Morgunblaðið - 05.06.2018, Síða 10
Kæran hafi
komið á óvart
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Eva Sigurbjörnsdóttir, oddviti Ár-
neshrepps, segir að kæra til sýslu-
mannsins á Vestfjörðum vegna gildis
kjörskrár í hreppsnefndarkosning-
unum í Árneshreppi á Ströndum hafi
komið sér á óvart.
„Ég frétti fyrst af þessari kæru í
morgun,“ sagði Eva í samtali við
Morgunblaðið í gær, „og ég viður-
kenni það alveg, að kæran kom mér
verulega á óvart. Persónulega sé ég
engan flöt á því að kosningin í Árnes-
hreppi hafi verið ólögmæt.“
Vilji meirihluta íbúa skýr
Eva kveðst hafa gert sér vonir um
að deilum vegna fyrirhugaðrar Hval-
árvirkjunar væri lokið, með afger-
andi niðurstöðum í hreppsnefndar-
kosningunum. Skýr vilji meirihluta
íbúa í Árneshreppi fyrir virkjun
Hvalár hafi komið fram í niðurstöð-
um kosninganna.
„Ég ætla ekki að tjá mig efnislega
um þessa kæru, heldur mun ég bíða
þess hver verður niðurstaða þeirra
þriggja lögmanna, sem sýslumaður-
inn, Jónas Guðmundsson, hefur
skipað til að taka afstöðu til kærunn-
ar og úrskurða í þessu máli,“ sagði
Eva.
Eva sagði að hún hefði ekki lesið
kæruna. Hún væri ekki lögfræðing-
ur að mennt og hún myndi bara bíða
niðurstöðu lögfræðinganefndarinnar
áður en hún myndi tjá sig efnislega
um málið.
Telur kosninguna hafa verið löglega
Morgunblaðið/Golli
Náttúrufegurð Náttúrufegurðin í
Ársneshreppi á Ströndum er mikil.
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2018
TE
N
G
IT
A
U
G
A
R Fallvarnarbúnaður
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Fjölbreytt og gott úrval til á lager
Námskeið um fallvarnir fyrir viðskiptavini
Skoðanir og eftirlit á fallvarnarbúnaði
FA
LLB
LA
K
K
IR
BELTI
Nína Guðrún Geirsdóttir
ninag@mbl.is
Náttúruperlan og ættaróðalið Vig-
ur í Ísafjarðardjúpi er til sölu. Salv-
ar Baldursson, bóndi og annar íbúa
eyjarinnar, er alinn þar upp og hef-
ur haft þar búsetu nær alla sína tíð.
„Við erum fjórði ættliðurinn hérna
en við konan mín, Hugrún Magnús-
dóttir, erum búin að vera í Vigur
frá 1980.“ Á þeim tíma hafa þau
haft búsetu í eynni allan ársins
hring og siglt í kaupstað eftir þörf-
um. „Þetta hefur verið starfstöðin
okkar, þessi eyja, í hartnær 40 ár.“
Eyjan sögufræga er ein þriggja
eyja á Ísafjarðardjúpi og liggur úti
fyrir mynni Skötufjarðar og Hest-
fjarðar. Næsti kaupstaður er Ísa-
fjörður en þangað er hálftíma sigl-
ing. Í Vigur var áður fyrr stund-
aður heilsársbúskapur en nú eru
þar engar kýr lengur. Þar eru þó
enn nýtt hlunnindi, þ.e. æðarvarp,
fuglatekja og einhver fjárbú-
skapur. Ein helsta tekjulind eyj-
arinnar í dag er ferðaþjónusta. Yfir
sumarið heimsækir mikill fjöldi
ferðamanna eyjuna og þjónusta
þau hjónin allt að tíu þúsund gesti á
sumri. Þar er í aðalhlutverki lund-
inn sem margir ferðamenn sækjast
í. „Maður verður að vera fullfrískur
til að stunda þennan fjölbreytta bú-
skap á svona stað, þetta er bæði
mikil vinna í landi og svo þvælingur
á sjó.“
Réttur tímapunktur
Spurður um aðdraganda þess-
arar ákvörðunar segir Salvar þetta
einfaldlega rétti tímapunktinn.
„Við erum að eldast og verðum ekki
eilíf. Við viljum gera þetta núna
meðan maður er fullfrískur og
labbar frá þessu.“ Nokkrir eig-
endur eru að Vigur og þar á meðal
ættingjar Salvars. Þá hafi afkom-
endur þeirra hjóna ekki hug á að
taka við búskapnum og því enginn
til að halda honum áfram. „Við tök-
um þessa ákvörðun núna en svo má
vera að maður sjái eftir einhverju,
en það er eins og það er“.
Salvar segist eiga von á breyt-
ingum í lífi sínu við að yfirgefa
eyjalífið. „Þetta verður öðruvísi líf
hjá manni, þetta er mjög bindandi
vinna. Við vitum til dæmis ekki
hvernig er að fara í sumarfrí á
sumrin,“ segir hann.
Heilmikil tækifæri
Salvar segist vona að áhugasamir
skoði eyjuna með opnum hug. „Það
eru heilmikil tækifæri í þessari
eyju, við höfum verið að þessu í 40
ár og þá er maður ekki jafn nýj-
ungagjarn og áður en það má vera
að aðrir sjái ný tækifæri. Annars er
þetta líka afskaplega góður staður
til að búa á að mörgu leyti.“ Að-
spurður hvað tekur við segir Salvar
framtíðna óráðna. „Ætli við flytjum
ekki eitthvað í land allavega, erum
ekki komin lengra en það.“
„Afskaplega góður staður“
Ábúendur í Vigur hafa ákveðið að selja eyjuna eftir fjögurra kynslóða búsetu
Ljósmynd/Úr eigu Salvars Baldurssonar
Tímamót Vigurbóndinn Salvar hyggst flytja í land, en hann og aðrir eigendur hafa sett eyjuna á sölu. Hann og kona
hans hafa búið þar í 38 ár. Ein helsta tekjulind eyjarskeggja síðustu ár hefur verið ferðaþjónusta.
Ljósmynd/Davíð Ólafsson
Náttúruperla Ferðamenn flykkjast í Vigur á sumrin, meðal annars til að
koma auga á lundana sem þar búa. Ekki eru lengur kýr í eynni.
Landhelgisgæslan varar sjófar-
endur við óvenjulegri nálægð hafíss
við Ísland. TF-SIF, flugvél Gæsl-
unnar, hélt í eftirlitsflug í gær til
þess að kanna stöðu hafíss við
landið.
„Leiðangurinn staðfesti að hafís
er óvenju nærri landi. Næst var ís-
inn 12,5 sjómílur norður af Hæla-
víkurbjargi. Leiðangurinn staðfesti
gervitunglamyndir og ískort frá
dönsku veðurstofunni sem hafa gefið
slíkt til kynna,“ sagði í tilkynningu
frá Landhelgisgæslunni í gær.
Ljósmynd/Gísli Gíslason
Borgarísjaki Myndin tengist frétt-
inni ekki með beinum hætti.
Varað
við hafís
Héraðssaksókn-
ari hefur ákært
karlmann um þrí-
tugt, sem er frá
Venesúela, fyrir
stórfellt fíkni-
efnalagabrot.
Maðurinn flutti
um eitt kíló af
kókaíni innvortis
frá borginni Zü-
rich í Sviss hing-
að til lands í febrúar síðastliðnum.
Efnið var með 84% styrkleika.
Þess er krafist að ákærði verði
dæmdur til refsingar og greiðslu
sakarkostnaðar. Brot af þessu tagi
varðar allt að 12 ára fangelsi.
Ákærður fyrir að
smygla kílói af
kókaíni innvortis
Kókaín Maðurinn
flutti efnið hingað.