Verslunartíðindi - 01.01.1918, Qupperneq 15
Verslunartíðindi
7
ur og breyting sú, er gerð var 1914 á
skipun ráðsins, virtist hafa lítil áhrif
í þá átt, að ráðið yrði beinlínis fulltrúa-
ðtofnun fyrir verslunarstjett alls landsins.
Til þess að koma upp fullnægjandi full-
trúastofnun þuifti því að gjörbreyta fyrir-
komulaginu. Málið var á ný tekið fyrir
í Kaupmannafjel. Rvík. Var mönnum ljóst
að nauðsynlegt var að setja á fót fasta
skrifstofu, en til þess og ýmislegs annars,
var óhjákvæmilegt að stofnunin væri fjár-
hagslega sjálfstæð. Á fundi kaupmanna-
fjelagsins 30. nóv. 1916 var samþykt að
koma upp slíkri' skrifstofu. Var kaup-
mannaráðinu falin öll framkvæmd í mál-
inu og skyldi skrifstofan vera undir um-
sjón kaupmannaráðsins, þangað til þátt-
takendur sjálfir hefðu nánar ákveðið um
fyrirkomulag fulltrúastofnunarinnar.
I kaupmannaráðinu áttu þá sæti: Jes
Zimsen, formaður, Olafur G. Eyjólfsson,
ritari, Garðar Gislason, Jón Brynjólfsson
og Páll Stefánsson, en varamenn voru
Olafur Johnson og Páll H. Gíslason. Þann
12. des. lá málið fyrir fundi kaupmanna-
ráðsins. Tók ráðið það strax til athugun-
ar og skömmu siðar ákvað það að byrja
á framkvæmdum í málinu. Innan Kaup-
niannafjelags Reykjavikur höfðu margir
þegar lofað tillagi til stofnunarinnar, en
kaupmannaráðið leitaði frekari undirtekta
bæði hjer i Reykjavík óg út um land.
Var sent út umburðarbrjef þess efnis í
byrjun febrúarmánaðar. En þar sem þá
þegar höfðu orðið góðar undirtektir undir
málið í Reykjavík og allvíða út um land-
ið, ákvað kaupmannaráðið að láta skrif-
8tofuna taka til starfa í byrjun maímánað-
ar og rjeð Georg Olafsson cand polit, til
þess að veita henni forstöðu. Á hinum
tilsetta tima tók skrifstofan til starfa und-
ir umsjón kaupmannaráðsins og var úr
þvi unnið að itarlegri undirbúningi undir
Stofnfundinn, og þá aðallega að samningu
frumvarps til laga fyrirhugaðrar fulltrúa-
stofnunar. Vegna þess að allar strand-
ferðir voru á mestu ringulreið, var dreg-
ið að ákveða stofnfundardaginn í von um
að einhver festa kæmist í skipagöngurnar,
svo að hægt væri að haga fundartíma
þannig að þáttakendur utan af landi gæti
sótt fundinn. Þegar komið var fram í
ágústmánuð og ekki rættist enn neitt úr
þessu, sá kaupmannaráðið sjer eigi annað
fært, en að ákveða stofnfundardaginn þrátt
fyrir óvissuna um skipaferðir. Nokkrar
líkur voru til þess að Sterling kæmi úr
strandferð laust fyrir miðjan september-
mánuð og var því stofnfundurinn ákveðinn
17. september, og það auglýst í flest-
öllum blöðum landsins.
Stofnfundurinn hófst hinn ákveðna dag
kl. 5 e. b. og var hann haldinn í húsi
K. F. U. M. Formaður kaupmannaráðs-
ins, konsúll Jes Zimsen setti fundinn og
samkvæmt tillögu hans var Jón Brynjólfs-
son kaupm. kosinn fundarstjóri, en hann
kvað Pál H. Gislason kaupm. til ritara
fundarins. Því næst skýrði formaður
kaupmannaráðsins frá tildrögum og und-
irbúningi fundarins; ennfremur gerði hann
grein fyrir tillögum kaupmannaráðsins, rer
fólust í frumvarpi til laga fyrir Verslun-
arráð Islands, og lá það prentað fyrir
fundinum. Er form. kaupmannaráðsins
hafði lokið máli sínu, bar fundarstjóri upp
tillögu um að komið væri á fót fulltrúa-
stofnun fyrir verslun, iðnað og siglingar,
og var hún samþykt í einu hljóði. Var
þá tekið fyrir frumvarpið og breytinga-
og viðaukatillögur við það, er fram komu
á fundinum. Eftir ítarlegar umræður um
einstakar greinar frumvarpsins var það
samþykt í heild sinni að mestu leyti óbreytt
eins og það var lagt fyrir fundinn. Lögin
eins og þau voru samþykt á stofnfundin-
um, eru birt hjer á eftir og skal sjerstak-
lega vakin athygli 2. og 7. gr., er ræða