Fréttablaðið - 17.09.2018, Blaðsíða 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
UMBOÐSAÐILI FIAT Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
TILBOÐSVERÐ FRÁ: 1.790.000 KR. – LISTAVERÐ FRÁ: 2.390.000 KR.
TRYGGÐU ÞÉR NÝJAN OG GLÆSILEGAN FIAT 500 MEÐ 5 ÁRA ÁBYRGÐÁRA5ÁBYRGÐ
FIAT 500 - FRÁBÆRT TILBOÐSVERÐ!
AÐEINS 10 BÍLAR Á ÞESSU
EINSTAKA VERÐI FRÁ
1.790.000 KR.
fiat.is
SKATTAMÁL Breytingar verða gerðar á
lögum um erfðafjárskatt ef frumvarp
Óla Björns Kárasonar og fleiri þing-
manna Sjálfstæðisflokks verður að
lögum. Lagt er til að erfðafjárskattur
verði þrepaskiptur og skatturinn af
fyrstu 75 milljónum króna af skatt-
stofni dánarbús lækki úr 10 pró-
sentum í fimm. Tíu prósenta skattur
af erfðafé sem nemur meira en 75
milljónum verði áfram innheimtur.
Flutningsmennirnir segja að
nauðsynlegt sé að hafa í huga að
erfðafjárskattur sé tilfærsla fjár-
magns og verðmæta á milli kyn-
slóða. Erfðafé sé þegar skattlagt í
formi tekjuskatta, fjármagnstekju-
skatta og eignarskatta. Þannig segja
þau erfðafjárskatt fela í sér tvískött-
un. – ósk
Leggja til
þrepaskiptan
erfðafjárskatt
Nái frumvarpið að verða
að lögum verður erfðafjár-
skattur sem hér segir:
Af fyrstu
75.000.000 kr.
í skattstofni dánarbús
reiknast 5%
erfðafjárskattur
Af fjárhæð umfram
75.000.000 kr.
í skattstofni dánarbús
reiknast 10%
erfðafjárskattur
Óli Björn Kárason,
þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins.
LÖGGÆSLA Einn af hverjum fjórum
lögreglumönnum telur sig ekki vera
öruggan í starfi. Þetta kemur fram
í ársskýrslu dómsmálaráðherra.
Snorri Magnússon, formaður Félags
lögreglumanna, segir félagið hafa
margoft bent á lausnir til að auka
öryggi lögreglumanna.
Markmið dómsmálaráðuneytis-
ins er að níu af hverjum tíu lög-
reglumönnum telji sig örugga við
skyldustörf. Niðurstaða skoðunar í
fyrra sýni það hins vegar að aðeins
74 prósent lögreglumanna telji sig
vera örugg í starfi. „Þetta er eitthvað
sem þarf að bæta og hangir saman
við það sem við höfum margoft sagt.
Það þarf að fjölga lögreglumönnum.
Við teljum það vera meginskýring-
una á þessu,“ segir Snorri.
Snorri segist margoft hafa, bæði í
ræðu og riti, gert stjórnvöldum grein
fyrir því að þetta sé meginþáttur
í að auka öryggi lögreglumanna.
„Það er morgunljóst að öryggi er
ekki mikið þegar þú þarft kannski
að bíða klukkustundum saman eftir
aðstoð. Það getur svo sannarlega
gerst í dreifðum byggðum landsins.
Það er vinnuumhverfi sem er afar
erfitt fyrir lögreglumenn,“ bætir
Snorri við.
Árið 2012 kannaði lögreglan sjálf
öryggi starfsmanna sinna og segir
Snorri að svipaðar tölur hafi komið
út úr þeirri rannsókn. „Það hefur
lítið breyst í þessum efnum enda
hefur mönnun lögreglunnar ekkert
skánað á öllum þessum tíma. Hins
vegar hefur verkefnum okkar fjölg-
að svo um munar á sama tíma. Við
höfum talað fyrir daufum eyrum
stjórnvalda lengi og virðist engu
skipta hverjir eru við stjórnvölinn
í þeim efnum,“ segir formaður
Landssambands lögreglumanna að
lokum. – sa
Fjórði hver lögreglumaður finnur ekki til öryggis
Snorri
Magnússon,
formaður Lands-
sambands lög-
reglumanna.
ALMANNATRYGGINGAR „Trygginga-
stofnun hefur ekki sinnt upplýs-
ingaskyldu sinni á neinu stigi máls-
ins. Ég kom alls staðar að lokuðum
dyrum eða í besta falli hálfopnum.
Ég væri fyrir löngu komin aftur á
vinnumarkað ef samskiptin við
Tryggingastofnun hefðu verið betri.
Þetta hefur hamlað bata mínum
rosalega mikið,“ segir Jóhanna
Þorsteinsdóttir sem kvartaði til
Umboðsmanns Alþingis vegna
skerðinga á lífeyrisgreiðslum.
Umboðsmaður skilaði nýverið
áliti í máli Jóhönnu þar sem fallist
var á sjónarmið hennar og Öryrkja-
bandalags Íslands sem aðstoðaði
hana við málareksturinn sem tók
tvö ár. Þar sem Jóhanna hafði búið
að hluta til í Danmörku áður en hún
fékk örorkumat árið 2013 átti hún
ekki rétt á fullum bótum.
Til að öðlast fullan rétt þarf við-
komandi að hafa búið í 40 ár á
Íslandi á aldrinum 16 til 67 ára. Sé
um skemmri tíma að ræða ræðst
rétturinn af hlutfalli búsetu ein-
staklings á Íslandi.
Tryggingastofnun reiknaði hlut-
fall búsetu Jóhönnu á Íslandi rúm
47 prósent sem þýddi að hún átti
aðeins rétt á því hlutfalli af örorku-
lífeyri og tengdum bótum. Fékkst sú
niðurstaða með því að framreikna
búsetu Jóhönnu til 67 ára aldurs, í
sömu hlutföllum og búsetan var
fram að örorkumati.
Samkvæmt áliti umboðsmanns
er Tryggingastofnun ekki heimilt
að framreikna búsetutíma með
þessum hætti. Í tilfelli Jóhönnu ætti
að reikna öll framtíðarár frá fyrsta
örorkumati fram til 67 ára aldurs til
búsetu á Íslandi.
Eins og fyrr segir fékk Jóhanna
örorkumat árið 2013 en hún var
ósátt við að fá ekki metna örorku
aftur í tímann. Svo fór að hún fékk
það leiðrétt og miðaðist því upp-
haf örorku við árið 2011. Það þýddi
hins vegar að búsetuhlutfall hennar
á Íslandi minnkaði niður í tæp 22
prósent og þar með skertust lífeyris-
greiðslurnar enn frekar.
Eftir það sá Jóhanna sér ekki fært
að búa lengur á Íslandi og flutti
aftur til Danmerkur 2014. Vegna
ólíkra reglna um örorkumat átti hún
engan rétt í Danmörku en tókst að
komast aftur inn á vinnumarkað og
fékk í fyrstu hlutastarf en hún er nú
komin í fullt starf.
„Það er rosalega gott að þetta
mál hafi unnist en ég glími samt
við áfallastreituröskun vegna þessa
máls. Þetta er búið að vera langt ferli
og hefur staðið í rauninni alveg frá
2013.“
Þrátt fyrir álit umboðsmanns
segist Jóhanna ekki vilja flytja aftur
til Íslands. „Ég get alls ekki hugsað
mér að flytja heim. Ég er það niður-
brotin gagnvart heimalandinu að
hafa farið svona með mig meðan ég
gekk í gegnum erfiðleika.“
sighvatur@frettabladid.is
Glímir við áfallastreituröskun
eftir margra ára baráttu við TR
Jóhanna Þorsteinsdóttir segist sátt við niðurstöðu Umboðsmanns Alþingis vegna kvörtunar hennar um
túlkun Tryggingastofnunar á útreikningi búsetuhlutfalls sem hefur áhrif á lífeyrisgreiðslur. Eftir að hafa
fengið miklar skerðingar á lífeyrisgreiðslum flutti hún til Danmerkur og komst aftur á vinnumarkað.
Öryrkjabandalagið hefur lengi mótmælt ýmiss konar skerðingum sem félagsmenn verða fyrir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Ég kom alls staðar
að lokuðum dyrum
eða í besta falli hálfopnum.
Jóhanna Þorsteinsdóttir
1 7 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 M Á N U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
7
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
D
7
-8
E
0
4
2
0
D
7
-8
C
C
8
2
0
D
7
-8
B
8
C
2
0
D
7
-8
A
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
6
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K