Verslunartíðindi - 01.08.1930, Blaðsíða 11
VERSLUNARTIÐINDI
69
Atvinnuleysið í Amerku.
Atvinnuleysið var mjög mikið í Amer-
íku síðastliðinn vetur. Eftir kauphallar-
hrunið í október voru ýmsar nefndir
skipaðar til þess að ráða bót á þessu.
Framleiðslunni átti að reyna að halda
í sama horfinu, og yfirhöfuð var mikið
um það talað, að leggja mikið í sölurn-
ar, bæði af hálfu þess opinbera og frá
einstaklingum.
En eigi leið á löngu áður en það kom
í ljós, að erfitt myndi og jafnvel ógjör-
legt, að koma þessum ráðagerðum í
framkvæmd. Að vísu er ekki hægt að
segja um með vissu, hve atvinnuleysi er
mikið í Ameríku, en gjört hefir verið
ráð fyrir, að þar myndu ekki vera færri
en 7—8 miljónir manna atvinnulausir.
1 einstaka borgum hefir þetta verið
rannsakað. í Boston var til dæmis í
aprílmánuði s. 1. 40 þús. atvinnulausir) af
400 þús. uppkomnum íbúum. Bendir
þessi tala á það, að hjer sje mikil al-
vara á ferðinni, og má geta þess til sam-
anburðar, að í Þýskalandi eru atvinnu-
lausir ekki taldir nema 5%, og er á-
standið þar þó talið alvarlegast í Norð-
urálfunni. 1 Cincinnati voru ca. 17 þús.
atvinnulausir af 1/2 miljón íbúum, og í
Chigaco er talið, að atvinnuleysi hafi
aldrei verið meira en nú síðan 1914.
Besta sönnun þess, að hjer sje með
rjett farið, er það, að iðnaðarmenn í
bæjunum eru farnir að snúa sjer að
landbúnaðarvinnu. 1. apríl 1930 getur
,,Bureau oíf Agricultural Economics"
þess, að framboð eftir landbúnaðar-
vinnu hafi verið mun meiri en eftir-
spurnin, í norðurríkjunum til dæmis
13% og í vesturríkjunum 21%. Síðan
1923 hefir kaupið þó ekki verið jafn
lágt og nú; sumsstaðar í suðurríkjunum
ekki nema 34 doll. á mánuði.
Formaður American Federation of
Labour skýrði svo nýlega frá, að at-
vinnuleysistalan hefði stöðugt farið
hækkandi síðan í ágúst í fyrra, og ekki
útlit fyrir að þetta færi nokkuð batn-
andi. En þrátt fyrir þetta er þó enginn
áhugi fyrir atvinnuleysistryggingum,
jafnvel þó ýmsir þjóðmegunarfræðingar
telji þá leið heppilega. Eru Ameríku-
menn hræddir um, að það muni hafa
skaðleg áhrif á atvinnulífið, ef þær
tryggingar verða almennar. Aftur á
móti ræða menn þar ýmsar aðrar til-
lögur með áhuga, svo sem 5 tíma vinnu-
dag, að nota afgang af síðasta árs tekj-
um til þess að styðja þessa árs fram-
leiðslu, að mynda atvinnuleysissjóð og
margt fleira. En alt þetta hefir orðið að
litlu liði, því eins og áður hefir verið
frá skýrt, fer atvinnuleysið vaxandi, og
horfurnar alt annað en glæsilegar í
þessa átt.
(Úr Tidskrift for Industri).
Tollbreytingar.
Frá utanríkisráðuneytinu hefur kom-
ið tilkynning um það, að aðflutnings-
gjald á ísh ull hækki í Bandaríkjunum
eftir nýju toll-lögunum frá 17. júní þ.
á., og má sjá breytinguna á eftirfar-
andi tölum:
Tolllögin Tolllögin
frá 1922 frá 1930
Ull in the grease or washed
pr. Ibs. 12 cts.—18 cts. 24 cts.
— scoured — — 24 — 27 —
— on the skin — — 11 — 22 —
— sorted — — 25 —