Verslunartíðindi - 01.01.1918, Síða 24
Verslunartíðindi
16
flutning og farþega með þeim, eða taka
þau að öllu í sína þjónustu um lengri eða
skemri tíma. Landsstjórnin getur gjört
fyrirskipanir um þau atriði, er þurfa þyk-
ir, viðvíkjandi skipverjum, farþegum og
póstflutningi með skipum, og ákveður brot
gegn þeim fyrirskipunum. Reglugjörð þess
efnis hefir verið gefin út 8. þ. m.
Lög um einkasöluneimild lands-
stjórnarinnar á steinolíu.
1. gr. Landstjórninni veitist heimild til að kaupa
svo mikla steinoliu, er henni þarfa þykir til þess að
birgja landið, og seija hana kaupmönnum, kaupfje-
lögum, sveitafjelögum og öðrum, samkvæmt reglu-
gerð fyrir steinoliuverslnnina, er landsstjórnin setur.
I þessu skyni veitist landsstjórninni og heimild
til að taka það lán, sem á þarf að halda tii inn-
kaupa á olíunni, til áhalda og reksturs.
2. gr. Þegar landsstjórnin hefur tekið að sjer
aðflutninga á steinoliu samkvæmt 1. gr., er engum
öðrum leyfilegt að flytja hingað til lands steinolíu
en landsstjórninni, nema með sjerstöku leyfi heunar.
8. gr. A hvert steinoliufat (150 kg), sem lands-
stjórnin selur hjer & landi, skal leggja 4 kr. gjald,
er renni að hálfu i landssjóð, en að hálfu i veltu-
fjár- og varasjóð steinolíuverslunarinnar.
Að öðru leyti skal selja oliuna fyrir það verð, er
liðlega svarar innkaupsverði og öllum kosuaði.
Þegar versluninni hefur safnast svo mikið veltu-
fje, að nægi til að reka með verslunina skuldiaust,
fellur gjald það, er ræður um í 1. málsgr. þessarar
gr., að öllu leyti i landssjóð. Hvers árs arður, sem
til kann að falla umfram hið ákveðna 4 kr. gjald,
leggist í veltufjár- og varasjóð verslunarinnar, enda
’her hann og það tap, sem verslunin kann að verða
, fyrir.
4. gr. Landsstjórnin má þá fyrst nota þessa
heimild, er hún hefur fengið banka- eða handveðs-
tryggingu, er hún álítur fullnægjandi fyrir því, að
áreiðanleg verslunarhús selji landinu nægar birgðir
af steinolíu fyrir eigi hærra verð en alment stórkaupa*
markaðsverð er á hverjum tíma á þeim stað, sem
olian er keypt, og segi slikum samningi eigi upp
með minna en 1 árs fyrirvara.
5. gr. Landsstjórnin skipar vel hæfan mann, er
; hafi forstöðu steinolíuverslunarinnar og alla reiknings-
fræðsluna á hendi. Landsstjómin velúr 2 verslunar-
fróða endurskoðunarmenn til að rannsaka alla reikn-
inga og hækur verslunarinnar, og skal sú endurskoð-
un fara fram árlega eftir hendinni, og eigi sjaldnar
en eftir hverja 8 mánuði. Landsstjórnin ákveður
laun forstöðumannsins og endurskoðenda
6. gr. 1 reglugerð þeirri, er getur um í 1. gr.,
kveður landsstjórnin á um, hvernig fara skuli um
steinoliubirgðir þær, sem fjelög eða einstakir menn
kunna að eiga óseldar, þegar lög þessi koma til fram-
kvæmda, hvort leyft skuli að selja þær, eða hvort
þær skuli teknar eignarnámi til handa landssjóði.
7. gr. Brot gegn 2. gr. laga þessara varða sekt-
um alt að 100000 kr., og skal ólöglega innflutt stein-
olía upptæk og andvirðið renna i landssjóð. Með
brot gegn lögum þessum skal farið sem með almenn
lögreglumál. *
8. gr. Um leið og verslun landsins með steinolíu
byrjar, fellur niður vörutollur sá á steinolíu, sem
ákveðið er i lögum nr. 30. 22. okt. 1912, um vöru-
toll.
Með lögum þessum eru úr gildi numin lög nr. 32,
22. okt. 1912, um einkasöluheimild landsstjórnarinnar
á steinolíu.
Lög um samþyktir um lokunar-
tíma sölubúða í kaupstöðum.
1. gr. I kaupstöðum gete bæjarstjórnir gert sam*
þyktir um lokunartima sölubúða.
2. gr. I samþyktum má kveða á um það, að kaup
og sala megi eigi fara fram i sölubúðum kaupmanna
tiltekinn tima á sólarhring hverjum, eða tiltekna
daga, eftir þvi sem til hagar á hverjum stað, »vo og
að kaupmenn skuli skyldir að loka sölubúðum sín-
um á tilteknum tíma.
Setja má og i samþykt samskonar ákvæði um
kaup og sölu utan söiubúða, er fram fer á götum
eða torgum á varningi, sem eigi má selja nema sam-
kvæmt verslunarleyfi.
3. gr. Nú hefur bæjarstjórn gert samþykt sam-
kvæmt 1. gr., og skal hún þá senda frumvarpið
stjórnarráðinu til staðfestingar.
Nú virðist stjórnarráðinu ákvæði í samþykt ganga
of nærri rjetti manna eða atvinnufrelsi. eða brjóta
bág við almennar grundvallarreglur laga, og synjar
Íað þá samþykt, staðfestingar, en tilkynna skal það
æjarstjórn ástæður fyrir synjun sinni. Að öðrum
kosti staðfestir stjórnarráðið samþyktina og ákveður,
hve nær hún skuli koma til framkvæmdar.
Samþykt heldur gildi sínu 10 ár í senn, nema
breytt sje eða afnumin áður, en endurnýia má hana,
á Sama hátt og hún var sett, jafnlangan tíma.
Samþyktir samkvæmt lögum þessum skal birta i
B-deild Stjórnartiðindanna.
ísafoldarprentsmiðja 1918.