Morgunblaðið - 05.06.2018, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2018
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk
gæða heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
16 læknar sem
menntaðir eru í
13 sérgreinum
hafa fengið synj-
un á ramma-
samningi við
Sjúkratrygging-
ar Íslands. Þetta
segir Þórarinn
Guðnason, for-
maður Lækna-
félags Reykja-
víkur. Hann segir ástandið
alvarlegt, enda sé skortur á læknum
í ýmsum sérgreinum, m.a. gigtlækn-
ingum, hjartalækningum og tauga-
lækningum. Eins og áður hefur
komið fram telur Þórarinn að heil-
brigðisyfirvöld hafi margbrotið
rammasamning um sérfræðilækn-
ingar með því að loka á nýja lækna.
Með því sé verið að brjóta niður það
kerfi sem læknar í einkarekstri og
félagasamtök hafa byggt upp síð-
ustu áratugi.
Þórarinn segir að staðan sem upp
er komin sé grafalvarleg, enda hafi
16 læknum nú þegar verið meinaður
aðgangur að rammasamningnum.
„Þessi samningur rennur út fljót-
lega og það er búið að brjóta hann
ítrekað. Það verður auðvitað til þess
að sjúklingarnir fá ekki þjónustu,“
segir Þórarinn. veronika@mbl.is
Staða sérfræði-
lækna alvarleg
Þórarinn
Guðnason
Skortur á læknum í sérgreinum
Vegna malbikunarframkvæmda í Reykjavík
myndaðist talsverð stífla á Miklubraut í gær,
sérstaklega á háannatíma. Ljósmyndari
Morgunblaðsins festi á filmu umferðarteppu við
gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar síð-
degis.
120 metra langur kafli á Miklubraut við gatna-
mót Kringlumýrarbrautar var malbikaður í gær
og var Miklabraut þrengd í eina akrein meðan á
framkvæmdunum stóð.
Einnig var ein akrein malbikuð á Miklubraut
frá brúnni yfir Skeiðarvog að brúnni yfir
Reykjanesbraut og þrengt um tvær akreinar á
meðan. Þá var beygjuakrein frá Miklubraut yfir
á Kringlumýrarbraut fræst og malbikuð og gert
við malbik við Ánanaust.
Talsverðar tafir í umferðinni í Reykjavík í gær
Morgunblaðið/Valli
Bíll við bíl vegna malbikunar
„Viðræður ganga vel og mér finnst okkur miða vel
áfram,“ segir Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti
Viðreisnar í Reykjavík, um viðræður Viðreisnar,
Samfylkingar, VG og Pírata um myndum meiri-
hluta í borginni. Í gær voru velferðarmál rædd auk
þjónustu- og lýðræðis-
mála, en fram undan eru
viðræður um menntamál.
Þórdís segir að enn
hafi enginn stórvægi-
legur málefnaágrein-
ingur komið upp á milli
flokkanna en þó sé
áherslumunur í
ákveðnum málum. „Það
hefur ekki komið upp
neinn sérstakur ágrein-
ingur ennþá. Við erum að
fara yfir málaflokkana
hvern á fætur öðrum, en
það eru auðvitað mis-
munandi leiðir og aðferð-
ir sem flokkarnir vilja
fara eftir,“ segir Þórdís,
sem telur ekki tímabært
að gefa út hvenær viðræðunum ljúki. „Við erum
ekkert búin að áætla það en það er mjög góður
gangur í þessu. Þetta snýst fyrst og fremst um að
vinna þetta rétt og örugglega,“ segir Þórdís, sem
kveðst bjartsýn á framhald viðræðnanna.
Spurð hvaða málaflokkar hafi nú þegar verið
ræddir segist Þórdís ekki vilja gefa það upp. „Það
er algjört trúnaðarmál hvernig við vinnum þetta
þó að við höfum gefið út dagskrá gærdagsins. Ég
hef áður sagt að við ætlum okkur að vanda til
verka og gera þetta vel. Öll okkar einbeiting er á
því,“ segir Þórdís.
Líkt og áður hefur komið fram hafa engar við-
ræður átt sér stað milli flokkanna um hvaða flokk-
ur hreppir borgarstjórastólinn. Þórdís segir að það
sé óbreytt og viðræður um það muni ekki eiga sér
stað fyrr en sátt hefur náðst um málefnin.
aronthordur@mbl.is
Miðar vel
í viðræðum
í borginni
Enginn stórvægilegur
málefnalegur ágreiningur
Morgunblaðið/Hari
Viðræður Forsvarsmenn flokkanna fjögurra hitt-
ust í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti í gær.
Málefnin rædd
» Forsvarsmenn
flokkanna fund-
uðu í Fjölbrauta-
skólanum í Breið-
holti milli klukkan
9 og 16 í gær.
» Samhljómur á
milli flokkanna
» Borgarstjóra-
stóllinn ræddur
þegar sátt hefur
náðst um málefni
Meirihluti velferðarnefndar Alþing-
is leggur til að frumvarp um raf-
rettur og áfyllingar fyrir þær verði
samþykkt með nokkrum breyt-
ingum. Frumvarpinu er ætlað að
setja skýrar reglur um sölu, mark-
aðssetningu og notkun á rafrettum
auk þess sem í því eru ákvæði um
eftirlit með innflutningi, dreifingu
og sölu.
Mikill áhugi virðist vera á málinu
og margir láta sig það varða. Þann-
ig gengu 17 einstaklingar á fund
velferðarnefndar þegar rætt var
um frumvarpið og alls bárust henni
69 umsagnir um það.
Meðal þeirra breytinga sem
nefndin leggur til er að hluti sölu-
andvirðis rafrettna renni í lýð-
heilsusjóð og rafrettur verði bann-
aðar á veitinga- og skemmtistöðum.
Þá verði bragðefni sem höfða sér-
staklega til barna og unglinga
bönnuð.
Fengu 69
umsagnir
um rafrettur
Verði bannaðar
á skemmtistöðum
„Það er útlit fyrir að veðrið verði gott
í dag og á morgun. Það fer hins vegar
að færast í aðra átt á fimmtudaginn
og svo spáum við úrkomu á laugar-
dag,“ segir Daníel Þorláksson, veður-
fræðingur á Veðurstofu Íslands, um
veðurhorfur næstu daga.
Áfram er gert ráð fyrir góðu veðri í
dag og á morgun, en hitatölur verða í
kringum 10-12 gráður. Hæst verður
hitastigið á Egilsstöðum í dag en þar
er ráðgert að hitinn nái allt að 17
gráðum. „Í heild er spáin nokkuð góð
og milt veður í kortunum um allt land
fram eftir vikunni,“ segir Daníel.
aronthordur@mbl.is
Útlit fyrir gott
veður í dag
og á morgun
Í Fossvogi Stúlkur tína blóm.
Morgunblaðið/Hari
„Ég fór yfir stöðuna með bæjar-
fulltrúum Sjálfstæðisflokks í gær,“
segir Ármann Kr. Ólafsson, bæjar-
stjóri í Kópavogi, um myndun
meirihluta í Kópavogi.
Eins og áður hefur komið fram
hafa nokkrir bæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokks lýst yfir efasemdum
um áframhaldandi samstarfi við BF
Viðreisn. Nú er talið líklegast að
flokkurinn fari í meirihluta-
samstarf með Framsóknarflokki.
Ármann segist lítið geta gefið upp
að svo stöddu en línur eigi að skýr-
ast síðar í dag. „Mér finnst líklegt
að það komist einhver hreyfing á
málið í dag. Við nýttum gærdaginn
í að ræða málin, þannig að það ætti
eitthvað að gerast í dag,“ segir Ár-
mann, sem kveðst hafa verið
ánægður með samstarf flokksins
við BF Viðreisn á síðasta kjör-
tímabili. Þá telji hann að almenn
ánægja hafi ríkt með störf meiri-
hlutans. aronthordur@mbl.is
Fregna að vænta úr
Kópavogi í dag