Morgunblaðið - 05.06.2018, Síða 12

Morgunblaðið - 05.06.2018, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2018 Opið virka daga frá 9 -18 lau f rá 10 -16 Orf úr áli 25.980 Orf úr tré 17.400 Ljár 7.950 Heyhrífa 4.850 Orf og ljár Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is Ný vefverslun brynja.is Ljósmyndir/Sigurður Sveinsson Hopp Anna Valdís Óskarsdóttir fór á flug á Hvannadalshnjúk og var með Ísland í allri sinni dýrð að baki sér. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is H vannadalshnjúkur, hæsta fjall landsins, var vinsæll áfanga- staður nú um helgina. Um 100 manns úr ýmsum hópum fóru á jökulinn en bestu aðstæðurnar til þess eru um þetta leyti árs. „Því fylgir ótrúlegur sigur að komast á toppinn, þaðan sem sést vítt yfir landið. Svo fylgir því líka mögnuð tilfinning að vera í hópi fólks sem hefur náð langþráðu takmarki,“ segir Sigurður Sveinsson á Hvolsvelli. Hann var í hópi jökla- fara um helgina; einn af átta leið- sögumönnum í leiðangri á Hvanna- dalshnjúk. Það var lokaskrefið í verkefni sem Vilborg Arna Gissurar- dóttir stóð fyrir og nefnist #Fjalla- tindar2018 Hún stendur jafnframt að Tindum Travel en þar er innanborðs fólk sem gengið hefur með fjalla- drottningunni síðan í janúar og farið upp óteljandi brekkur. Er því komið í góða þjálfun eins og þarf þegar lagt er til atlögu við hnjúkinn, sem er 2.111 metra hár. Sextán stunda ferðalag Tindafólk lagði upp frá Sanda- felli í Öræfasveit undir miðnætti síð- astliðið föstudagskvöld. Fyrsti spöl- urinn er nokkuð á fótinn; brattar brekkur og skriður. Þegar kemur inn á jökulinn er Sandafellsheiði sleppir taka við langar aflíðandi brekkur. Þegar svo sjálfum hnjúknum er mætt þarf að príla upp 30-40° brekk- ur og sem reynast mörgum erfiðar. Allir í Tindahópnum, alls 57 manns, komust þó á toppinn og voru þar á tí- unda tímanum á laugardagsmorgun. Í það heila tók gangan alls 16 klukku- stundir og því var fólk býsna lúið þegar komið var til baka. „Mörgum finnst brekkur á jökl- inum sem ganga þarf upp vera óendanlegar, þegar þú ert komin/n upp á brún einnar tekur önnur við. Þarna reynir á þolinmæði og sálræn- an styrk, sem verður að vera í góðu lagi. Svo þarf fólk að vera í góðri þjálfun hafa úthald,“ segir Sigurður, sem er stofnandi Midgard Adventure á Hvolsvelli. Hann er þrautreyndur fjallagarpur sem farið hefur víða og þau Vilborg Arna hafa oft verið föru- nautar. Má þar nefna leiðangur fyrir nokkrum árum á Denali í Alaska, sem er 6.190 m á hæð og hæsta fjall Norður-Ameríku. Sprunginn jökull Gangan á Hvannadalshnjúk um helgina var þriðja ferð Sigurðar á Hvannadalshnjúk. „Aðstæður voru ágætar en jökullinn er orðinn tals- vert sprunginn nú þegar komið er fram í júní. Því er mikilvægt að göngufólk þekki aðstæður, haldi hóp- inn, bindi sig saman með línum og sé vel útbúið. En þetta er gjörsamlega fyrirhafnarinnar virði og ég ætla aft- ur á hnjúkinn,“ segir Sigurður. Ótrúlegur sigur á hæsta fjalli landsins Hvannadalshnjúkur er hár og heillandi og margir hafa gengið þangað upp síðustu vikurnar. Góður undirbúningur fyrir leiðangurinn er mjög mikil- vægur og allir snúa til baka glaðir og sælir í sinni. Halarófa Leiðin á toppinn er löng og fólk gekk bundið saman með línum. Förunautar Vilborg Arna og Sig- urður Sveinsson saman á toppnum. „Þessi bók er lýsing á því hvernig sjávarbyggðunum á Íslandi hefur blætt út. Með kvótakerfinu varð allt til sölu, ekki bara veiðiheimildir. Eng- inn stenst til lengdar freistingarnar þegar gull er í boði. Lífsafkoman varð föl og þar með brustu undirstöður mannlífsins,“ segir Reynir Trausta- son blaðamaður. Hann sendi frá sér á dögunum bókina Þorpið sem svaf, hvar er að finna tólf smásögur. Ís- lensk sjávarþorp eru sögusvið bókar- innar; kvótinn, virkjunaráform, pen- ingamenn og alþýðufólk sem ótta- laust mætir örlögum sínum. „Sem Flateyringur þekki ég þetta umhverfi vel; þorpið mitt er ekki svip- ur hjá sjón miðað við hvað var áður en allt var fest í fjötra kvóta sem svo mátti selja. Um þetta skrifaði ég óteljandi fréttir á sínum tíma og rann til rifja hvað var í raun að gerast,“ segir Reynir. „Sögurnar í bókinni eru í grunninn skáldskapur en þær eiga sér stað í veruleikanum og að sjálf- sögðu hefur nöfnum, staðháttum og öðru verið breytt til þess að forðast allar ótímabærar vangaveltur les- enda um hver sé hvað. Sögurnar eru broslegar en á prenti hafa þær ákveð- inn boðskap.“ – Það er forlagið Austurstræti sem gefur út Þorpið sem svaf, en bókin er 189 blaðsíður í kiljubroti. sbs@mbl.is Ellefu smásögur í bók Reynis Traustasonar Enginn stóðst freistingarnar Morgunblaðið/Sigurður Bogi Rithöfundur Reynir Traustason sendir nú frá sér sína 10. bók, Þorpið sem svaf. „Þegar við komum upp úr skýjunum vorum við undir bleikum himni sólar- upprásar. Þetta tókum við skref fyrir skref og að standa svo í morgunsárið á toppnum og sjá vítt yfir landið var algjör töfrastund,“ segir Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður hjá Ís- landsstofu. Rúmlega eitt ár er síðan Inga Hlín byrjaði að stunda fjallgöngur af al- vöru og var á liðnum vetri meðal þátttakenda í Fjallatindum hjá Tindar Travel hjá Vilborgu Örnu. Hafði að markmiði að komast á Snæfellsjökul í vor eins og henni líka tókst. Að ganga á Hvannadalshnjúk var eðli- legt framhald. „Að ganga á hæsta fjall landsins er hreint ekkert auðvelt, ég ætla ekkert að leyna því. En þetta er ofsalega gefandi. Ég hef alltaf haft mjög gam- an af útivist og heillaðist síðan al- gjörlega af fjöllunum. Ferðirnar á Úlfarsfell, Esjuna og fleiri fjöll síðasta ár- ið eru orðnar mjög margar. Ég hef eflst við sérhverja ferð og held að sjálfsögðu áfram. Það getur enginn verið annað en í góðu skapi á fjöllum og að finna lífsgleðina í þessu öllu er mikilvægt. Mér finnst einnig í land- kynningarstarfi gaman að geta sagt frá persónulegri reynslu minni af nátt- úru landsins svo þetta spilar allt mjög vel saman hjá mér,“ segir Inga Hlín Töfrastundin var á toppnum HEFUR STUNDAÐ FJALLGÖNGUR AF KAPPI SÍÐASTA ÁRIÐ Sigur Inga Hlín á Hvannadalshnjúk.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.