Víkurfréttir - 13.08.1981, Qupperneq 3
VÍKUR-fréttir
Hringt hefur verið til blaösins út af bílnum sem myndin er af hér að
ofan, og spurt hvort hann sé virkilega í eigu SSS, þar sem ekki sjáist
annað en að hann sé oftast í einkanotkun.
Nota tæki bæjarins í einkaþágu
Að undanförnu hafa Keflavík-
urbær og bæjarfyrirtækin raf-
veitan og bifreiðaverkstæðiö
fengið í sína þjónustu litlar og
skemmtilegar sendibifreiðar.
Þær eru ætlaðar til notkunarfyrir
viðkomandi stofnanir, en eitt-
hvaðvirðaststarfsmenn þeirsem
aka þeim mistúlka notkunargildi
Þeirra, því iðulega má sjá
bifreiðar þessar í notkun fyrir
einkamála viðkomandi starfs-
manna - utan vinnutíma. Er mjög
hvimleitt að sjá starfsmennina í
ökuferðum með fjölskyldursínar
eða reka einkaerindi sín á bif-
reiðum sem reknar eru af al-
menningsfé.
Það hlýtur að vera lágmarks-
krafa bæjarbúa að bifreiðar
þessar verði merktar bænum hið
snarasta og séð verði til þess aö
þær verði ekki notaðar í einka-
þágu starfsmanna að loknum
vinnutíma, eins og nú er gert.
Steindór Sigurðsson, Njarðvík:
Ört vaxandi þjónustu
fyrirtæki Nýr bíll í flotann
Fimmtudagur 13. ágúst 1981
Nýlega bættist ný sérleyfis- og
hópferðabifreið í bilaflota
Steindórs Sigurðssonar í Njarð-
vík. Er hér um að ræða 33 far-
þega bíl af Volvo-gerð, árgerð
1981. Mun þetta vera fyrsta rútu-
grindin af Volvo-gerð sem flutt er
inn af þessum stærðarflokki, en
bifreiðin er yfirbyggð hjá
Vanhool í Belgíu, en frá því fyrir-
tæki hafa ekki verið fluttir inn bíl-
ar síðan 1973 þar til nú.
Hinn nýi bíll er mjög lipur til
allra snúninga, enda af fullkomn-
ustu gerð sem völ er á og hefur
upp á ýmsar nýjungar að bjóða.
Ekki er þetta eini bíllinn sem
Steindór hefur keypt á þessu ári,
Því fyrr í sumar fékk hann notað-
an strætisvagn frá Strætisvögn-
um Reykjavíkur og tekur sá bíll
rúmlega 70 farþega. Að sögn
Steindórs getur hann nú boðið
upp á alls 6 bifreiðar sem geta
flutt samtals um 300 farþega.
1. nóv. n.k. eru liðin 11 ársíðan
Steindór hóf að reka fyrirtæki sitt
sem byrjaði á rekstri áætlunar-
og skólabíls milli Keflavíkur og
Njarðvíkur, en hefursíðan þróast
upp í það sem er í dag. Fyrir utan
áætlunarferðir milli Keflavíkur
og Njarðvíkur eru farnar 4 ferðir
á dag alla virka daga milli Kefla-
víkur og Grindavíkur. Þá er enn
rekinn skólabíll, sem nú ereinnig
orðinn skólabíll fyrir Fjölbrauta-
skólann um öll Suðurnes.
Steindór sér um að aka starfs-
fólki úröfrystihúsum, þarafeinu
í Garði, í og úr vinnu kvölds og
morgna og á matmálstímum, og
einnig hefur hann á sínum snær-
Framh. á 8. síöu
Steindór vlö nýja bfllnn
Keflvíkingar
Suðurnesjamenn
Þótt sólin lækki á lofti, þá skín hún alltaf jafn skært
á Sólbaðstofunni Sóley, að Heiðarbraut 2 Keflavík.
Opið frá kl. 7.30 - 22.30.
Ath. Mikið úrval af snyrtivörum.
Athugið einnig, að haustverðið hefur tekið gildi.
Heiðarbraut 2 - Keflavík - Sími 2764
MANNVIRKI SF.
Bygglngaverktakar
Hatnargötu 17, Keflavfk
Sfml 3911
Gerum föst tilboð í
mótauppslátt, utanhúss-
klæðningar, þakviðgeröir
og aðra trésmíðavinnu.
Skrifstofan er opin alla virka
daga frá kl. 10-12.