Víkurfréttir - 11.06.1981, Qupperneq 12
12 Fimmtudagur 11. júní 1981
VfKUR-fröttir
fFjölbrautaskóli
Suðurnesja
Sumarið 1981 verður skrifstofa skólans opin sem
hér segir:
1.-19. júní:
22. - 30. júní:
10. - 21. ágúst:
24. - 31. ágúst:
kl. 9-12 og 13-16
kl. 9-12
kl. 9-12
kl. 9-12 og 13-16
Skrifstofan verður lokuð 1. júlí - 9. ágúst að báð-
um dögum meðtöldum.
Stjórnendur skólans skipta þannig með sér
verkum, að Jón Böðvarsson, skólameistari, verð-
urtil viðtals í júní, en Ingólfur Halldórsson, aðstoð-
arskólameistari og Ægir Sigurðsson, áfangastjóri,
í ágústmánuði.
Skólamelstarl
KEFLAVÍK
l|| Lögtaks
úrskurður
vegna fyrirframgreiðslu útsvara
Samkvæmt beiðni bæjarsjóðs Keflavíkur úrskurð-
ast hér með, að lögtök getafariðfram vegnagjald-
fallinnar ógreiddrar fyrirframgreiðslu útsvars- og
aðstöðugjalda ársins 1981 til bæjarsjóðs Kefla-
víkur, allt ásamt dráttarvöxtum og kostnaði.
Lögtök geta farið fram að liðnum 8 dögum frá birt-
ingu úrskurðar þessa, ef ekki verða gerð skil fyrir
þann tíma.
Keflavík, 2. júní 1981.
Bæjarfógetinn I Keflavík,
Jón Eystelnsson
Keflavík - Raðhús
Er að hefja smíði á 168 m2 raðhúsum á einni hæð
m/bílskúr, á góðum stað í bænum. Seljast fokheld
m/gleri, útihurðum o.fl. Lóðin verður girt og lögð
túnþökum.
Þeir sem áður hafa sþurst fyrir um hús þessi hafi
samband við mig sem fyrst.
Alexander Jóhannesson, siml 2336
„Hvaö er hellauaamlegra en afi lelka aér vlfi hundlnn *lnn?“
„Hundurinn er förunautur,
til gagns og ánægju"
Oft hafa Víkur-fréttir gert ýmis konar athugasemdir við hundahald
hér í bæ. Hefur m.a. verið vikið að óþrifnaði og þar að auki sett spurn-
ingamerki við gildi þess að hafa hundaí þéttbýli. Vegnaþessaraskrifa
hafa ýmsir málsvarar hunda hringt til okkar og bent á kosti þess að
hafa hunda. Einn þeirra er Jón W. Magnússon. Við ákváðum því að
taka hann tali og kanna frekar kosti þess.
Til að byrja með lögðum við
eftirfarandi spurningu fyrir Jón:
Af upphringingum þfnum má
ráða að þú teljir þlg sjálfskipað-
an sem besta vln hundslns hér I
bæ. Er þetta rétt skllið?
Og auðviðað fór Jón bara að
hlæja. ,,Ekki segi ég það nú, en
ég er orðinn hundavinur eftir að
ég eignaðist sjálfur hund.“
Hvað segir þú um óþrifnað af
hundum fyrlr bæjarbúa?
„Hérna verðum við að spyrja
hvar takmörkin liggja. Verðum
við ekki að fórna einhverju fyrir
að eiga góðan hund? Góðan fé-
laga til að leika sér með? Sumir
eiga mótorhjól og aðrir bíla til að
leika sér að. Þeir sem eiga slík
tæki nota þau sér til gagns og
ánægju. Hins vegar eru aðeins
nokkrir slíkir sem eru með háv-
aða á nóttunni eða seint á kvöld-
in. Ætti kannski að banna öll
mótorhjól? Það sama gildir um
hundahald, það er ekki hægt að
alhæfa um alla hunda út frá ein-
staka dærnurn."
Þú talar um gagnsemi af mót-
orhjólum og bílum, hvaða gagn
er af hundum? Notar þú þin hund
ef til vill til velða?
„Nei, hundinn nota ég ekki
sem peningalegt lifibrauð. Ég
nota hann sem förunaut. Hund-
urinn dreifir umhverfinu, gerir
það lifandi. Þessu má líkja viö
hestamann sem á hest, eða katt-
arvin sem á kött.“
En er ekki rétt að hafa einhverj-
ar reglur?
„Auðvitað er nauðsynlegt að
setja reglur. Það sem ég hef hins
vegar fundið að umræðunni um
hundahald, þá sérstaklega um-
ræðu heilbrigðisfulltrúa, er að
þaö er eilíflega verið aö klifa á þvi
versta í fari hunda. Hann málar
það versta upp, sem hent getur
mann og hund. Þettaerhiðsama
og að alhæfa að allir ökumenn
séu lélegir vegna þess að til eru
örfáir lélegir."
Er ekkl svona hundahald I þétt-
býli bara gðmul sveitarómantik?
„Ja, - nei, það held ég nú ekki.
Sjálfur eignaðist ég ekki hund
fyrr en fyrir sjö árum, hefði
reyndar fengið mér hund mun
fyrr, ef ég hefði gert mér grein
fyrir gildi þess, sérlega upþeldis-
legu gildi gagnvart börnum. Um
hunda í þéttbýli má líka segja, að
þeir þurfa að lúta aga. Þurfa ekki
börn að lúta aga? Þau þurfa að
fara í skóla, læra að hlýða, vera
inni við. Þegar tglað er um að
hundar eigi bara heima í sveit,
má þá ekki spyrja á móti hvort
maðurinn eigi ekki bara heima í
sveit? Ég fer til dæmis jafn oft
með hundinn út í sveit og börnin.
ÞangaÓ fer öll fjölskyldan og
hundurinn að leika sér.“
En er ekkl eitthvað sem þú vilt
segja að lokum? T.d. að skora á
alla bæjarbúa að fá sér hund?
„Nei, það held ég ekki. Ég álít
að það sé hverjum manni í sjálfs-
vald sett að fá sér það gæludýr
sem hann vill. Menn ættu að fá
sér gæludýr og læra að umgang-
ast það. Þeir myndu án efa njóta
þess í sama mæli og sjónvarps
eða myndsegulbands. Slíkar
skemmtanir eru hins vegar
„dauðar" í þeim skilningi, að
maðurinn er ekki þátttakandi. -
Og hvað er heilsusamlegra
trimm en að leikasér við hundinn
sinn?"
Næsta blaö kemur
út 25. júní