Víkurfréttir - 14.05.1981, Blaðsíða 7
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 14. maí 1981 7
Menningardagar í Njarðvík
munu koma fram í kirkjunni á
þessum menningardögum, en
þeim lýkur með guðsþjónustu
sunnudaginn 17. maí kl. 14.
Menningardagardagar standa
nú yfir í Ytri-Njarðvíkurkirkju á
vegum Menningarnefndar kirkj-
unnar, en þar er um að ræða
tónleikahald og málverkasýn-
ingu.
Menningardagarnir voru settir
sl. sunnudag af Friðrik Valdimars
syni, sem kynnti dagskrána.sem
standa mun yfir til 17. maí.
Dagskráin hófst með Vortón-
leikum Tónlistarskóla Njarðvíkur
og að þeim loknum var opnuð
málverkasýning þriggja Suður-
nesjamanna, í safnaðarsal kirkj-
unnar, þeirra Öskars Jónssonar,
Áka Granz og Karls Olsen jr.
Viðsetninguna ásunnudaginn
afhenti Friðrik Valdimarsson
Erni Óskarssyni, skólastjóra
Tónlistarskóla Njarðvíkur 1.500
kr. að gjöf úr Stofnsjóði séra Páls
heitins Þórðarsonar, sem variö
yrði til þess er kæmi skólanum
að sem bestu notum. „Kirkjan vill
með þessari gjöf,“ sagði Friðrik,
..beina sjónum á þann grósku-
mikla gróður í reit Tónlistarskól-
ans, -eftiraðeinsfimm árastarf,-
og benda á að með samstöðu
verðum við sjálf að hlúa að þeim
Verður Kefla-
víkurbær eign-
araðili að Karla-
kórshúsinu?
Bæjarstjórn Keflavíkur hefur
nýlega á fundi sínum samþykkt
eftirfarandi tillögu samhljóða:
„Meö tilliti til þess að slitnað
hefur upp úr viðræðum á milli
Karlakórsins og UMFN um sam-
eignaraðild að húsi karlakórsins,
samþykkir bæjarstjórn að fela
bæjarráði að kanna möguleika á
því að Keflavíkurbær geti á ein-
hvern hátt stuðlað að því að hús-
byggingin geti haldið áfram með
eölilegum hraða."
Tillagan var samþykkt sam-
hljóða, en hún var borin upp af
Hilmari Péturssyni, Ólafi Björns-
syni, Ingólfi Falssyni og Karli
Sigurbergssyni.
Þvottahús Keflavíkur:
Niðurrifi frestað
Á fundi bæjarráðs Keflavíkur
28. aprílsl. las bæjarstjóri bréf frá
Gunnari Jónssyni varðandi ólög-
legar viðbyggingar við bílskúr og
íbúðarhús að Vallartúni 5, þar
sem Gunnar fer fram á að fallið
verði frá niðurrifi umræddrar
byggingar.
Bæjarráð samþykkti að fela
bæjarstjóra, byggingafulltrúa og
formanni bygginganefndar að
finna lausn á þessu máli. Jafn-
framt samþykkti bæjarráð að
fresta aðgerðum þar til ofan-
greindisr aöilar hafa komist aö
niðurstöðu.
menningargróðri. Skólinn og
kirkjan eiga samleið, tónarnir eru
frá sömu hörpunni, sem lofsyng-
ur fegurðina, lífiö og kærleika
Guðs.“
Þá var Atla Ingólfssyni afhent
skrautritað skjal ásamt 1000 kr.
viðurkenning frá Tónlistarsjóði
sr. Páls Þórðarsonar, en það
gerði örn Óskarsson. Er þetta í
fyrsta sinn sem veitt er úr
þessum sjóði. Á vortónleikunum
var leikið frumsamið verk eftir
Atla, Divertimento, við mikinn
fögnuð áheyrenda.
Dagskráin hélt svo áfram á
mánudags-, þriðjudgs- og
miövikudagskvöld, og í kvöld,
fimmtudag, syngur Kór Tónlist-
arskóla Njarðvíkur undir stjórn
Gróu Hreinsdóttur.
Annaö kvöld, 15. maí, verður
málverkasýningin opin, en hún
er opin alla dagana frá kl. 19.30
ril 22.30.
Laugardaginn 16. maí kl. 17
syngur Barnakór Tónlistarskóla
Rangæinga undir stjórn Sigríðar
Sigurðardóttur.
Á annað hundrað manns
MANNVIRKI SF.
Byggingaverktakar
Hafnargötu 17, Keflavík
Sími 3911
Gerum föst tilboð í
mótauppslátt, utanhúss-
klæðningar, þakviðgerðir
og aðra trésmiðavinnu.
Skrifstofan er opin alla vlrka
daga frá kl. 10-12.
Greiði allar innlánsstofnanir
jafn háa vexti, hvar ávaxtar þú þá
sparifé þitt?
Þar sem það vinnur að bætt-
um hag þínum og landa þinna?
í ríkisbanka sem fjármagnar
helstu útflutningsatvinnuvegi
íslendinga?
Megum við benda á slíkan
banka?
ÚTVEGSBANKI
W ÍSLANDS
AD HVAÐA yERKEFNI
SE4RE4R SR4RIFÉ Wn?