Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.05.1981, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 14.05.1981, Blaðsíða 1
9. tbl. 2. árg. Fimmtudagur 14. maí 1981 rEÉTTIE Ovissa um afkastagetu Svarts- engissvæðisins varðandi heittvatn Svar hefur nú borist frá stjórn Hitaveitu Suðurnesja í tilefni af fyrirspurn frá baejarstjórn Kefla- víkur um það, á hvaða verði hita- veitan geti boðið heitt vatn til yl- ræktar og í hvað miklum mæli. Tillaga um þessa könnun var samþykkt á fundi bæjarstjórnar Keflavíkur 10. febr. sl. eins og greint hefur verið frá í Víkur- fréttum. Svar hitaveitunnarersvohljóð- andi: háttar ylræktar, þegar bygging Orkuvers II er lokið árið 1982. Með tillitit tii óvissu um af- kastagetu Svartsengissvæðisins hefur stjórn HS samþykkt að leita heimildarviðkomandi ráðu- neytis til rannsókna og virkjunar á Eldvarpasvæðinu. Að fenginni viðbótarorku í Eld- vörpum eða öðru háhitasvæði, er ekki ólíklegt að hægt verði að selja vatn til iðnaðar og ylræktar. Virkjunarkostnaöur svo og fjármagnskostnaður, sem ákvarðast af almennu ástandi peningamála á erlendum lána- mörkuðum, verðaásamtalmenn- um rekstrarkostnaöi ráðandi um verð á útseldri hitaorku, þegar þar að kemur. Þá má reikna með því að hita- orkan sé þeim mun dýrari því fjær sem dregur frá orkuverinu í Svartsengi. Með hliðsjón af framanskráð- um atriðum verður ekki hægt, á þessu stigi málsins, að tímasetja viðbótarvirkjun né heldur áætla hugsanlegt magn og verð hita- orkunnar." Kaupir SBK sérhannaða bifreið til flutnings á fötluðu og öldruðu fólki? ,,A þessu stigi er ekki fullljóst hversu mikil hitaorka er til stað- ar í Svartsengi, og þar með er ekki vitað hvort unnt reynist að framleiða þar heitt vatn til iðnað- ar og ylræktar svo einhverju nemi. Þarmeðerekki útilokaðað hægt væri að selja vatn til minni Þeim hefur brugðið í brún að undanförnu, er hafa verið svo óheppnir að þurfa að láta sjúkra- bílinn flytja sig frá Keflavík til Reykjavíkur, því gjald það sem þeim berað borgafyrirferðinaer þvílíkt okur, að það næstum borgaði sig að fara tvær ferðir með leigubíl á næturvinnutaxta fram og til baka. Gjald það sem Rauði krossinn, Stjórn SBK hefur að undan- förnu veriö að kanna endurnýj- un á vögnum fyrirtækisins, og er Suöurnesjadeild, fær fyrir eina ferð með sjúkling til Reykjavíkur er hvorki meira né minna en 700 kr. (70.000 gkr.), en af þvi greiðir sjúkrasamlagið 500 kr., sjúkling- urinn 200 kr. Akstur fram og til baka á næturvinnutaxta með leigubifreið er í dag kr. 400 fyrir hverja ferð, þannig að svipað verð væri um að ræða ef leigu- bíllinn færi tvær ferðir. stjórnin sammála um að með hliðsjón af aldri vagnafyrirtækis- ins og mikillar notkunar þeirra, sé nú knýjandi þörf fyrir kaupum á 56-60 farþega vagni til aksturs á sérleyfisleiöinni á móti 0-108, sem keyptur var ásl. sumri. Næst yngsti vagn fyrirtækisins, Ö-107, er að veröa 4 ára gamall og hefur verið ekið um 500 þús. km. Við athugun á farþegafjölda í ein- stökum feröum hefur komið í Ijós að minni vagnar, 35-40 farþega, ráða ekki við farþegafjöldann í sumum ferðum, sem þýðir að hafa verður tvo vagna f þeim ferðum, sem er mjög óhagstætt rekstrarlega. Þá er mismunur á rekstrarkostnaði stærri og minni vagnanna ekki umtalsverður, en stofnkostnaður er auðvitað tölu- vert meiri. Eftir athugun á upplýsingum bifreiðaumboðanna er stjórnin sammála um aö leggja til, aö keyptur verði 58 farþega vagn af ISARN hf., sem verður til af- greiöslu í júlí n.k. Stjórnin fer fram á heimild bæjarstjórnar til þess aö taka nauðsynleg lán til þess aö fjármagna þessi kaup. Bæjarráð Keflavíkur hefur óskaö eftir umsögn stjórnarinn- ar um bréf, sem borist hefur frá stjórn Styrktarfélags aldraðra á Suöurnesjum, um þörf á sér- hannaðri bifreiö til flutninga á fötluöu fólki og öldruðu, sem á í erfiðleikum við að nota almenn- ingsvagna. Vegna þessa skal tekið fram, að við framangreind kaup á nýj- um vagni verður reynt að koma til móts við framangreindar óskir eins og hægt er. Bæjarstjórn Keflavfkur hefur samþykkt að veita stjórn SBK nauðsynlega heimild til að fram- kvæma kaup þessi. Lífið er ekki bara saltfiskur og skreið Okurgjald fyrir sjúkraflutninga Keflavík: Sama aðstöðu- gjald af fram- leiðslu- og fiskiðnaði Er við vorum áferð úti á Garðskaga f sföustu viku, rákumst við á þessaskreiðarhjallaásvæði.semeryfir- lýst friöland fyrir fólk og fugla, samkvæmt skilti sem þar hangir uppi. Þarereinnig eggjataka bönnuð.svo og meðferð skotvopna. Er því augljóst að hjallar þessir hljóta að hafa veriö reistir þarna íóleyfi og ber því að fjarlægja þá tafarlaust. Er eiganda þeirra bent á, að þó fiskvinnsla sé undirstöðuatvinnuvegur þjóðarinnar, þá er Iffið ekki bara saltfiskur og skreið, sem betur fer. Á fundi bæjarstjórnar Kefla- vfkur 7. apríl sl. var samþykkt að vísa til bæjarráös eftirfarandi til- lögu frá Ólafi Björnssyni og Guðfinni Sigurvinssyni: „Bæjarstjórn samþykkir að aðstöðugjald af framleiðslu- iönaði skuli vera það sama og af fiskiðnaði, þ.e. 0.65%, samkv. því sem nú er lagt til."

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.