Verslunartíðindi - 01.01.1918, Blaðsíða 21

Verslunartíðindi - 01.01.1918, Blaðsíða 21
Verslunartíðindi með sjer aS eigi varð notað það töfluform, sem áður var. Hefur töflunum verið fjölgað og hafa þær um leið orðið mun aðgengilegri en áður. í næsta blaði mun gefið yfirlit yfir skýrslurn- ar sjálfar. Fastar verslanir. í hiuum nýútkomnu verslunarskýrslum fyrir árið 1914, eru meðal annars gefnar upplýsingar um tölu fastra verslana. Samkvæmt skýrslunum voru það ár taldar á öllu landinu 547 fastar verslanir og voru 26 af þeim sveitarverslanir. í Reykjavík voru taldar 186 verslanir, í Hafnar- firði 13, á ísafirði 27, á Akureyri 46 og á Seyð- ísfirði 19. Af sýslunum var Suður-Múlasýsla hæst; þar voru 45 verslanir og 11 þeirra sveitai- verslanir. Meðal verslananna voru 16 heild- og umboðsverslanir, allar í Reykjavík nema 1 (á Akureyri). Árin 1865—70 og 1881—1914 var tala fastra verslana þessi: Hauptúra- verslanir Sveitar- verslanir Samtals 1865-1870 meðaltal 63 » 63 1881-1890 — 103 2 105 1891-1900 — 170 17 187 1901-1905 — 273 27 300 1906-1910 — 416 31 447 1911 423 23 446 1912 465 23 488 1913 514 24 538 1914 521 26 547 Langmest hefur verslununum fjölgað á árun- um 1901 —1910; er meðaltal fyrir þau tíu árin helmingi öærra en meðaltalið fyrir 1891—1900. I skýrslunum er greint milli innlendra og er- lendra verslana og er þá farið eftir því hvort eigandinn er búsettur hjer á lai.di eða í Danmörku. Sje miðað við kauptúnaverslanir eingöngu (þ. e. ■verslanir í kaupstöðum og verslunar-tnðum) þá voru á árunum 1865—1870 56°/0 af þeim er- lendar, 1891—1900 24%, 1906—1910 12% og 13 1914 voru aðeins 8% erlendar. Mestan hluta tímabilsins hefur tala erlendra versla.ianna verið . 40—50, en fjölgunin öll verið meðal i.nnlóndú; verslananna. Alþingi 1917. Þingið hófst 2. júlí og stóð til 17. septem- ber. Stjórnin lagði 24 frumvörp fyrir þing- ið og voru 21 af þeim afgreidd sem lög, 2 frv. voru feld og 1 varð ekki útrætt. Frá einstökum þingmönnum eða þing- nefndum komu fram 113 frumvörp og voru 46 af þeim afgreidd sem lög, 33 . voru feld, 9 vísað til landsstjórnarinnar, 8 tekin aftur og 17 frumvörp urðu ekki útrædd. Alls komu því fram á þing- inu 137 frv., en af þeim voru aðeins 67 afgreidd sem lög (21 stjórnarfrv. og 46 þingmannafrv.). Ennfremur komu fram 35 þingsályktunartillögur og voru 20 af þeim afgreiddar til landsstjórnarinnar, en 3 voru um skipun nefnda; 12 þingsályktunartil- lögur náðu eigi fram að ganga. Loks komu fram 5 fyrirspurnir og 23 rökstudd- ar dagskrár, en 4 þeirra voru feldar. I fjárlögunum fyrir árin 1918 og 1919 er gert ráð fyrir að tekjur landsins verði alls á fjárhagstímabilinu 4763750 kr. Áætl- að er að skattar og tollar nemi 4,3 milj. kr. Er kaffi og sykurtollurinn áætlaður 95U þús kr., vörutollurinn 575 þús. kr., tóbakstollurinn 550 þús. kr., áfengistollur1) 100 þús. kr. og annað aðílutningsgjald einnig 100 þús. kr. Af öðrum einstökum tekjugreinum eru símatekjurnar mestar, áætl- aðar 660 þús. kr. og þar næst pósttekjurnar áætlaðar 360 þús. kr. Útgjöld landsins eru ■ *) Þar með tollur af óáfengu öli, áfengislausu J yini o. þ. h, 'J

x

Verslunartíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.