Morgunblaðið - 05.06.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2018
Íslenskar getraun-
ir hafa lækkað
verð á getrauna-
röðinni úr 13 kr. í
12 kr. Lækkunin
tekur gildi strax
og er gerð með
samþykki innanríkisráðuneytisins.
Ástæða lækkunarinnar er sú að Ís-
lenskar getraunir eru í samstarfi við
Sænsku getraunirnar – Svenska
Spel – og kostar hver röð eina
sænska krónu. Íslenskar getraunir
selja röðina á svipuðu verði og Svíar
þar sem vinningsupphæðir eru
reiknaðar í sænskum krónum. Gengi
sænsku krónunnar hefur lækkað
undanfarið gagnvart íslenskri krónu
og því er ráðist í þessa lækkun.
Getraunaröðin
lækkar í verði
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Hækkun fasteignamats gæti gert
íbúðareigendum kleift að endur-
fjármagna lán á hagstæðari kjör-
um. Áætlað verð-
mæti eignanna,
samkvæmt fast-
eignamati, hefur
enda aukist.
Þetta segir
Elvar Orri
Hreinsson, hag-
fræðingur hjá
Íslandsbanka.
Nýtt fast-
eignamat var
kynnt sl. föstu-
dag. Samanlagt mat íbúða á öllu
landinu hækkar um 12,7% milli ára
og verður 5.727 milljarðar kr.
Elvar Orri bendir á að fjármögn-
un taki mið af fasteignamati.
„Bankarnir lána í flestum tilfell-
um upp að 70% af fasteignamatinu
í hagstæðari íbúðalánsfjármögnun
sem er kölluð a-fjármögnun. Við-
bótarfjármögnun er svo á lakari
kjörum. Það miðast allt við fast-
eignamatið. Þannig að nú þegar
fasteignamatið hefur hækkað tals-
vert gefst einhverjum tækifæri til
að endurfjármagna skuldir sem
eru á lakari kjörum og fjármagna
þá stærri hluta lánsins með a-láni,“
segir Elvar Orri.
Plúsar og mínusar
Elvar segir slíka heildarfjár-
mögnun með a-láni geta verið hag-
fellda fyrir neytendur. Á móti komi
hærri fasteignagjöld. „Hagfelldari
fjármögnun gæti aukið eftirspurn
eftir lántöku sem eykur þá eftir-
spurn eftir íbúðarhúsnæði,“ segir
Elvar Orri sem telur aðspurður að
þeir hópar sem skulda mest á
íbúðamarkaði muni hagnast mest á
slíkri endurfjármögnun. Þeir séu
enda líklegastir til að vera með
stærstan hluta af sínum lánum í
óhagfelldri b-fjármögnun.
„Ég myndi ætla, án þess að hafa
tölfræði yfir það, að þetta væru
annars vegar aðilar í yngri kant-
inum, sem hafa nýlega komið inn á
íbúðamarkaðinn, og hins vegar að-
ilar sem eru að reyna að komast
inn á markaðinn og fyrirséð er að
verði talsvert skuldsettir. Þessir
hópar hafa svolítið misst af eigin-
fjáraukningunni sem íbúðareig-
endur hafa notið á undanförnum
árum samhliða miklum hækkunum
á íbúðaverði,“ segir Elvar Orri.
Skorturinn knýr hækkanir
Sem áður segir hækkar fast-
eignamat íbúða um tæp 13% milli
ára. Elvar Orri segir aðspurður
mikinn mun á íbúðamarkaði nú og
á árunum fyrir efnahagshrunið.
„Skuldsetningin núna er ekkert
í líkingu við skuldsetninguna fyrir
hrun þegar íbúðaverðshækkanir
voru að miklu leyti drifnar áfram
af aukinni skuldsetningu. Að
þessu sinni hafa íbúðaverðs-
hækkanir í ríkari mæli verið drifn-
ar áfram af launahækkunum og
framboðsskorti íbúða,“ segir Elvar
Orri.
Hærra fasteignamat opni
á hagstæðari íbúðalán
Hagfræðingur segir nýtt mat skapa tækifæri á endurfjármögnun íbúðalána
Morgunblaðið/Ómar
Á uppleið Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði mikið í fyrra. Hægt hefur á hækkunum í ár. Fasteignamatið hækkar milli ára.
Elvar Orri
Hreinsson
3.844
4.234
4.980
5.727
Fasteignamat íbúða
Milljarðar kr.
+390
+746
+747
2016 2017 2018 2019
Heimild: Þjóðskrá Íslands
Þrír bátar á strandveiðum komu með
yfir 10 tonn að landi í maímánuði.
Grímur AK frá Akranesi reri á A-
svæði, sem nær frá Arnarstapa í
Súðavík, og var aflahæstur með rúm-
lega 12 tonn, Birta SU frá Djúpavogi
var með 11,3 tonn og Lundey ÞH frá
Húsavík með rúmlega 10 tonn. Síðar-
nefndu bátarnir tveir róa á C-svæði,
sem nær frá Húsavík til Djúpavogs.
Alls náði 41 strandveiðibátur tólf
veiðidögum í maí, en það er mesti
mögulegi róðrafjöldi í einum mánuði á
fjögurra mánaða strandveiðitímabili.
Í mánuðinum veiddust 1.906 tonn en
2.095 tonn í maí í fyrra og er maíaflinn
nú 18,7% af 10.200 tonna viðmiði
sumarsins.
418 bátar eru byrjaðir á strand-
veiðum, en þeir voru 471 á sama tíma í
fyrra. Flestir eru bátarnir á A-svæði
eða 178, en það er fækkun um 15 frá
síðasta ári. Einnig fækkar bátum á B-
og C-svæðum, en á D-svæði frá Höfn í
Borgarnes hefur bátum fjölgað um
tíu frá síðasta ári og eru þeir nú 104.
Ekki er ólíklegt að bátum á strand-
veiðum fjölgi á næstunni.
Á A-svæði er langmestur meðalafli
í róðri eða 694 kíló, en minnstur á B-
svæði frá Norðurfirði til Grenivíkur
þar sem meðalaflinn er 550 kíló í
róðri. Á C- og D-svæðum er meðal-
aflinn um 525 kíló.
Því var fagnað á heimasíðu Lands-
sambands smábátaeigenda í síðustu
viku að verð á mörkuðum hefði hækk-
að. Í gær var meðalverð fyrir kíló af
óslægðum þorski tæplega 290 krónur.
aij@mbl.is
Hækkun Verð fyrir góðan þorsk
hefur hækkað á fiskmörkuðum.
Þrír með yfir
10 tonn á strand-
veiðum í maí
Mestur meðalafli á A-svæðinu
Sími 555 3100 www.donna.is
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð
og hjartastuðtæki björguðu lífi mínu
Ég lifði af
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Kr. 5.990
Str. S-XXL
Litir: blátt og hvítt
Kvart-galla
leggings