
sinn á þeim forsendum að ég væri búinn
að gera svo mikið fyrir íslenska tónlist.
Hann gat látið það vera.“
Heyrðu, nú þarf ég að senda til þín
ljósmyndara, segi ég. „Já, en ég þarf að
fara fyrst niður í STEF og svo aðeins að
laga mig til svo ég verði ekki alveg eins
og rifinn upp úr svelli.“
gun@frettabladid.is
Fyrst á svið fyrir 60 árum
Jón Kr. Ólafsson söngvari vinnur að útgáfu geisladisks. Þar flytur hann klassísk lög sem
tekin voru upp fyrir 40 árum, við undirleik Ólafs Vignis Albertssonar píanóleikara.
„Veðrið er himneskt. Það er líklega verið að bæta okkur upp þetta sumar sem aldrei kom,“ segir Jón. Fréttablaðið/anton brink
Það kom ekki sála í
safnið. Íslendingar fóru
náttúrlega ekkert vestur á firði
í svona veðurfari, þeir héldu sig
ýmist fyrir austan í sumar eða
bara í Hollywood.
1 5 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r36 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tÍmamót
1
5
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
D
6
-F
0
0
4
2
0
D
6
-E
E
C
8
2
0
D
6
-E
D
8
C
2
0
D
6
-E
C
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
0
4
s
_
1
4
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K