Víkurfréttir - 13.08.1981, Blaðsíða 6
6 Fimmtudagur 13. ágúst 1981
VIKUR-fréttir
Njarðvíkurslippur:
Ágreiningur út af málningu
Fyrir nokkru kom upp ágrein-
ingur i Skipasmíöastöð Njarð-
víkur milli forráðamanna stöðv-
arinnar og málaraverktaka úr
Slysagildra
Með tilkomu malbiks upp með
girðingu við húsið Nónvvarða 1
og malbikun á göngugötu við
horn þess sama húss, hefur
myndast stórhættuleg slysa-
gildra þar, er börn koma á mikilli
ferð niður gangstíginn og fyrir
bíla er aka Nónvörðuna. Er hér
með komið ábndingu til bæjar-
ins að „byrgha brunninn áöuren
barnið dettur ofan i hann“, og
koma þar meö í veg fyrir slys
þarna, t.d. með þvi að setja
hindrun á enda göngustígsins.
Hafnarfirði, er hinir síðarnefndu
voru að vinna við málningu tog-
arans Mai úr Hafnarfirði, sem var
uppi í slippnum.
Forráðamenn stöðvarinnar
óskuðu eftir þvi að lögreglan
fjarlægði verktakana á þeirri for-
sendu að þeir störfuðu þarna í
óþökk fyrirtækisins. Til lögreglu-
aðgerðar kom þó ekki þar sem
málararnir höfðu lokið starfi sinu
og vegna þess að lögbann var
ekki krafist af hálfu Skipasmíða-
stöðvarinnar.
Upphaf málsins er það að
mikið hefur færst í vöxt að eig-
endur skipa fái pláss fyrir þau i
slippnum, en fá siðan utanað-
komandi verktaka til að vinna við
skipin, en skipta ekki við slipp-
inn nema það nauðsynlegasta.
Forráðamenn slippsins eru að
vonum ekki ánægðir með þessa
þróun mála og einnig það, að
þrátt fyrir helgarvinnubann hafa
þessir aðilar unnið óáreittir,
meðan starfsmenn slippsins fá
ekki að vinna.
Því var gripið til þess ráðs aðfá
úr því skoriö hvort viðkomandi
eigendum skipa væri frjálst að
velja verktaka við skipið eftir að
það væri komið upp.
Þar sem engin skilyrði eru sett
við upptöku skipa í slippinn hef-
ur verið fallið frá frekari aögerð-
um af hálfu slippsins.
Reykjanesbrautin:
Ekki endurbætt á þessu ári
Sálarrannsóknarfélag Suðurnesja:
Stórátak í sölu gjafabréfa
Áætlað að verja 250 þús. kr. til húsabreytinga
Eins og allir Suðurnesjamenn
vita, þáer Reykjanesbrautin orð-
in talsvert slitin og stórhættu-
legt að aka um hana í rigningu.
Á alþingi í vetur sagði sam-
gönguráðherra að viðgerð
hæfist á þessu ári, en nú er hins
vegar Ijóst að svo verður ekki, -
möguleiki er á að hafnar verði
framkvæmdir við veginn á næsta
ári. Og þar sem þetta eru mjög
dýrar framkvæmdir er orðið Ijóst
að vegurinn verður ekki allur
endurbættur á einu sumri.
Tvenns konar viðgerð kemur
til greina, annars vegar að mal-
bika ofan á steypuna, eða
,,fræsa“ ofan af veginum og
lækka hann til jafn svið hjólförin.
Til þess á Vegagerðin þó ekki
tæki, en taliöeraðtilgreinakomi
aö fá þau leigð.
Að undanförnu hefur verið
unnið af miklum krafti við að inn-
rétta viðbótarhúsnæði það sem
Sálarrannsóknarfélag Suður-
nesja hefur keypt aðTúngötu 22
í Keflavík. Reiknað er með að
búið sé að verja tæpum 100 þús.
kr. í kostnað við breytingarnar
auk mikillar sjálfboðavinnu, sem
ekki er verðlögð. Enn er eftir að
gera ýmislegt til að húsið verði
fullgert, en áætlað er að heildar-
kostnaður við breytingarnar
verði aldrei undir 250 þús. kr.
Þegar húsið verður fullklárað er
vonast til aö félagið geti sjálft
boðið fundarsal undir alla al-
menna fundi á þess vegum, auk
þess sem dagleg þjónusta við fé-
lagsmenn, svo sem aðstaða fyrir
orkumiðla, geti farið þar fram.
Til að fjármagna þessar breyt-
ingar hafa verið gefin út gjafa-
bréf, sem eru frádráttarbær frá
skatti, og hafði um síðustu mán-
aðamót safnast 15 þús. kr. íformi
þessara bréfa auk, auk þess sem
félaginu höfðu borist ýmsar
aðrar gjafir, t.d. húsgögn.
En engu að síður þarf nú að
gera stórátak í sölu þessara
gjafabréfa til að ná endum
saman, og er vonast til að félagar
og aðrir velunnarar styrki félagiö
með kaupum á bréfum þessum,
en þau verða til sölu hjástjórnar-
meðlimum SRFS og í húsi
félagsins alla þriðjudaga. Engin
ákveðin upphæö er á bréfunum,
heldur er framlag frjálst hverjum
og einum, en eins og áður segir
eru gjafir þessar frádráttarbær-
ar frá skatti.
Reykjanesfólkvangur:
Bann við lausa-
göngu hrossa
Stjórn Reykjanesfólkvangs,
bæjarfógeti og bæjarstjórinn í
Grindavík, hafa bannað alla beit
hrossa á afréttum í landnámi
Ingólfs og þar með beit hrossa
utan sérstakra girðinga i Reykja-
nesfólkvangi. Hross sem finnast
á lausagöngu innan fólkvangs-
ins verða því tekin og þeim ráð-
stafað á kostnað eigenda sem
lög standa til.
NJARÐVÍK
Útsvör - Að-
stöðugjöld ’81
1. gjalddagi útsvars og aðstöðugjalda eftir
álagningu var 1. ágúst sl.
Njarðvíkingar, gerið skil með hvern gjald-
daga og forðist þannig kostnað og önnur
óþægindi.
Dráttarvextir eru 4.5% pr. mánuð.
Kaupgreiðendur eru sérstaklega minntir á
30. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga um
sjálfsábyrgð á gjöldum starfsmanna sinna.
Innheimtan