Fréttablaðið - 17.09.2018, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 17.09.2018, Blaðsíða 14
Viltu stofna fyrirtæki? Hnitmiðað námskeið um félagaform, skattlagningu fyrirtækja, frádráttarbæran rekstrarkostnað, útgáfu reikninga, ábyrgð stjórnenda fyrirtækja, fjármál o.fl. Námskeiðið skiptist í þrjá hluta og geta þátttakendur val: 1. Morgunnámskeið, kennt þriðjud. 20. sept., 27. sept og 4. okt. kl. 9-12 2. Síðdegisnámskeið, kennt 21. sept., 26. sept. og 3. okt. kl. 16:30-19:30 Námskeiðsstaður er Holtasmári 1, Kópavogi (Hjartverndarhúsið). Fyrirlesari er Anna Linda Bjarnadóttir, héraðsdómslögmaður, LL.M Sjá námskeiðslýsingu á www.lexista.is Nánari upplýsingar og skráning í síma 552 609 á skeiðið skiptist í þrjá hluta og verður kennt þriðjudagana 18. og 25. september og 2. október kl. 16:10 – 19. Námskeiðsstaður er Háskóli Íslands – Oddi, stofa 206, Sturlugötu 3, 101 Reykjavík. Sjá námskeiðslýsingu á www.lexista.is Fyrirlesari: Anna Linda Bjarnadóttir, lögmaður, LL.M Nánari upplýsingar og skráning í síma 894-6090 eða á alb@lexista.is Námskeiðsgjald er 45.000 kr. og greiðist við skráningu. Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til þátttöku á námskeiðinu. Ferðamálaskóli Íslands • www.menntun.is • Sími 567 1466 Opið 8-22 LEIÐSÖGUNÁM FERÐAMÁLASKÓLI ÍSLANDS, Bíldshöfða 18, sími 567 1466, Opið til kl. 22.00, Martha Jensdóttir kennari. Martha Jensdóttir kennari. Ferða álaskóli Íslands • www. enntun.is • Sí i 567 1466 pið 8-22 I FERÐAMÁLASKÓLI ÍSLANDS, Bíldshöfða 18, sími 567 1466, Opið til kl. 22.00, Martha Jensdóttir kennari. Martha Jensdóttir kennari. - Nemendur geta að námi loknu gengið í Leiðsögufélagið - LEIÐSÖGUNÁM VIÐURKENNT STARFSNÁM AF ATVINNULÍFINU Opið 8-22 Magnús Jónsson fv. veðurstofustjóri Guðrún Helga Bjarnadóttir, Vestmannaeyjum Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyrir þá sem vilja kynnast Íslandi í máli og myndum. Námið er opið öllum þeim sem áhuga hafa á að læra hvernig standa skal að Leiðsögn erlendra og innlendra ferðamann um Ísland. • Flest stéttarfélög styrkja nemdur til náms. • Nemendur geta að námi loknu gerst félagsmenn í Leiðsögufélaginu. Helstu námsgreinar: • Helstu viðkomustaðir ferðamanna á Íslandi í máli og myndum. • Mannleg samskipti, leiðsögutækni, hestar, fuglar og flóra. Framsaga. • Saga landin, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta. • Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðarverkefni og margt fleira. Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar hver á sínu sviði. Boðið er uppá dag – og kvöldnám, auk þess er farið í fjölda vettvangsferða. Umsögn: Fyrir nokkrum áruð stundaði ég leiðsögunám í Ferðamálaskóla Íslands. Námið stóð vel undir væntingum þar sem fjölmargir kennarar komu að kennslunni og áttu þeir auðvelt með að ná til mín og auka áhuga minn á námsefninu og ekki síst að vekja mig til umhugsunar um þá auðlind sem landið okkar er og virðingu sem okkur ber að sýna í því. Kennararnir voru mjög færir og fróðir hver á sínu sviði og áttu auðvelt með að koma efninu til skila. Námið gefur mikla atvinnumöguleika og spennandi tímar eru framundan. LEIÐSÖGUNÁM VIÐURKENNT STARFSNÁM AF ATVINNULÍFINU Ferðamálaskóli Íslands • ww .menntun.is • Sími 5 elga Bjarnadóttir OPIÐ 8-22 Fólk er kynningarblað sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveg@frettabladid.is s. 512 5351 | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is, s. 512 5368 | Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 512 5347 | Sigríður Inga Sigurðar- dóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 512 5442, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429, Klifið er skapandi setur sem býður upp á fjölbreytt úrval námskeiða fyrir bæði börn og fullorðna,“ segir Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir, verkefnastjóri Klifsins. „Klifið var stofnað til að bjóða upp á námskeið í hinum ýmsu greinum sem var lítið boðið upp á annars staðar. Við höfum reynt að finna hvar glufurnar eru og bjóða upp á það sem vantar, frekar en að fylgja meginstraumnum. Hver önn er ólík þeirri síðustu. Við höfum til dæmis verið með námskeið í kassabílagerð, vík- ingasmiðjur, dansnámskeið fyrir unga stráka, vísindanámskeið og tónlistarkennslu en lengi væri hægt að telja upp námskeiðin sem Klifið hefur boðið upp á. Við höfum fengið mikið af krökkum til okkar í einkakennslu í tónlist sem eru á biðlistum hjá tónlistarskólum,“ segir Guðrún. „Þá koma þau til okkar í nokkurs konar undirbúning sem gerir þau tilbúnari fyrir frekara tónlistarnám. Við lítum á það sem frábæran hlut þegar þau komast inn í tónlistarskólana og fara frá okkur. Við höfum svo líka verið með alls kyns líkamsræktarnámskeið, líkt og Aqua Zumba, Zumba-leikfimi sem kennd er í vatni. Það hefur verið fullt í það síðustu námskeið og biðlisti á hverri önn,“ segir Guðrún. „Hópurinn í kringum námskeiðið er orðinn rosalega sterkur enda frá- bærar konur þar á ferð.“ Það er einnig góður hópur í kringum badmintonið hjá okkur en við bjóðum upp á leigu á bad- mintonvöllum, þar geta svo hópar Eyrún Birna Jónsdóttir er kjólaklæðskeri og kennir tvö námskeið hjá Klifinu. Hjá Klifinu er meðal annars boðið upp á námskeið í tónlist, dansi, vísindum, líkamsrækt, fermingarkjólagerð og ýmsu öðru. MYNDIR/ANTON BRINK Fitness fjör er líkamsræktar­ námskeið fyrir unglinga á aldrinum 14­17 ára og er sérstaklega hugsað fyrir þá sem hafa síður áhuga á vinsælustu íþróttunum en vilja samt fá hreyfingu. Framhald af forsíðu ➛ komið og spilað á sínum eigin hraða,“ segir Guðrún. „Mikið af vinahópum og fjölskyldum koma og leigja völl hjá okkur. Við erum til húsa í Garðabæ og það hefur borið svolítið á þeim misskilningi að við séum bara fyrir Garðbæinga, en það er ekki svo. Það geta allir komið hingað,“ segir Guð- rún. „Við leggjum þó áherslu á að hafa námskeið í til dæmis myndlist fyrir alla aldurshópa hjá okkur svo börnin og Garðbæingar almennt geti sótt þess konar námskeið í sínu nærumhverfi.“ Fermingarkjólagerð með fagmanni „Eyrún Birna Jónsdóttir kennir tvö námskeið hjá okkur núna á haust- önn. Hún Eyrún er ótrúlega flink í sínu fagi, en hún er kjólaklæðskeri sem saumar meðal annars brúðar- kjóla og hefur verið að gera það gott í þeim geira undanfarin ár,“ segir Guðrún. „Okkur fannst frábær hug- mynd að setja saman námskeið þar sem stelpur gætu komið og saumað sér sinn eigin fermingarkjól. Nám- skeiðið er að sjálfsögðu líka opið fyrir stráka ef þeir vilja taka þátt. Það verða nokkur snið í boði, sem hver getur útfært eftir eigin höfði með aðstoð Eyrúnar. Öll verkfæri verða á staðnum en þátt- takendur koma sjálfir með efni, en hægt er að hugsa út fyrir rammann þar og koma með gamlar blúndur, eitthvað persónulegt eða kaupa eitthvert skemmtilega öðruvísi efni,“ segir Guðrún. „Við hugsuðum mikið um að hafa efnið innifalið, en á endanum ákváðum við frekar að hjálpa þeim að velja efni og jafnvel aðstoða þau við kaupin.“ Námskeiðið fer fram í Sjálands- skóla og hefst 26. september. Verðið er 38.400 krónur. Eflandi líkamsrækt fyrir unglinga „Eyrún er svo ótrúlega fjölhæf að hún er einnig að kenna annað nám- skeið hjá okkur, sem heitir Fitness fjör og er í boði fyrir 14-17 ára. Þar vorum við líka að reyna að fylla upp í ákveðna glufu,“ segir Guðrún. „Það er boðið upp á mikið af alls kyns dansnámskeiðum á höfuð- borgarsvæðinu en hérna vildum við einblína á hreyfinguna. Þó má einn- ig nefna að við erum með frábært leiklistar- og dansnámskeið sem Júlí Heiðar Hannesson kennir þar sem lögð er meiri áhersla á dans, á sama tíma og kenndur er spuni og ýmsar skemmtilegar leiklistaræfingar. En Fitness fjör er líkamsræktar- námskeið fyrir unglinga á aldrinum 14-17 ára og er sérstaklega hugsað fyrir þá sem hafa síður áhuga á vinsælustu íþróttunum en vilja samt fá hreyfingu, sem er náttúru- lega nauðsynleg fyrir alla,“ segir Guðrún. „Vinsælli íþróttagreinarnar og námskeiðin henta ekki öllum og við viljum ekki að áhugaleysi á þeim verði til að unglingar missi af því að hreyfa sig. Við viljum hvetja sem flesta til að koma og hreyfa sig með okkur. Þetta námskeið á að vera eflandi fyrir hvern og einn og hjálpa þátttakendum að styrkja sig og fá góða hreyfingu og líkamsrækt á sínum eigin hraða og eftir eigin hentisemi,“ segir Guðrún. „Þetta er lítill hópur og það skiptir engu hvað fólk hefur mikla reynslu af hreyfingu. Það þarf ekki að fylgja einhverri fastri forskrift eða hafa neinar áhyggjur af samanburði við hina.“ Fitness fjör hefst 25. september og fer fram tvisvar í viku. Verðið er 38.400 kr. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 7 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 M Á N U DAG U R 1 7 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 D 7 -8 4 2 4 2 0 D 7 -8 2 E 8 2 0 D 7 -8 1 A C 2 0 D 7 -8 0 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 1 6 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.